Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 82

Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 82
3. mars 2012 LAUGARDAGUR42 B ob Hanning var í júlí árið 2005 ráðinn fram- kvæmdastjóri hins nýstofnaða handbolta- liðs Füchse Berlin. Það var klofið úr Reinicken dorfer Füchse – rótgrónu íþróttafélagi sem hefur verið starf- andi í þýsku höfuðborginni síðan 1891. Hanning fékk það verkefni að byggja upp sterkt lið sem hefði þó ákveðin grunngildi að sjónar- miði. Í dag, tæpum sjö árum síðar, er Füchse Berlin orðið eitt sterkasta handboltafélag heims og „Projekt Berlin“ eða Berlínarverkefnið, eins og það er kallað, dafnar vel. Þjóðverjinn Jörn-Uwe Lommel var þjálfari Füchse Berlin fyrstu fjögur árin og kom hann liðinu upp í þýsku úrvalsdeildina árið 2007. Hann steig svo frá borði vorið 2009 og Hanning ákvað að leita til Dags Sigurðssonar sem tók að sér þjálfun liðsins. Síðan þá hefur uppgangur liðsins verið með ólíkindum. Füchse Berlin er í öðru sæti þýsku úrvals- deildarinnar, sterkustu deildar heims, og komið í 16-liða úrslit Meistara deildarinnar. Árangurinn hefur komið handboltaheiminum í opna skjöldu en Fréttablaðið settist niður með þeim Degi og Hanning í Berlín á dögunum og fór yfir þessa mögnuðu sögu með þeim. Íslenskt fjölskyldumynstur „Við byrjuðum árið 2005, þegar við vorum í B-deildinni. Við lítum á okkur sem eina stóra fjölskylda með íslensku mynstri – við trúum því að það sé hægt að ná langt með lítið á milli handanna,“ segir Hanning. „Okkar hugsjón er að byggja liðið upp á heimamönnum. Við viljum gefa ungum leikmönnum tækifæri til að spila með okkur, sérstaklega þeim sem koma upp í gegnum okkar starf í yngri flokkunum. Við viljum vera eins góðir og við getum en ef við lendum í sjötta, áttunda eða tíunda sæti er það í góðu lagi líka.“ Það skal tekið fram að blaða- maður ræddi við þá Dag og Hanning hvorn í sínu lagi. Aðspurður segir Dagur að Hanning sé aðal persónan í sögu þessa unga félags. „Hann þekkir þetta allt saman enda búinn að vera lengi í bransanum. Hann þjálfaði lengi sjálfur og starfaði til að mynda sem aðstoðarþjálfari Heiners Brand hjá þýska landsliðinu og sem aðalþjálfari Hamburg. Eftir að hann hætti hjá Hamburg ákvað hann að gera eitthvað nýtt. Hann kom til Berlínar og tók við stöðu framkvæmdastjóra hjá liði sem var að falla úr B-deildinni. Hann fékk þjálfara og leikmenn sem náðu að halda liðinu uppi og koma því svo upp í úrvalsdeildina stuttu síðar.“ Ætlaði ekki aftur út Dagur segir að samstarf þeirra Hannings og Lommels hafi ekki gengið að óskum og því hafi sá fyrrnefndi ákveðið að finna nýjan þjálfara. „Hann ákvað að fá nýtt blóð. Hann var búinn að fylgjast lengi með mér en við kynntumst fyrst þegar ég var að fara sem leik- maður frá Wuppertal árið 2000. Eftir það fylgdist hann með mér bæði í Japan og Austurríki.“ Dagur var í fjögur ár hjá austur- ríska félaginu Bregenz sem spilandi þjálfari en hætti árið 2007. Þá fluttist hann heim til Íslands ásamt fjölskyldu sinni og tók að sér stöðu framkvæmdastjóra Vals. Árið 2008 var hann ráðinn landsliðsþjálfari Austurríkis en bjó áfram á Íslandi. Ári síðar hafði Bob Hanning samband. „Ég veit ekki af hverju hann hafði samband. Ég var kominn heim og ekki að velta því fyrir mér að flytja aftur út,“ segir Dagur. „Þegar við bjuggum í Bregenz sagði ég við Ingibjörgu, konuna mína, að ég hefði í raun ekki áhuga að þjálfa í Þýskalandi nema annað hvort eitt af sex bestu liðunum eða þá félagið í Berlín. Þetta sagði ég án þess að eitthvað annað lægi þar að baki. Það var ekkert sem benti til þess að ég myndi fá tilboð frá Füchse Berlin.“ Dagur er eins og íslenskt eldfjall Ég spurði Bob Hanning af hverju hann hafi sótt sér þjálfara sem var fluttur til Íslands og aldrei þjálfað í Þýskalandi áður. Hanning brosti. „Ég hafði fylgst vel með Dagi, allt frá því að hann spilaði með Wupper- tal,“ segir hann. „Og þó svo að hann hafi ekki þjálfað áður í Þýskalandi bjó hann yfir mikilli alþjóðlegri reynslu sem leikmaður í Þýska- landi, Japan og Austurríki auk þess sem hann hafði náð góðum árangri sem þjálfari í Austurríki. Dagur er reyndur handboltamaður.“ En það var meira sem bjó að baki, segir Hanning. „Ég vildi fá annað hvort þjálfara frá Þýskalandi eða Skandinavíu. Ég var að leita að þjálfara sem passaði að okkar hug- myndum – þjálfara sem vildi vinna með ungu fólki og taka þátt í að byggja upp öflugt félag. Það var ekki erfitt að koma auga á þessa eig- inleika í Degi. Í honum endurspegl- ast allt það sem okkur finnst mikil- vægast og ég trúi því að hann hafi vaxið með okkur og þróast sem þjálf- ari á þessum árum. Hann er líka til- búinn að bæta sig á hverjum degi.“ Hanning kom því til Íslands til að funda með Degi. „Við töluðum saman í bílferðinni frá flug vellinum til Reykjavíkur. Ég þurfti ekki að heyra meira og hefði þess vegna getað snúið strax aftur við. Ég vissi að Dagur væri sá þjálfari sem hentaði félaginu einmitt á þessum tímapunkti. Dagur á stóran þátt í góðu gengi okkar. Hann er eins og íslenskt eldfjall en samt einnig yfir- vegaður og íhugull. Hann vill alltaf meira og er reiðubúinn til að fara út fyrir þægindasvið sitt.“ Enginn mikilvægari en félagið Füchse Berlin kom öllum að óvörum með því að ná þriðja sæti í fyrra, á eftir stórliðum Hamburg og Kiel en á undan liðum á borð við Rhein-Neck- ar Löwen og Flensburg. Hafi einhver átt von á því að árangurinn væri blaðra sem myndi svo springa á end- anum hefur annað komið á daginn. „Það er engin ein ástæða fyrir þessari velgengni,“ segir Hanning. „Það sem mestu skiptir er að allir sem koma að verkefninu gefa eitt- hvað af sér. Enginn er mikilvæg- ari en félagið og verkefnið. Það er mikil vægast. Við erum með góðan þjálfara, öflugan fyrirliða og sam- stilltan leikmannahóp sem vinnur ötullega að því að ná sínum mark- miðum.“ Leikmenn Füchse Berlin eru ekki þeir launahæstu í deildinni enda séð til þess að félagið eyði aldrei um efni fram. „Við hugsum vel um okkar leikmenn. Við borgum launin alltaf á réttum tíma og það hefur aldrei brugðist. Við reynum að skapa umhverfi þar sem leik- mönnum og fjölskyldum þeirra líður vel. Við viljum að leikmenn taki þátt í verkefninu okkar af lífi og sál og það er einmitt það sem þeir gera.“ Og það er enginn vafi á því að Degi líður vel í höfuðborginni. „Þetta hefur allt saman verið vonum framar,“ segir Dagur. „Ég hélt að það yrði flóknara ferli að starfa fyrir svo stóran klúbb og að ég yrði með allt dæmið yfir mér. En boð- leiðirnar eru skýrar – ég sé um allt það sem snýr að íþróttinni og fram- kvæmdastjórinn um allt annað. Þetta gæti í raun ekki verið ein- faldara og stjórnin treystir okkur mjög vel fyrir þessu.“ Lifum drauminn Flestir íþróttamenn vilja ná árangri í sinni grein og mætti ætla að mark- miðið hjá liði eins og Füchse Berlin, sem er í öðru sæti sinnar deildar, væri að komast í fyrsta sæti. En svo einfalt er það ekki. „Mitt markmið hér í Berlín er ekki að verða best- ur,“ segir Dagur og í því kristallast hugsjón félagsins. „Ekki að ég verði besti þjálfarinn og við verðum besti klúbburinn. Ég vil að Füchse Berlin verði flottasti klúbburinn í Þýska- landi. Um það snýst mín vinna. Ég vil að við búum til okkar eigin leikmenn, liðið verði með flottustu aðstöðuna og flottustu umgjörðina. Það er jafn mikil ánægja sem felst í því og verða meistari.“ Dagur myndi þó ekki fúlsa við titlunum. „Auðvitað langar mig líka að vinna titla – það er enginn vafi á því. En ég vil standa mig sem best og það yrði ekkert betra en að Füchse Berlin yrði flottasta félagið í Þýskalandi.“ Ég spurði Hanning að því sama – hvort það væri ekki draumur hans að verða Þýskalandsmeist- ari – eða jafnvel Evrópumeistari. „Það var draumur fyrir okkur að komast upp í þýsku úrvalsdeildina. Það var draumur að festa félagið í sessi í keppni þeirra bestu og spila fyrir fullri höll, leik eftir leik. Og þennan draum fáum við að upplifa í hverri viku. Við erum lítið félag – fjár hagur okkar er 40 prósent á við fjárhag stóru félaganna – Kiel, Hamburg og Rhein-Neckar Löwen. En samt stöndum við framar Hamb- urg og Rhein-Neckar Löwen í dag. Hvað er hægt að biðja um meira?“ Ég vil að við búum til okkar eigin leikmenn og að liðið verði með flottustu aðstöðuna og flottustu umgjörðina. Það er jafn mikil ánægja sem felst í því og verða meistari. Berlínarverkefnið dafnar vel Dagur Sigurðsson þjálfari og Bob Hanning framkvæmdastjóri eru höfuðpersónur í þýska handknattleiksfélaginu Füchse Berlin. Félagið hefur náð ótrúlegum árangri á skömmum tíma og er í dag eitt það besta í gjörvallri Evrópu – þó svo að þeir sjálfir hafi það ekki að markmiði að verða bestir. Eiríkur Stefán Ásgeirsson ræddi við þá Dag og Hanning um „Projekt Berlin“. ÓLÍKIR EN NÁ VEL SAMAN Bob Hanning, framkvæmda- stjóri Füchse Berlin, og Dagur Sigurðsson þjálfari. Árangur liðsins undir þeirra stjórn er með ólíkindum. NORDIC PHOTOS/GETTY – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 85 36 0 2/ 12 Lægra verð í Lyfju Voltaren dolo 25 mg 15% afsláttur Tilboðið gildir til 5. mars.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.