Fréttablaðið - 03.03.2012, Síða 100
3. mars 2012 LAUGARDAGUR60
lifsstill@frettabladid.is
60
Svartur á leik var frumsýnd á fimmtudagskvöld. Fjöldi
fólks lagði leið sína í Smárabíó á myndina, sem gagn-
rýndur hafa gefið frábæra dóma.
SVARTUR Á LEIK
FRUMSÝND VIÐ
MIKINN FÖGNUÐ
REFFILEGIR Óttarr Proppé og Björn Blöndal mættu í vettvangs-
ferð í Kópavog. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GÓÐIR SAMAN Stefán Máni, höfundur bókarinnar Svartur á leik, og framleiðandinn
Þórir Snær stilltu sér upp.
GOTT SAMSTARF María Birta, sem leikur eitt af aðalhlutverkunum í Svartur á leik, og Óskar Þór Axelsson, leikstjóri myndarinnar,
fögnuðu góðu samstarfi á frumsýningunni.
VÍGALEGIR Steindi Jr. og Dóri DNA voru hvorki erfiðir né með
læti á frumsýningunni.
FERSKAR Dögg Hjaltalín og Rakel Garðarsdóttir voru glæsilegar að
vanda.
LÍFRÆN Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson mættu og
könnuðu eflaust hvort lífrænt popp væri í boði.
VEL GREIDDIR Sigurður Kári Kristjánsson og Heiðar Már Guðjónsson voru fínir.
STJÖRNUR Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Damon Younger horfðu á
sjálfa sig, enda aðalleikarar myndarinnar.
„Við erum ekki að spila týpíska þungarokks tónlist,
og höfðum því til töluvert breiðari áheyrenda-
hóps,“ segir Ási Þórðarson, trommuleikari hljóm-
sveitarinnar Muck.
Muck gaf frá sér plötuna Slaves nú í febrúar og
hefur hún verið að fá góða dóma. Um er að ræða
fjórtán laga plötu sem hefur verið í vinnslu í tvö ár.
„Við erum búnir að vera að nostra mikið við hana
og hún hefur breyst mjög mikið frá því að tökur
hófust. Lögin voru upphaflega mun hægari og með
allt öðrum áherslum,“ segir Ási og bætir við að á
plötunni sé meðal annars að finna fjögur lög sem
voru gefin út á svokölluðu tour demo árið 2009, en í
allt öðrum búningi.
Hljómsveitin er skipuð fjórum strákum á
aldrinum 21 til 23 ára. Karl Torsten Ställborn og
Indriði Arnar Ingólfsson annast söng og gítarspil,
Loftur Einarsson spilar á bassa og Ási Þórðarson
spilar, eins og áður segir, á trommur.
Ási segir strákana hlusta mikið á hljóm sveitir
á borð við Sonic Youth og að það skíni í gegn á
plötunni. „Hvort sem fólk heyrir það eða ekki, þá
hafa hljómsveitirnar sem maður hlustar á alltaf
áhrif á tónlistina sem maður gerir,“ segir Ási.
Nóg er fram undan hjá hljómsveitinni. Útgáfutón-
leikar plötunnar Slave verða í kvöld á Gauki á Stöng
og í framhaldinu er fjöldi tónleika og jafnvel lítill
Íslandstúr í maí með dönsku hljómsveitinni Hexis.
„Við viljum bara spila eins mikið og við getum,
það er það eina sem við viljum gera,“ segir Ási að
lokum. - trs
Ekki týpískt þungarokk
MUCK Loftur, Ási, Kalli og Indriði eru vel gíraðir fyrir útgáfu-
tónleika plötu sinnar Slaves á Gauk á Stöng í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
· Humar- og krabbamósaík ·
· Ljós hörpudiskur og tómata crème brûlée ·
· Steiktur lambabógur „confit“ og lambahryggur ·
· Croque-monsieur fourme d‘Ambert/Mascarpone ·
· Súkkulaði-Stradivarius með „Pur Caraïbes“ súkkulaði ·
Gestur Perlunnar í ár er Michelinstjörnukokkurinn
Philippe Girardon sem hefur þjálfað flest alla íslenska
matreiðslumeistara sem hafa tekið þátt í hinni
heimsþekktu Paul Bocuse keppni.
í Perlunni
Sími: 562 0200 · perlan@perlan.is · www.perlan.is
MÁNUÐIR eru síðan tónlistarkonan Rihanna sagði skilið við rapparann
Chris Brown en í nýlegu viðtali við breskan sjónvarpsþátt ljóstraði söngkonan
því upp að hún væri loksins tilbúin í nýtt samband.
36