Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 96

Fréttablaðið - 03.03.2012, Page 96
3. mars 2012 LAUGARDAGUR56 45 ára afmælistónleikar Skóla- hljómsveitar Kópavogs fara fram á morgun, sunnudaginn 4. mars, klukkan 17 í Eldborgarsal Hörpu. Alls koma fram um 150 börn og unglingar á aldrinum 9 til 19 ára og er hópnum skipt í þrjár hljómsveitir eftir aldri og getu. Æfingar hafa staðið í allan vetur. Tónlist af ýmsum toga, bæði gömul og ný, er á boðstólum á tónleikunum. Af efnis skránni má nefna mars úr Tannhäuser eftir Wagner, lög eftir Sigfús Hall- dórsson og Mugison, J.S. Bach og Holst, Strauss-valsa og ýmis tónverk samin sérstaklega fyrir blásarasveitir. Fyrstu æfingar Skólahljóm- sveitar Kópavogs voru á haustmán- uðum árið 1966 en afmælisdagur sveitarinnar er ávallt miðaður við fyrstu tónleikana sem fram fóru við Kársnesskóla þann 22. febrúar 1967. Hljómsveitin hefur alla tíð verið ein af virkustu skólahljóm- sveitum landsins og hefur haldið fjölda tónleika bæði innan lands og utan. Stjórnandi er Össur Geirsson. 45 ára afmæli í Hörpu 45 ÁRA Hluti Skólahljómsveitar Kópavogs á Vínartónleikum. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Laugardagur 03. mars 2012 ➜ Tónlist 13.00 Tónlistarveisla verður haldin í Salnum, Kópavogi. Kennarar Tónlistar- skóla Kópavogs standa fyrir tvennum tónleikum í TKTK tónleikaröðinni. Almennt verð á tónleikana er kr. 1.000, en frítt er fyrir nemendur skóland, for- ráðamenn þeirra og öll börn 12 ára og yngri. 13.00 Skuggamyndir frá Býsans spila fyrir gesti og gangandi á 2.hæð Hörpu. Tónleikarnir eru í samstarfi við Amnesty International undir yfirskriftinni Lykillinn að framtíð þeirra. Aðgangur er ókeypis. 15.00 Maya Dunietz verður með lifandi flutning í sal Kaldalóns í Hörpu, sem hluti af Tectonics tónlistarhátíðinni. 15.00 Signý Sæmundsdóttir sópran- söngkona heldur tónleika í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi ásamt systur sinni, píanóleikaranum Þóru Fríðu Sæmundsdóttur. Á efnisskránni verða sívinsæl íslensk sönglög eftir nokkur af okkar fremstu tónskáldum. Aðgangs- eyrir er kr. 2.000, en kr. 1.500 fyrir eldri borgara og námsmenn. 16.00 S.L.Á.T.U.R og Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja Horpma III eftir Guðmund Stein Gunnarsson, og The Ventriloquist eftir Charles Ross í sal Norðurljósa í Hörpu. Tónleikarnir eru hluti af tónlistar- hátíðinni Tectonics í Hörpu. 16.00 Mathias Susaas Halvorsen píanóleikari spilar verk eftir Mozart, Schuman og Poulenc á Gljúfrasteini. Aðgangur er kr. 1.000 og eru allir vel- komnir á meðan húsrúm leyfir. 17.00 Herdís Anna Jónasdóttir sópran ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og Drengjakór Reykjavíkur, frumflytur verk Frank Denyer, The Colours of Jellyfish í Eldborgarsal Hörpu. Tónleikarnir eru hluti af tónlistarhátíðinni Tectonics. 17.00 Sinfóníuhljómsveit Íslands, ásamt Katie Buckley, hörpuleikara, frumflytja verk Jesper Pedersen, Electric Light Orchestra. Tónleikarnir eru hluti af tónlistarhátíðinni Tectonics í Hörpu. 18.30 Í Norðurljósasal Hörpu flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands, auk Berg- þórs Pálssonar, sögumanns, verk Bene- dict Mason, third music for a european concert hall. Tónleikarnir eru hluti af tónlistarhátíðinni Tectonics í Hörpu. 19.30 Á Nasa verður haldinn stærsti þungarokksviðburður Reykjavíkur þegar sex íslenskar þungarokksveitir keppast um að verða fulltrúi Íslands á Wacken Open Air í ágúst. Miðaverð er kr. 2.500. 20.00 John Tilbury, píanóleikari, flytur verk Morton Feldman, Palais De Mari, í Eldborgarsal Hörpu. Að því loknu slæst Oren Ambarchi, rafmagnsgítarleikari, í hópinn og flytja þeir spunadúett. Tón- leikarnir eru hluti af tónlistarhátíðinni Tectonics í Hörpu. 21.00 Bar 11 býður upp á Rockabillí tónleika í hæsta gæðaflokki. Rockabillí- kóngurinn Smutty Smiff mætir með hljómsveit sína Smutty’s 302. Aðgangur er ókeypis. 22.00 Helgi Björns og Reiðmenn Vindanna halda tónleika á Græna Hattinum, Akureyri. Miðaverð er kr. 2.900. 22.00 Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar, Skólahljómsveit Austurbæjar, Skólahljómsveit Kópavogs og Skóla- hljómsveit Mosfellsbæjar og Grafarvogs flytja verk Luciano Berio, Accordo for four brass bands í anddyri Hörpu. Tón- leikarnir eru hluti af tónlistarhátíðinni Tectonics í Hörpu. 22.30 Lokahóf Tectonics tónlistarhá- tíðarinnar verður haldið í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. 23.00 Magnús Einarsson og Tómas Tómasson skemmta á Ob-La-Dí, Frakka- stíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. ➜ Tónleikar 20.00 Baldursbræður efna til skemmtikvölds þar sem þemað verður Bítlarnir. Hljómsveitin Baldur leikur og syngur Bítlalög, ásamt Karlakór Odd- fellowbræðra. Stúlknakvartett syngur dans ★★★ ★★ ÚPS! Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan sýnir í Tjarnarbíói Leikstjóri: Víkingur Kristjánsson. Flytjendur: Hannes Óli Ágústsson, Katrín Gunnarsdóttir, Melkorka Sigríður og Ragnheiður Bjarnar- son, tónlist: Gísli Galdur Þorgeirs- son, leikmynd: Tinna Ottesen. Fimmtudagskvöldið 1. mars frum- sýndi Íslenska hreyfiþróunarsam- steypan þriðja dansleikhúsverkið sitt þar sem sóttur er innblástur í verk Williams Shakespeares. Í þetta sinn voru gamanleikirnir skoðaðir í því markmiði að velta fyrir sér húmor þá og nú. Í verkinu voru teknar til um fjöllunar allar gerðir húmors, öll trixin í bókinni sýnd. Þátttakendurnir duttu á bossann, runnu á bananahýði, eltust við draumsýnir og mis- skilning, sögðu grófa og niðrandi brandara og grínuðust hvert með annað. Þeir voru klaufar, trúðar og allt það annað sem finna má í gaman þáttum, gamanleikritum, gamanmyndum, uppistandi og öðru því sem gaman á að vera að. Efnislega var Shakespeare í fjar- lægum bakgrunni þó að vel mætti sjá beina skírskotun í verk hans í sumum atriðunum. Andi hans sveif þó yfir vötnum, ekki síst vegna snilldarlega gerðra búninga. Sviðsmynd verksins var falleg og gaf verkinu klaufalegan en um leið ævintýralegan blæ. Lýsingin vann algjörlega með sviðsmyndinni og tónlistin var þegar henni bar en annars ekki. Umfjöllunarefni dans verksins Úps! er grín í víðri merkingu. Sýningin sjálf er líka partur af umfjöllunarefninu að því leyti að hún er uppfull af sviðsettum klaufaskap, mistökum og vand- ræðagangi sýnendanna. Ofan á allt þetta er æfingaferlið og undir- búningur sýningarinnar partur af gríninu. Afhjúpaðir eru árekstrar sem upp koma í mótunarferlinu meðal annars á milli listformanna, leiklistar og dans, gert er grín að samspili þessara listforma sem og samvinnu einstaklinganna sem unnu að sýningunni. Þessi marglaga efnistök kölluðu á margbreytilega fram setningu efnisins. Það komu fram kaflar þar sem skýr kóreógrafía réð ríkjum, sýnendur komu líka fram og fluttu sín atriði líkt og uppi- stand, talað var til áhorfenda í fyrir lestrastíl og gripið var til tækni trúðsins, leikarans og dans- arans. Verkið náði því ekki að renna sem fastmótuð heild heldur upplifðist sem samansafn atriða sem öll áttu það sameiginlegt að vera grín. Brotin voru skemmti- leg og í sumum þeirra mátti finna hárbeittar athugasemdir innan gamanseminnar. Það að safna saman öllu þessu gríni á einn stað og gera síðan grín að því er í sjálfu sér frábær hugmynd sem hópnum tókst að vinna vel úr. Hugmyndin kallaði samt á sterkari efnistök því að grín er dauðans alvara þó að það sé til gamans gert. Frammistaða þátttakandanna var ágæt. Þau skiluðu sínu á afslappaðan hátt og mynduðu góða heild. Sýningin Úps! ber þess þó merki, eins og flestar þær dans- sýningar sem settar eru upp hér á landi, fyrir utan sýningar Íslenska dansflokksins, að danslistamenn fá ekki nægilega mörg tækifæri til að halda sér við í listinni. Því til þess að vera atvinnumanneskja í einhverri grein verður að stunda hana oft og mikið allan ársins hring. Sesselja G. Magnúsdóttir Niðurstaða: Efnisval sýningarinnar er frumlegt og aðstandendum hennar tekst að skemmta áhorfendum með uppátækjum sínum. Það vantar samt upp á skýrari þráð til að skapa sterkari heild. Smá djók KLAUFAR, TRÚÐAR OG ALLT ANNAÐ Umfjöllunarefni Úps! er grín í víðri merkingu. LA BOHÈME GIACOMO PUCCINI HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR · GISSUR PÁLL GISSURARSON / ÞÓRA EINARSDÓTTIR · GARÐAR THÓR CORTES ÁGÚST ÓLAFSSON · HRÓLFUR SÆMUNDSSON · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR · BERGÞÓR PÁLSSON HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON · LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES LEIKMYND: WILL BOWEN · BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR · LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON FÖSTUDAGINN 16. MARS KL. 20 - FRUMSÝNING LAUGARDAGINN 17. MARS KL. 20 - 2. SÝNING LAUGARDAGINN 31. MARS KL. 20 - 3. SÝNING SUNNUDAGINN 1. APRÍL KL. 20 - 4. SÝNING LAUGARDAGINN 14. APRÍL KL. 20 - 5. SÝNING FÖSTUDAGINN 20. APRÍL KL. 20 - LOKASÝNING MIÐASALA Í HÖRPU OG Á WWW.HARPA.IS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.