Fréttablaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 90
3. mars 2012 LAUGARDAGUR50
Hvenær kepptir þú fyrst í hlaupi? Ég
fór að keppa reglulega í götuhlaupum
þegar ég var níu ára en byrjaði ekki
að æfa hlaup fyrr en ég var fimmtán
ára. En fyrsta götuhlaupinu tók ég
þátt í þegar ég var nýfarinn að ganga.
Býst samt við að mamma og pabbi hafi
hjálpað mér mestan hluta leiðarinnar.
Af hverju urðu langhlaup fyrir valinu?
Ég byrjaði að safna verðlauna-
peningum og var þess vegna dugleg-
ur að taka þátt í götuhlaupum með
foreldrunum. Þegar ég var fjórtán,
fimmtán ára var ég farinn að hlaupa
á fínum tímum svo mér var boðið á
æfingu hjá frjálsíþróttafélagi og hef
ekki snúið til baka síðan.
Hvað er skemmtilegast við langhlaup?
Mér finnst frábær tilfinning og mikið
frelsi að geta hlaupið langt og hratt án
þess að þreytast mikið og mér líður
alltaf jafn vel eftir æfingar. Svo á ég
marga góða vini í hlaupunum og þykir
fátt skemmtilegra en að fara í keppnis-
og æfingaferðir.
Um hvað hugsar þú á sprettinum?
Um allt milli himins og jarðar en allar
mínar hugsanir á hlaupum eiga það
sameiginlegt að vera jákvæðar. Ég
hlusta mikið á tónlist og á það til að
gleyma mér alveg í dagdraumum.
Í hvernig veðri finnst þér best að
hlaupa. Mér dettur fyrst í hug sól, logn
og 20 stiga hiti. Samt finnst mér fjöl-
breytnin mikilvæg og tel mér trú um
að þær erfiðu aðstæður sem íslenskt
veður far býður upp á styrki mig sem
hlaupara. Ég læt veðrið aldrei stoppa
mig en ef mikil hálka er neyðist ég til
að flýja inn á hlaupabretti hvernig sem
veðrið er.
Hvert er skemmtilegasta hlaupið þitt?
Fyrsta maraþonið mitt sem ég hljóp
síðasta haust. Mér tókst að ná Ólympíu-
lágmarki og slá Íslandsmetið og það var
því ólýsanleg tilfinning hlaupa í gegnum
marklínuna eftir rúma 42 kílómetra,
gjörsamlega búinn á því.
Áttu f leiri áhugamál? Já,
frekar týpísk eins og ferða-
lög, vini, útivist, bíó myndir,
armbandsúr og íþróttir.
Mér finnst mikilvægt að
lífið snúist ekki allt um
hlaup heldur sé gott jafn-
vægi milli félagslífs,
íþrótta og annarra þátta
í lífi mínu.
Hvaða leikföng lékstu
þér helst með þegar þú
varst lítill? Ég lék mér
nánast öllum stundum
með körfubolta og fót-
bolta hvort sem ég var
einn eða með vinum.
Ég var líka mikið fyrir
að taka tímann á tölvuúr
og skrifaði metin mín í
hlaupum og þrautum í bók.
Svo kepptist ég við að bæta öll
þessi met.
Hvaða matur er í uppáhaldi?
Ég er mikill sælkeri þegar
kemur að mat og á það til að
hlusta oftar á magann en skyn-
semina en það er eitthvað sem
ég er að vinna í.
Hvers biður þú þegar þú
ferð með bænirnar þínar á
kvöldin? Ég er lítið fyrir að
biðja um hluti heldur reyni
að hafa trú á sjálfum mér.
Því geri ég allt sem ég tel
þurfa til að hámarka líkurnar
á að draumar mínir rætist.
- gun
krakkar@frettabladid.is
50
Mér finnst mikið
frelsi að geta
hlaupið langt og hratt án
þess að þreytast mikið.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Sonurinn: „Ég held að
kennarann sé farið að gruna
að þú hjálpir mér með stíl-
ana.“
Faðirinn: „Af hverju heldurðu
það?“
Sonurinn: „Hann segist ekki
trúa því að ég geti skrifað
svona mikla vitleysu hjálpar-
laust.“
Hvað var erfiðasta starfið á
steinöld?
Að bera út blöðin.
Tommi litli situr við morgun-
verðarborðið með föður
sínum.
Faðirinn: „Dreymdi þig eitt-
hvað í nótt?“
Tommi svarar ekki en brosir.
Faðirinn: „Viltu ekki segja
mér hvað þig dreymdi?“
Tommi: „Láttu ekki svona
pabbi, þú varst með mér.“
Það er ekkert mál
að búa til fingra-
málningu heima í eld-
húsi. Meira að segja
málningu sem ekki er
hættulegt að smakka
dálítið á. Þetta þarftu
að nota:
3 matskeiðar sykur
½ teskeið salt
½ bolli maísmjöl
2 bollar vatn
Matarlit
Blandaðu þessu öllu
saman í litlum potti.
Fáðu svo hjálp við að
hita blönduna á hellu
og hrærðu varlega
í, alveg þangað til
að blandan er orðin
nægilega þykk. Næst
skaltu leyfa blönd-
unni að kólna. Þegar
hún er orðin köld
skiptir þú henni í
nokkrar litlar krukkur
og bætir matarlit út í
hverja þeirra. Svona
getur þú búið til alla
þá regnbogans liti
sem þér þykja fal-
legastir.
Fingramálning úr eldhúsinu heima
Ef þig langar til að mála en átt enga málningu skaltu bara
búa hana til sjálfur. Það er ekkert mál. MYND/GETTY
LÆT VEÐRIÐ ALDREI
STOPPA MIG Í AÐ HLAUPA
Kári Steinn Karlsson tók þátt í sínu fyrsta götuhlaupi þegar hann var nýbyrjaður
að ganga. Nú er hann 25 ára og hleypur maraþon á Ítalíu um helgina en í sumar
hyggst hann keppa á Ólympíuleikunum í London.
„Ég lék mér nánast öllum
stundum með körfubolta og
fótbolta hvort sem ég var einn
eða með öðrum,“ segir Kári Steinn
þegar hann rifjar upp æskuna.
Á Vísi er hægt að horfa
á myndskreyttan upp-
lestur úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið
1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið
endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl-
enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum
börnum í tugi ára.
Á HEIMASÍÐU LEGO, WWW.LEGO.COM, er að finna marga
skemmtilega leiki sem börn á öllum aldri geta auðveldlega gleymt sér í.