Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 84

Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 84
3. mars 2012 LAUGARDAGUR44 Krossgáta Lárétt 1. Bönd sem auðvelda þér að hafa hemil á því sem þú etur? (12) 6. Eldfugl rís úr henni og yrkir stöku um ós (7) 11. Regnblanda er rétt svar (7) 13. Ekki færri en vargar á dellu (8) 14. Það hafa orðið tímamót, áttarðu þig á því? (8) 15. Hér er lýst kærleikum fólks á Kvíabryggju (11) 17. Elti tungl til næstu bæja fyrir yrkinguna um nýjabrumið í sveitinni (15) 18. Þessir hjólbarðar snúa öfugt (4) 19. Bæði fljót og fær og bara æðisleg (6) 20. Féll firnavís í pytt sem náði ekki í nára (9) 22. Eldaði þessi kjánalegi kokkur án klæða? (9) 24. Flumbrugangur fyrir klaka og krydd (4) 26. Lærðu um auðlindanýtingu eins og vera ber (8) 28. Hreinar línur: Skíriskógur á Íslandi? (8) 30. Fæst garðagæfa gegn veði í gaddavír? (11) 32. Klakastrá innan í grýlukertinu (9) 35. Dætur erfðu ekkert (8) 36. Ferskt form þoli landnyrðinginn og frumframleiðsluna (11) 37. Baulubolir fást m.a. með svarthvítu, rauðu og skjöldóttu munstri (10) 38. Óli fór með Vísi í laufskálann (11) 39. Göslast uppá ísinn eftir útungun (7) Lóðrétt 1. Æðisgengin stemning á Tregaströnd (9) 2. Rasslopi dugar vel til veiða (7) 3. Græjuveggur Eggerts Ó er í 160 hlutum (13) 4. Lengja mynd (4) 5. Gullstaur ber minnstan þunga (8) 7. Bjórlummubækur eru þjóðargersemi (12) 8. Oj, strákaslagur um saltbelg fullan af nitri (12) 9. Hræðsla verndar, segja þeir sem hræða (9) 10. Mokstur í grænan voginn (8) 12. Meiri barningurinn, kveður steinbarnið (13) 16. Hér stoppa stefin, segja reglurnar (7) 19. Kjánatal eða merkilegt samskiptakerfi? (7) 21. Hljóða vaktin á lönguföstu (11) 22. Þetta svín er alltaf í steik en ódrepandi samt (9) 23. Bubbi og Tolli sungu þetta í byltingunni (9) 25. Hálfgert óheiðursmerki er ástæða þessara svívirðinga (10) 27. Dæmdur vegna fjölda smáglæpa sem hver um sig nær varla máli (9) 29. Má ég kynna miklimennið kunna: Nóa (8) 31. Öfugt dansar Anna ræl, vegna fótanna að hluta til (7) 33. Fljót að neita mér, þessi gyðja (6) 34. Hin ausa ljúflega (6) L O F T - K A S T A L A R Vegleg verðlaun Lausnarorð Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist nokkuð sem einum þykir hnossgæti en öðrum ekki. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 7. mars næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „3. mars“. Lausnarorð síðustu viku var loftkastalar. Vikulega er dregið er úr innsendum lausnarorðum og fær vinningshafi eintak af bókinni Svartur á leik frá Forlaginu. Vinningshafi síðustu viku var Hjörtur Aðalsteinsson, Selfossi. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 A U Ð S Ó T T S T U N D A R H Á T T D K A Í N Í A U F A M L Ó Ð U N U M D Á V A L D A N N A M L M R R A L G G S K R A F H R E I F I N N A U A E S A T Ð I N N L I T I Ð P R J Ó N L E S I Ð N D A I L K D N U N D I R S K Á L I Ð U N N I A N N A R O Ó I A G E A Á T Ö K U M A Ð U R M Á L A K U N N Á T T U K A M A U T D T B U R S Í S A V T J Ö R N E S V I T I S Ú P E R M A Ð U R R N Á A T E D R E I N V I S T F J Ú G G A N A Y E T O L L A A I N L Y F J A R I S U M A R L S A U K Á R Æ Ð A N Ú L L A Ð U N L L I A R S Ó L A R L A N D A F E R Ð Á þessum degi fyrir réttu 21 ári, hinn 3. mars árið 1991, var Rodney King, 25 ára gömlum blökku- manni, misþyrmt af hópi lögregluþjóna í Los Angeles. Árásin náðist á myndband og olli gríðarlegri reiði meðal almennings. Forsaga málsins er sú að King, sem var á skilorði vegna búðar- ráns tveimur árum áður, varð uppvís að hrað- akstri skömmu eftir miðnætti. Í stað þess að verða við tilmælum lög- reglu reyndi King að komast undan, en hann sagðist síðar hafa verið hræddur um að verða fangelsaður á ný, þar sem hann var undir áhrifum áfengis. Eltingarleikurinn magnaðist og fleiri lögreglubílar og þyrla bættust við eftirförina. Þegar King stöðvaði bílinn loks voru tveir samferðamenn hans hand- teknir án vandkvæða, en hann var sjálfur með látalæti og neitaði til dæmis að leggjast flatur á jörðina. Fjórir lögreglumenn nálguðust King og hugðust taka hann höndum, en eftir að King streittist á móti varð fjandinn laus. Einn lögregluþjónanna skaut hann tvisvar með rafbyssu og féll hann í jörðina við það. Í framhaldinu börðu þeir King ítrekað, alls 56 sinnum, svo að hann hlaut af alvarleg meiðsli. Hann hlaut brot á fótlegg og höfuðkúpu og beið varanlegan skaða á heila og nýrum. Nágranni náði atvikinu á myndband sem sýndi aðfarir lögreglu- mannanna með skýrum hætti. Þeir voru ákærðir fyrir líkamsárás, en voru sýknaðir fyrir rétti í aprílmánuði. Tíu kviðdómendur af tólf voru hvítir og hvorugur hinna tveggja var blökkumaður. Sýknanirnar ollu mikilli reiði og furðu sem mögnuðust upp í miklar óeirðir á götum Los Angeles þar sem á sjötta tug manna létust í þriggja daga vargöld. King kom sjálfur fram á þriðja degi og hvatti til friðar. Þar lét hann hin fleygu orð falla: „Can we all get along?“ Tveir lögreglumannanna voru síðar dæmdir í alríkisrétti til 30 mánaða fangelsis. King hefur átt við erfiðleika að etja allt upp frá þessu og hefur marg- oft komist í kast við lögin, jafnan vegna áfengisneyslu. Hann hefur oft tekið þátt í raunveruleikasjónvarpsþáttum þar sem hann hefur barist við áfengissýki, en honum hefur gengið illa að halda sér á beinu brautinni. Síðast fréttist af honum í fyrrasumar þar sem hann var stöðvaður fyrir ölvunarakstur. - þj Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1991 Hópur hvítra lögregluþjóna misþyrmir Rodney King Lögregluofbeldi gegn blökkumanni vekur mikla athygli og varpar ljósi á undirliggjandi ólgu vegna kynþáttamála í bandarísku samfélagi. MISÞYRMT Lögreglumennirnir fjórir sem börðu King voru sýknaðir, en tveir þeirra voru svo sakfelldir fyrir alríkisdómi. King hefur aldrei komið lífi sínu á réttan kjöl eftir atvikið. Söngvar um alfaraveginn og sjálfan mig eftir Walt Whitman Hallberg Hallmundsson sneri á íslensku Í þessari bók eru allar þýðing- ar sem Hallberg gerði á ljóðum Whitmans, meðal annars „Síð- ast þegar dísarunnar blómstr- uðu í hlaðvarpanum“, „Ég heyri Ameríku syngja“, „Til hans sem krossfestur var“ og fleiri ljóð“ ------------------- Þegar bókaútgáfan Bjartur gaf út þýðingu Sigurðar A. Magnússonar á „Söngnum um sjálfan mig“, hætti Hallberg við að gefa út sína þýðingu þrátt fyrir að hún væri tilbúin til prentunar. Nú loks gefst ljóðaunnendum tækifæri til að bera saman þessar öndvegisþýðingar. Rétt fyrir andlát sitt í janúar 2011 bað Hallberg ætt- ingja sína um að koma þeim ljóðaþýðingum hans á prent sem tilbúnar voru í tölvunni hans. Næsta bók sem kemur út fljótlega af þýðingum Hallbergs er meistarverk Edgar Lee Masters „Spoon River Anthology“. Dreifing: JPV. Bókin fæst í öllum helstu bókabúðum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.