Fréttablaðið - 14.03.2012, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 14.03.2012, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 14. mars 2012 27 FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Helga Margrét Þorsteinsdóttir er farin að horfa til sumarsins eftir vel heppnað innanhússtímabil og fyrsta skrefið er að komast í æfingabúðir í sólinni í Ástralíu. Gamalgróin meiðsli aftan í læri eru enn að gera vart við sig og munu því enn á ný hafa áhrif á leið Helgu að aðalmarkmiði sínu í ár sem er að komast inn á Ólympíuleikana í London í sumar. „Þetta er aðeins búið að breytast. Þetta átti upphaflega að vera keppnisferð en núna verður þetta meiri æfingabúðir en keppni,“ segir Helga Margrét. „Ég fer samt og tek með mér alla skó og keppnisgalla. Ég setti sjálfri mér það skilyrði eftir EM síðasta sumar þar sem ég þurfti að hætta vegna meiðsla að ég ætlaði aldrei aftur að byrja í sjöþraut ef mér fyndist ég ekki vera alveg tilbúin,“ segir Helga en meiðslin eru enn að angra hana. „Það hefur gengið vel í vetur en ég er alltaf að glíma við meiðsli aftan í læri. Við ákváðum að það væri ekki það sem ég gæti alltaf verið að æfa með. Ég er í stöðugri meðhöndlun alla daga og ég ætla ekki að láta æfingarnar vinna á móti henni. Meðhöndlunin hefur því forgang núna,“ segir Helga en hitinn í Ástralíu gæti haft góð áhrif. „Hitinn hefur alltaf haft rosalega góð áhrif á kroppinn á mér. Maður er orðinn svo hvítur og grár eitthvað hérna núna þótt að sólin sé aðeins farin að skína. Það verður gott að fá smá sól,“ segir Helga í léttum tón. Helga Margrét sá fyrir sér að ná Ólympíulágmarkinu strax í Ástralíu en það gæti þurft að bíða á meðan hún er að ná sér góðri. „Ég þarf að tækla þetta lágmark svolítið öðruvísi. Auðvitað er það búið að vera markmiðið rosalega lengi og er náttúrulega markmið- ið ennþá. Ef maður ætlar samt að einblína bara á það og láta allt annað fara til andskotans þá geng- ur það ekki. Það kemur bara ef það kemur,“ segir Helga um Ólymp- íulágmarkið sem er 5950 stig. Íslandsmetið hennar frá því í júní 2009 er 5.878 stig. Helga vill frek- ar mæta heil inn í sumartímabilið í maí í stað þess að taka einhverja áhættu í Ástralíu. „Ég lít mjög björtum augum á þetta allt saman hvort sem að ég keppi í Ástralíu eða ekki. Ég er búin að vera með þessi meiðsli meira eða minna í tvö ár og ég get alveg búist við því að það muni taka langan tíma að fara þegar þetta er búið að vera svona lengi,“ segir Helga en hún viðurkennir að þetta reyni á andlegu hliðina. „Ég er orðin mjög þreytt á þessu og vera alltaf að æfa og keppa ofan í þetta. Núna langar mig að losna alveg við þetta og fara þá aftur af stað á fullu. „Hamurinn“ ræður svolítið ferðinni núna. Þegar Ólympíulágmarkið hangir svona yfir manni þá verður maður að taka einn dag í einu. Ég hugsa ekkert um þetta Ólympíulágmark því það má ekki. Eina sem maður getur haft áhrif á er núið,“ segir Helga að lokum. ooj@frettabladid.is TEK MEÐ MÉR ALLA SKÓ Helga Margrét Þorsteinsdóttir er á leiðinni í 3 vikna æfingabúðir til Ástralíu. Innanhússtímabilið gekk vel og Helga horfir nú til þess að ná lágmarkinu inn á ÓL í London í sumar. Þessa dagana er það þó „hamurinn“ sem ræður ferðinni. HELGA MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR MYND/HANS UURIKE FÓTBOLTI Juan Mata og félagar hans í Chelsea eru síðasta von Englands í Meistaradeildinni en til þess að komast áfram í átta liða úrslitin þarf Chelsea-liðið að vinna upp 1-3 tap á móti ítalska liðinu Napoli í fyrri leiknum á Ítalíu. „Við munum sækja frá fyrstu mínútu. Við erum með góða sóknarmenn og ætlum að pressa þá framarlega. Það er ekkert ómögulegt í fótbolta og við höfum áður náð góðum úrslitum á Stamford Bridge,“ sagði Mata. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en þá reynir líka á Real Madrid sem gerði 1-1 jafntefli í fyrri leiknum við CSKA Moskvu. - óój Chelsea í Meistaradeildinni: Munu sækja frá fyrstu mínútu JUAN MATA Fagnar hér marki sínu í fyrri leiknum. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.