Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 65
21
Styrkir til samgönguleiða
Samkvæmt 25. gr. vegalaga nr. 80/2007 er heimilt í
vegáætlun að ákveða fjárveitingu til að styrkja tilteknar
samgönguleiðir sem ekki falla undir skilgreiningar vega
samkvæmt vegalögum.
Vegagerðin auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrki til samgönguleiða samkvæmt nefndri lagagrein
og 4. gr. reglna nr. 1155/2011 um þetta efni. Umsókn
um styrk skal senda til starfsstöðvar Vegagerðarinnar
(Selfoss, Borgarnes, Akureyri, Reyðarfjörður) á því
svæði þar sem viðkomandi framkvæmd er fyrirhuguð.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 15. apríl 2012.
Nánari upplýsingar má finna á vef Vegagerðarinnar
www.vegagerdin.is ásamt umsóknareyðublaði.
Til sölu er íslenskt/norskt byggingaverktakafélag
sem starfar fyrir norsk fasteignafélög.
Félagið hefur skapað sér gott orðspor í Noregi sem
undirverktaki og er með fasta verksamninga.
Um er að ræða smíði á timburhúsum á steyptum
sökklum og eru íbúðir fullfrágengnar við afhendingu.
Reksturinn hentar vel fyrir 3–4 samhenta smiði sem eru
tilbúnir að skapa sér góðar tekjur með dugnaði.
Félagið hefur mikla stækkunarmöguleika ef áhugi er
fyrir hendi.
Eingöngu traustir og áreiðanlegir aðilar koma til greina
sem kaupendur.
LÍTIÐ BYGGINGAVERKTAKAFÉLAG
Í NOREGI TIL SÖLU
Áhugasamir sendi upplýsingar á
netfangið marsig@vortex.is
Menningar- og ferðamálasvið
Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að taka Iðnó
á leigu undir menningarstarf og annað sem styrkir rekstur hússins.
Markmið Reykjavíkurborgar með útleigu Iðnó er að:
• Iðnó verði opin og lifandi miðstöð menningarstarfs sem laði að sér breiðan hóp innlendra og erlendra gesta.
• Allri starfsemi í húsinu verði hagað á þann veg sem hæfir merkri sögu þess, byggingagerð og staðsetningu
í hjarta borgarinnar. Fyllsta tillit sé tekið til þessa í innréttingum, tæknibúnaði, rekstri og umgengni.
• Skipuleggjendur menningarstarfs geti nýtt sér aðstöðuna á sanngjörnum kjörum.
• Í húsinu geti farið fram veitingasala, samkomur og annað er styrki rekstrarforsendur hússins.
Með umsókn bjóðenda skal fylgja lýsing á eftirfarandi:
• Fyrirhugaðri menningarstarfsemi, reynsla umsækjanda af menningarstarfsemi, veitingarekstri og skyldum rekstri
og leigufjárhæð.
Nánari upplýsingar og gögn er að fá hjá: Innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar, netfang: utbod@reykjavik.is sími:
4111042 og 4111043.
Skilafrestur umsókna er t.o.m. 16. apríl 2012, kl. 16:00.
Umsóknir berist til: Þjónustuvers Reykjavíkurborgar, 1. hæð, Borgartúni 12 –14, 105 Reykjavík
Merkt: 12773 – IÐNÓ. Sjá einnig vefslóðina: www.reykjavik.is/utbod
IÐNÓ til leigu
Viltu hefja nám í
Áfengis- og vímuefnaráðgjöf ?
Hjá Samtökum áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann starfa
nú um 45 ráðgjafar við áfengis- og vímuefnameðferð á hinum
ýmsu starfsstöðvum samtakanna:
Sjúkrahúsinu Vogi að Stórhöfða, Reykjavík
Búsetuúrræðið Viðarhöfða, Reykjavík
Enduræfingarheimili SÁÁ Vík Kjalarnesi
Endurhæfingarheimili SÁÁ Staðarfelli Dalasýslu
Göngudeild SÁÁ Von Efstaleiti Reykjavík
Göngudeild SÁÁ Akureyri
Við viljum fjölga í þeim hópi og ætlum því að ráða nokkra ein-
staklinga sem eru tilbúnir að vinna kvöld, nætur, og dagvaktir á
Sjúkrahúsinu Vogi og á búsetuúrræðinu Viðarhöfða, samhliða því
að hefja nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf.
Um er að ræða áhugaverð störf, þar sem kennsla og starfsþjálfun
fer fram samkvæmt reglugerð Heilbrigðis- og Tryggingamálaráðu-
neytis nr. 974/2006
Upplýsingar gefur Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Sjúkrahúsinu
Vogi, sími 824 7600, eða netfang: thorarinn@saa.is
Umsóknaeyðublöð fást hjá móttökuriturum á Sjúkrahúsinu Vogi.
Umsóknir berist SÁÁ, Stórhöfða 45, 112 Reykjavík í síðasta
lagi 15.mars n.k.
Umsóknir um dvöl í íbúð
fræðimanns í Kaupmannahöfn
2012-2013
Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv.
reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til af-
nota tímabilið 29. ágúst 2012 til 27. ágúst 2013.
Allar nánari upplýsingar og sérstök umsóknar-
eyðublöð er að finna á heimasíðu Jónshúss:
jonshus.dk (Fræðimannsíbúð).
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist
skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn.
6. mars nk.
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í
maí og júní ef næg þátttaka fæst:
Í matvælagreinum í maí. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Í byggingagreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Í prentgreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Í ljósmyndun í september – október. Umsóknarfrestur til 1. júlí.
Í málmiðngreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur til 1. maí.
Í vélvirkjun í september. Umsóknarfrestur til 1. júní.
Í snyrtigreinum í maí-júní. Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Í bílgreinum í maí-júní. Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Í hönnunar- og handverksgreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur
er til 1. maí.
Dagsetningar prófanna verða birtar á heimasíðu okkar um leið
og þær liggja fyrir.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyris-
sjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfest-
ingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2012.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir
iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veffang:
www.idan.is og á skrifstofunni.
Dagsetningar og nánari upplýsingar um prófin er að finna á
www.idan.is.
ÓSKAST TIL LEIGU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
15211 - Fullbúið skrifstofuhúsnæði
óskast á leigu fyrir
Hagstofu Íslands
Ríkissjóður óskar eftir að taka á leigu viðbótar skrif-
stofuhúsnæði fyrir Hagstofu Íslands. Miðað er við að
húsnæðið verði tekið á leigu til 3ja ára, með möguleika
á framlengingu, að þeim tíma liðnum, um 2 ár, full-
búið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um
staðsetningu við Borgartún eða í næsta nágrenni, gott
aðgengi og næg bílastæði. Æskilegt er að húsnæðið sé
í um 5 mín. göngufjarlægð frá Borgartúni 21a, þar sem
Hagstofa Íslands er til húsa.
Húsrýmisþörfin er áætluð um 565 fermetrar og skiptist
það í almennar skrifstofur og þjónusturými tengd þeim.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið
verður að uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu
Ríkiskaupa www.rikiskaup.is mánudaginn, 27. febrúar,
2012.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 15211 (útboðsnúmer
Ríkiskaupa) skulu sendar á netfangið www.utbod@
rikiskaup.is og verða svör birt á vef Ríkiskaupa.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 6. mars 2012, en svarfrestur
vegna fyrirspurna er til og með 9. mars 2012.
Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand og
staðsetning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal skila til
Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en
þriðjudaginn 13. mars 2012.