Fréttablaðið - 03.03.2012, Side 80
3. mars 2012 LAUGARDAGUR40
Ég þoli ekki helvítis Eagles!
Eftirlætissöngvari mafíuforingjans Michael Corleone úr Guðföður-þríleiknum heldur tónleika í Hörpu í ágúst. Kjartan
Guðmundsson kannaði hvaða tónlistarmenn hafa verið í uppáhaldi hjá fleiri þekktum kvikmyndapersónum í gegnum tíðina.
Í þriðja hluta Guðföður-þríleiksins eftir
Francis Ford Coppola kemur í ljós að
glæpaforinginn illræmdi, Michael Corleone
sem leikinn er af Al Pacino, kann vel
að meta hjartaknúsarann Tony Bennett
sem kemur einmitt fram í Hörpu í ágúst.
Corleone kýs frekar að hlusta á Bennett en
annan söngvara, fjölskylduvininn Johnny
Fontane, en sú persóna byggir á Frank
Sinatra og er ástæða þess að hinn eldri
Corleone gerir kvikmyndaframleiðanda í
Hollywood „tilboð sem hann getur ekki
hafnað“ eins og frægt er orðið.
Michael Corleone fílar Tony Bennett
Jeffrey Lebowski úr Big
Lebowski Coen-bræðra, sem
leikinn er af Jeff Bridges, er
forfallinn aðdáandi CCR og
hlustar á lög þeirra við hvert
tilefni, eða milli þess sem
hann nýtur þess að hlýða
á hvalahljóð og lýsingar á
keiluleikjum. Að sama skapi
hatar Lebowski Íslands-
vinina í Eagles og er fyrir
vikið hent út úr leigubíl á
þjóðveginum.
Jeff Lebowski fílar Creedence Clearwater Revival
Patrick Bateman (Christian Bale),
aðalpersónan í myndinni Amer-
ican Psycho, hefur ekki aðeins
áhuga á morðum, nauðgunum,
limlestingum og mannáti heldur
líka tónlist. Whitney Houston heitin
er í sérstöku uppáhaldi hjá Bateman
og telur hann meðal annars lagið
Greatest Love of All „eitt besta og
kraftmesta lag sem samið hefur verið
um sjálfsverndun og virðingu“. Bateman
er líka afar hrifinn af Phil Collins og
Huey Lewis.
Patrick Bateman fílar Whitney Houston
Christiane F. úr Dýragarðs-
börnunum, sannsögulegri
mynd um nöturlegt lífefni
barnungs heróínfíkils í Berlín
á áttunda áratugnum, er
mikill aðdáandi David Bowie,
sem sjálfur bjó í borginni
um árabil. Í myndinni kemur
Bowie fram í tónleikaatriði, en
hann gerði einnig tónlistina
fyrir myndina.
Christiane F. fílar David Bowie
Óvenjulegi lögreglumaðurinn
Serpico (Al Pacino) í sam-
nefndri mynd (sem byggð
er á sönnum atburðum)
fer í taugarnar á samstarfs-
mönnum sínum með því að
vera heiðarlegur og þiggja
ekki mútur, en líka með
því að leyfa hári sínu að
vaxa, drekka te og hlusta á
kraftmikinn tenórsöng hins
sænska Jussi Björling.
Serpico fílar Jussi Björling
Vivian Ward, hjartahlýja
hóran í rómantísku
gamanmyndinni Pretty
Woman sem Julia
Roberts leikur, fílar
Prince og syngur risasmell-
inn Kiss í baði.
Í myndinni Jay & Silent
Bob Strike Back eiga titil-
persónurnar, sem leiknar
eru af Jason Mewes og
Kevin Smith, sér einungis
eitt uppáhald í tónlist:
Fönkpopparann Morris Day
og hljómsveitina Time, sem
störfuðu meðal annars
náið með sjálfum Prince.
Morris Day kemur fram í lok
myndarinnar.
Jay og Silent Bob fíla Morris Day og Time
Wilson Phillips er eftir-
lætissveit Lillian, bestu
vinkonu aðalpersónunnar
í grínmyndinni Brides-
maids sem Maya
Rudolph leikur. Í lok
myndarinnar giftir Lillian
sig og að sjálfsögðu leikur
þríeykið smell sinn Hold
On við það tilefni.
Lillian úr Bridesmaids fílar Wilson Phillips Vivian Ward fílar Prince