Fréttablaðið - 03.03.2012, Side 94
3. mars 2012 LAUGARDAGUR54 54
menning@frettabladid.is
Sviðslistahópurinn 16 elsk-
endur frumsýnir á morgun
Sýningu ársins, verk sem
ætlað er að koma til móts
við leikhúsþarfir landans.
„Við erum leitandi hópur sem
hefur verið að vinna með leik-
húsformið og langaði að komast
að því hvað Íslendingar vilja sjá
í leikhúsi,“ segir Ragnar Ísleifur
Bragason úr sviðslistahópnum
16 elskendur sem frumsýnir á
morgun, sunnudaginn 4. mars,
verkið Sýning ársins í Rúgbrauðs-
gerðinni, Borgartúni 6. Samkvæmt
hópnum er um að ræða sviðslista-
viðburð fyrir alla Íslendinga og
leitast hann við að koma til móts
við „leikhúsþarfir“ landans með
sýningunni.
Uppleggið er að sönnu óvenju-
legt, en í samvinnu við Félags-
vísindastofnun Háskóla Íslands
hefur leikhópurinn látið gera
skoðana könnun á því hvað
Íslend ingar vilja sjá á sviði.
Sýning ársins er svo unnin beint
upp úr niðurstöðunum sem fengust
frá 1.400 manna úrtakinu. Ragnar
segir ýmislegt hafa komið í ljós
varðandi leikhúsóskirnar. Til
að mynda kjósa þeir sem fylgja
Framsóknarflokknum að málum
helst að hafa leikara léttklædda
á sviðinu, karlmenn vilja upp-
lifa reiði í leikhúsi, kvenfólk kýs
heldur ást, og reyndar ellilífeyris-
þegar einnig, og fleira í þeim dúr.
„Svo voru þátttakendur líka
spurðir um eftirlætis leikara og
leikkonur sínar. Í framhaldi af því
fengum við þau Ilmi Kristjáns-
dóttur og Örn Árnason til liðs
við okkur og þau leika í atriði
sem allir vilja sjá. Einnig eru
atriði sem enginn vill sjá sam-
kvæmt rannsókninni, en í niður-
stöðum hennar kom meðal annars
fram að nokkur munur er á því
hvernig lýsing hentar kynjunum.
Konur vilja síst sjá litina gulan og
appelsínu gulan á sviðinu en karlar
vilja ekki sjá bláan, fjólubláan og
bleikan,“ útskýrir Ragnar.
Hann bætir við að vonir hópsins
standi til að sýningin sé vinaleg,
áhugaverð og geri gagn, en hún
er unnin í mikilli samvinnu allra
meðlima hópsins eins og fyrri
sýningar. kjartan@frettabladid.is
ÞAÐ SEM ÍSLEND-
INGAR VILJA SJÁ
SÝNING ÁRSINS Ragnar Bragason, annar frá vinstri í fremri röð, segir vonir sviðslista-
hópsins 16 elskendur standa til að sýningin sé vinaleg, áhugaverð og geri gagn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ljóðatónleikar Gerðubergs verða endurvaktir í dag, 3.
mars, klukkan 15, eftir sjö ára svefn. Þar koma fram Signý
Sæmundsdóttir sópransöngkona og systir hennar Þóra Fríða
Sæmundsdóttir píanóleikari. Á efnisskránni verða sívinsæl,
íslensk sönglög. Meðal höfunda má nefna Sigvalda Kaldalóns,
Karl O. Runólfsson, Jón Þórarinsson og Árna Thorsteinsson.
Signý og Þóra Fríða eiga langt og farsælt samstarf að baki.
Mörg laganna sem þær flytja á laugar daginn hafa reglulega
verið á efnisskrá þeirra bæði hérlendis og erlendis.
Aðgangseyrir á tónleikana er 2.000 krónur en 1.500 fyrir
eldri borgara og námsmenn.
Íslensk sönglög í Gerðubergi
SYSTURNAR Signý og Þóra Fríða flytja sívinsæl íslensk
lög í Gerðubergi.
Nemendaópera Söng skólans
í Reykjavík sýnir Álfa-
drottninguna eftir Henry
Purcell í Gamla bíói, leik-
húsi í dag, 3. mars klukkan
15.30. Flytjendur eru allir
nemendur við framhalds- eða
háskóladeild Söngskólans
og langt komnir í námi, að
sögn Ásrúnar Davíðsdóttur
aðstoðar skólastjóra Söngskól-
ans. „Þetta eru söngvarar sem
við eigum eftir að heyra meira
í í framtíðinni,“ segir hún.
„Góður og glæsilegur hópur.“
Álfadrottningin er, ásamt
Arthúr konungi, það verk sem
kunnast er af svo nefndum
maskleikjum sem voru í tísku á Englandi við upphaf óperunnar í
Evrópu. Verkið er unnin upp úr Jónsmessunæturdraumi Shakespeares
og var frumsýnt 1692 en hefur aldrei verið flutt í heild á Íslandi. Hins
vegar hafa oft hafa verið fluttir úr því kaflar og svo verður einnig nú.
Stjórnendur verksins í dag eru Janet Haney píanóleikari sem er, að
sögn Ásrúnar, sérhæfð í að vinna með söngvurum og kann meira og
minna öll óperuhlutverk, auk þess að spila á píanóið – og Sibylle Köll,
tónlistar- og ballettkennari sem sér um listrænar hreyfingar fólksins
á sviðinu.
Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík hefur starfað frá 1982 og á
þeim tíma sett upp þrjátíu og fjórar sýningar – Álfadrottningin er sú
þrítugasta og fimmta. - gun
Álfadrottning á svið
SUNGIÐ AF INNLIFUN Flytjendur eru allir
langt komnir í námi við Söngskólann í
Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EINVÍGI ALDARINNAR Í tilefni þess að í ár eru liðin fjörutíu ár frá skákeinvígi
Fischers og Spasskís í Laugardalshöll má sjá sýninguna Einvígi aldarinnar, Fischer og
Spassky – 40 ár í Horni á 2. hæð í Þjóðminjasafni Íslands. Á sýningunni eru munir og
myndir sem tengjast skákeinvíginu 1972. Sýningin stendur frá 3. mars til hausts 2012.