Fréttablaðið - 03.03.2012, Síða 86
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir færum við öllum
þeim, er með margvíslegu móti veittu
okkur stuðning og sýndu okkur samúð
og vinarhug með blómum, skeytum,
samúðarkortum og gjöfum við fráfall
Ástu Bjarnadóttur
Strikinu 2, Garðabæ.
Sérstakar þakkir eru hér fluttar Jóni Hrafnkelssyni,
lækni, hjúkrunarfræðingum hjá Karitas og starfsliði
Líknardeildar Landspítalans í Kópavogi, er önnuðust
hana með miklum kærleikshug í veikindum hennar.
Blessun Guðs fylgi ykkur öllum.
Guðmundur Þorsteinsson og fjölskylda.
Ástkær systir okkar, mágkona og
frænka,
Kristín Helgadóttir
Brekkubæ 3, Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi, miðviku-
daginn 29. febrúar. Útförin verður auglýst síðar.
Logi Helgason
O. Stefanía Helgadóttir Bergþór Engilbertsson
Bryndís Helgadóttir
Jón Tryggvi Helgason Hrönn Ísleifsdóttir
Helgi Þór Helgason Soffía Jónsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru dóttur,
systur, mágkonu og frænku,
Vilhelmínu
Guðmundsdóttur
Sléttuvegi 7, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til heimahlynningar og heima-
hjúkrunar að Sléttuvegi 7, Oddshúsi. Einnig til starfs-
fólks Ferðaþjónustu fatlaðra í Reykjavík.
Guðmundur Ottósson Anna Þóra Sigurþórsdóttir
Grétar Karlsson Ólöf Ólafsdóttir
og frændsystkini.
Ástkær bróðir, mágur og frændi,
Ómar Már Magnússon
vélfræðingur,
Fífumóa 3c, Reykjanesbæ,
varð bráðkvaddur fimmtudaginn 23. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Innri Njarðvíkurkirkju
5. mars kl. 11.00.
J. Rúnar Magnússon Andrea K. Guðmundsdóttir
Ólafur S. Magnússon Sólbjörg Hilmarsdóttir
Viðar Magnússon Emelía Bára Jónsdóttir
frændsystkini.
Þökkum innilega hlýhug, samúð og
vináttu okkur sýnda við andlát og útför
eiginmanns míns, föður og afa,
Hilmars Björnssonar
Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu í
Kópavogi fyrir hjálpina sl. mánuði.
Marie Bögeskov
Emilía María Hilmarsdóttir Björn Elíasson
Björn Bögeskov Hilmarsson Ólöf Ævarsdóttir
Hjördís Hilmarsdóttir Tryggvi R. Guðmundsson
Hilmar, Rakel, Anton, María, Kristbjörg, Elísa og Guðrún.
Þökkum innilega hlýhug, samúð og
vináttu við andlát og útför okkar ást-
kæra eiginmanns, föður, sonar, bróður,
tengdasonar, barnabarns og frænda
sem lést af slysförum þann 12. janúar
2012.
Óskar Páll Daníelsson
Berjavöllum 4, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við lögreglu, björgunarsveitar-
fólki, starfsfólki gjörgæsludeildar E6 Fossvogi
og starfsfólki Logalands.
Elísabet Anna Kolbeinsdóttir
Eva Viktoría
Herdís Hjörleifsdóttir
Daniel Dieter Meyer Ingunn Ólafsdóttir
Kolbeinn Sigurðsson Guðrún Erla Gunnarsdóttir
Friðrik Daníelsson Matthildur Ragnarsdóttir
Bergsteinn Daníelsson
Hafdís Maggý Magnúsdóttir Hjörleifur Guðbjörn
Bergsteinsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Hafsteinn Sigurðsson
Silfurgötu 11, Stykkishólmi,
lést fimmtudaginn 1. mars.
Sigrún Ársælsdóttir
Hafrún Brá Hafsteinsdóttir
Jón Elvar Hafsteinsson Jóhanna Ósk Eiríksdóttir
Kristín, Heiða, Hafsteinn og Kristofer Dean
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýju við andlát
og útför ástkærs sonar, föður, tengda-
föður og afa,
Halldórs Fannars
tannlæknis,
Háteigsvegi 20, Reykjavík.
Hanna Aðalsteinsdóttir
Soffía D. Halldórsdóttir Daði Friðriksson
Halla D. Halldórsdóttir Bjarni Adolfsson
Halldór Fannar Halldórsson
Róbert Fannar Halldórsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
stjúpmóðir, amma og langamma,
Ólöf Jóhanna
Vilhjálmsdóttir (Lóló)
Álfheimum 46, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum mánudaginn 27. febrúar,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn
6. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakk-
aðir en þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega
bent á hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustuna Karitas.
Garðar Jónsson
Jóhannes Ágústsson Elísabet Guðmundsdóttir
Ragna Ágústsdóttir Aðalsteinn Bernharðsson
Guðmundur Ágústsson Sigríður Sigurðardóttir
Berglind Garðarsdóttir Þórarinn Gunnarsson
Sigfús Garðarsson Kristjana Kristjánsdóttir
Ástríður Garðarsdóttir
Bára Garðarsdóttir
Einar Páll Garðarsson Sigríður Oddný Hrólfsdóttir
Margrét Ríkharðsdóttir Egill H. Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir fyrir auð-
sýnda samúð og hlýhug við fráfall og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Hermanns Ólafs
Guðnasonar.
Starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík,
færum við sérstakar þakkir fyrir góða umönnun.
Elsa P. Níelsdóttir
Ólöf Dóra Hermannsdóttir
Ragnhildur Hermannsdóttir Hjörtur Pálsson
Erlendur N. Hermannsson Anna María Grétarsdóttir
Jóhann Gísli Hermannsson Kristín Björg Óskarsdóttir
Erla Ósk Hermannsdóttir Gunnar S. Gottskálksson
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
Friðrik Erlingsson er tiltölulega nývaknaður þegar hringt
er í hann að morgni dags vegna viðtals í tilefni fimmtugs-
afmælisins. Kveðst hafa vakað fram eftir kvöldið áður, verið
á æfingu í Þjóðleikhúsinu og keyrt heim til sín austur á Hvols-
völl á eftir. Hvað er hann að gera á Hvolsvelli? „Nú bý ég á
blaðsíðu eitt í Njálu,“ svarar hann kampakátur. „Er búinn að
vera hér með minni konu í fjögur, fimm ár. Hún heitir Kristín
Þórðardóttir og er fulltrúi sýslumanns á Hvolsvelli og hrossa-
ræktandi.“ Sjálfur kveðst hann ekki telja sig hestamann þó
hann hafi gaman af að skreppa á bak. En honum þykir tungu-
takið heillandi sem konan hans og aðrir hestamenn nota þegar
þeir byrja að tala um hross. „Ég verð allur ein eyru,“ segir
hann hlæjandi.
Friðrik er orðsins listamaður og fæst bæði við skáldskap
og þýðingar. Ástæða þess að hann var á æfingu í Þjóðleik-
húsinu er sú að hann vann þýðinguna á Vesalingunum fyrir
þá uppfærslu sem verður frumsýnd í kvöld. „Þetta er í fyrsta
skipti sem ég þýði svona stórt verk fyrir svið. Ég hef gert þó
nokkuð af söngtextum fyrir hina og þessa, þannig að ég telst
vera textahöfundur, en Vesalingarnir eru sérstakt verk, allt
sungið við stórkostlega tónlist sem textinn þarf að falla vel
að. Það var mikið ævintýri að taka þátt í þessu verkefni og
ég naut þess í botn.“
Friðrik kveðst hafa vaxið upp í Vesturbænum í Reykjavík,
ansi víða. „Ég er alinn upp af móður minni og ömmu og staðan
var þannig hjá okkur að við fluttum um það bil einu sinni á
ári. Þær mæðgur stilltu flutningana samt þannig af að ég var
í sama hverfinu alla mína grunnskólatíð. Það kom sér vel og
mér þykir vænt um Vesturbæinn,“ lýsir hann. Kveðst samt
hafa leitað út á landsbyggðina á fullorðinsárum og átt heima
á Eyrarbakka um hríð í húsi sem föðurfjölskylda hans eigi.
„Mér finnst þægilegra að búa á Íslandi en í Reykjavík!“ segir
hann. „Þar er svo fínt næði til að skrifa.“
Meðal nýlegra þýðinga Friðriks eru styttar endursagnir á
heimsbókmenntunum fyrir Námsgagnastofnun, Baskerville-
hundinum, Drakúla, Rómeó og Júlíu og fleiri slíkum. „Ég hef
orðið var við að drengir sem hafa kannski átt í erfiðleikum
með lestur hafa hellt sér í þessar bækur og viljað fá meira,“
segir hann. Sjálfur á hann tvo drengi, fimm ára og þriggja.
„Við feðgar lesum heilmikið saman. Eldri sonurinn er aðeins
byrjaður að lesa sjálfur og er reyndar mjög duglegur. Ég vona
að sá áhugi endist.“
Í lokin, skyldi Friðrik ætla að halda upp á afmælið? „Ég er
svo heppinn að frumsýningin á Vesalingunum er í kvöld og
ég slepp við að kaupa áfengi eða leigja sal því ég fæ frum-
sýningarpartí sem gengur inn í afmælisdaginn minn. Vinir
mínir og vandamenn þurfa svo ekkert að stressa sig á þessari
dagsetningu því nú hefst afmælisárið og þeir hafa 365 daga
til þess að gleðja mig með einhverjum hætti!“ gun@frettabladid.is
FRIÐRIK ERLINGSSON RITHÖFUNDUR:
ER FIMMTUGUR Á MORGUN
Býr á blaðsíðu
eitt í Njálu
ÞÝÐANDINN „Ég er svo heppinn að frumsýningin á Vesalingunum er
í kvöld og ég slepp við að kaupa áfengi eða leigja sal því ég fæ frum-
sýningarpartý sem gengur inn í afmælisdaginn minn,“ segir Friðrik
Erlingsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON