Fréttablaðið - 03.03.2012, Blaðsíða 98
3. mars 2012 LAUGARDAGUR58
folk@frettabladid.is
50%
lifsstill@frettabladid.is
58
Tekkhúsgögn frá sjöunda
áratugnum njóta mikilla
vinsælda. Kreppan varð til
þess að fólk kaupir mikið af
notuðum húsgögnum og
lætur gera þau upp hjá
bólstrurum.
HEIMILI „Það eru rosalega
skemmtilegar breytingar í gangi,“
segir húsgagnasalinn Arnar
Laufdal Aðalsteinsson.
Notuð húsgögn njóta gríðar-
legra vinsælda í dag og þá sér-
staklega tekkhúsgögn. Arnar
hefur selt notuð húsgögn í 20 ár
og rekur í dag verslunina Notað
og nýtt í Kópavogi. Hann segir
stemninguna hafa gjörbreyst á
síðustu árum, fólk vilji fá peninga
fyrir það sem það á og að ásókn-
in í notuð húsgögn hafi stóraukist.
„Ég byrjaði í kringum 1990 með
verslun sem hét Skeifan - hús-
gagnamiðlun,“ segir Arnar. „Ég
rak hana í 15 ár og hætti 2007, þá
var orðið mjög lítið að gera í þessu.
Þá henti fólk þessu gamla drasli og
keypti nýtt. Svo byrjaði ég aftur
nú í haust og mér finnst landslagið
hafa gjörbreyst.“
Gamalt tekk nýtur mikilla vin-
sælda, sérstaklega hjá ungu fólki
að sögn Arnars. Hann fær tekkið
aðallega úr dánarbúum og segir
fólk meðvitað um hversu vinsæl
húsgögnin eru. „Ég er oft í smá
erfiðleikum með að ná fólki niður á
jörðina með verðið á þessu. Sumir
halda að ef þeir eigi tekk skáp, þá
séu þeir orðnir milljóna mæringar,“
segir Arnar í léttum dúr. „En svo
er tekk ekki sama og tekk. Þetta
gamla danska er til dæmis vin-
sælla en þetta nýrra sem hefur
verið framleitt í Noregi.“
Það hefur einnig færst í aukana
að fólk láti bólstra gömul hús-
gögn. Hafsteinn Sigurbjarnason í
HS bólstrun tekur undir það. „Það
hefur aukist. Fólk er farið að spá
meira í hvort það sé með vandað
upplag af húsgögnum í höndunum
og hvort það borgi sig að taka þau
í gegn. Yfirleitt með vandaðri og
betri húsgögn þá borgar það sig,“
segir hann.
atlifannar@frettabladid.is
Fólk kaupir og lætur gera
upp gömul tekkhúsgögn
MATUR Þrír erlendir kokkar keppa
í dag í Hörpu um titilinn kokkur
ársins á hátíðinni Food and Fun.
Þeir munu athafna sig í eldhúsi
Hörpudisksins og keppnin verður
sýnd beint á sjónvarpsskjáum sem
verða í höllinni.
„Þetta er nýbreytni í anda sjón-
varpsþáttanna sem eru í gangi.
Þetta er svona Gordon Ramsay-
fílingur,“ segir Jón Haukur
Baldvins son hjá Food and Fun.
Kokkarnir munu elda forrétt, lamb
og bleikju en koma með eftirrétt
með sér. Þrír dómarar munu sitja
við borð og dæma matinn sem þeir
elda. „Fólk getur fylgst með þeim á
meðan þeir eru að smakka og getur
kynnst hvernig þeir dæma,“ segir
Jón Haukur. Spurður hvort mikið
verði um öskur og læti líkt og í sjón-
varpsþáttum Ramsay efast hann um
það. „Þetta er ekki sá stíll. Þeir eru
það frægir, nánast allir Michelin-
kokkar. Þeir eru á sama kaliberi og
Gordon, þannig að það verður enginn
Gordon að öskra á þá. Það fer frekar
að þeir öskri á Gordon.“
Sautján veitingastaðir taka þátt
í Food and Fun, sem er haldin í
ellefta sinn og lýkur á morgun.
Að sögn Jóns Hauks hafa bókanir
sjaldan verið jafn margar og núna.
Hann segir öruggt að hátíðin verði
haldin til 2014 enda var nýlega
gerður tveggja ára samningur við
Samtök iðnaðarins, Icelandair og
Reykjavíkur borg. Iceland Naturally
er einnig stór styrktaraðili hátíðar-
innar.
Keppnin í dag hefst klukkan 12 og
stendur yfir til 15 og eru allir boðnir
velkomnir í Hörpuna að fylgjast
með. - fb
Beint úr eldhúsinu
Í ELDHÚSINU Jakob Mielcke, einn af erlendu kokkunum sem taka þátt í Food and
Fun-hátíðinni, að störfum í eldhúsinu. MYND/SIGURJÓN RAGNAR
TEKKIÐ VINSÆLT Arnar hefur tekið eftir stóraukinni ásókn í notuð húsgögn eftir 20 ár í bransanum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Opinn sjóðfélagafundur
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar
Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar
Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar
Lífeyrissjóður Neskaupstaðar
boða til sameiginlegs sjóðfélagafundar á Grand Hótel við Sigtún
þann 13. mars nk. kl. 17
Farið verður yfir rekstur og afkomu Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og lífeyris-
sjóða í hans rekstri í ljósi nýútkominnar skýrslu Landssamtaka lífeyrissjóða um úttekt á
fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda
bankahrunsins 2008.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Nánari upplýsingar og dagskrá verður birt síðar á heimasíðu Lífeyrissjóðs starfsmanna
sveitarfélaga: www.lss.is og verður þar krækja þar sem hægt verður að fylgjast beint
með fundinum á vefnum.
Hægt verður að fylgjast beint með fundinum þann 13. mars á slóðinni:
http://www.samband.is/um-okkur/sjodfelagafundur-lss/
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga - Sigtúni 42 – 105 Reykjavík – sími 5 400 700
lss@lss.is – www.lss.is
AF BRJÓSTAHALDARAEIGN kvenna liggur ónotuð í skápunum. Þetta sýna breskar
kannanir á vegum fyrirtækisins Under Armour en helstu ástæður þessa ku vera að konur taka
útlitið fram yfir þægindi undirfatnaðar við kaup en nota brjóstahaldarann svo aldrei af því hann er
óþægilegur.
HEILSA Eldra fólk á auð veldara
með svefn og þjáist síður af
svefn truflunum eða þreytu ef
marka má nýja rannsókn sem
framkvæmd var í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum.
Niðurstöður rannsóknarinnar,
sem náði til 155.000 full orðinna
einstaklinga, voru birtar í blaðinu
SLEEP í síðustu viku og báru
með sér að fólk 80 ára og eldra
hefði yfir minnstu að kvarta í
þessum efnum. Svo virðist sem
svefnvandamál aukist hjá fólki
á aldrinum 40 og 59 ára, sérstak-
lega konum, en minnka svo aftur.
„Þessar niðurstöður eru andstætt
við það sem flestir halda,“ sagði
Dr. Michael Grandner sem stýrði
rannsókninni og bætti við að þær
kölluðu eftir því að skoða þyrfti
það sem vitað væri um svefn eldra
fólks.
Rannsóknin var framkvæmd
þannig að lagðar voru spurningar
fyrir þátttakendur í gegnum síma
og þeir látnir meta sig sjálfir.
Grandner viðurkenndi því að minni
væntingar eldra fólks til svefns
síns gætu haft áhrif á niðurstöður.
Áttræðir sofa betur
MINNI VANDAMÁL. Gera má ráð fyrir að svefninn batni með aldrinum.
MATUR Spergilkál er ekki aðeins hollt og gott, heldur getur það líka
spornað gegn og hjálpað til við að lækna krabbamein.
Áður hafa verið gerðar rannsóknir þar sem komið hefur
í ljós að spergilkál er fullt af efninu súlfúr sem vinnur
gegn vissum genum sem stuðla að krabbameini.
Meðal annars birtist rannsókn árið 2010 þar sem
súlfúr drap brjóstakrabbameinsfrumur í músum
á rannsóknarstofu og náði einnig að koma í veg
fyrir að nýjar mynduðust.
Í nýrri rannsókn sem birtist í blaðinu Clinical
Epigenetics hefur þó verið varpað ljósi á að súlfúr
getur haft áhrif á krabbamein í gegnum svo-
kallaða DNA-metýleringu. Dr. Emily Ho, sem var
ein þeirra sem stóð að rannsókninni, sagði DNA-
metýleringu virka þannig að hún hjálpi til við
að slökkva á vissum genum og stjórni þannig
hvaða genahlutar hafi samskipti við frumur
líkamans. Þegar krabbamein myndast er það
vegna þess að þessi samskipti ruglast.
Spergilkál gegn
krabbameini
FULLT AF SÚLFÚR Spergilkál
er fullt af efninu súlfúr, sem
vinnur gegn krabbameins-
frumum.