Fréttablaðið - 14.03.2012, Blaðsíða 18
FÓLK|
Að fara sem nordjobbari er ógleym anleg reynsla,“ segir Val-dís Ösp Árnadóttir, starfsmaður
hjá Nordjobb á Íslandi. „Nordjobbarar
kynnast menningu og þjóð, læra nýtt
tungumál, eignast fullt af nýjum vinum
og öðlast einnig persónulegan þroska.“
Allir á aldrinum 18 til 28 ára geta sótt
um sumarstarf gegnum Nordjobb. Um-
sækjandi fær aðstoð við að finna vinnu
og húsnæði í einhverju Norðurlandanna
og auk þess heldur Nordjobb úti tóm-
stundastarfi.
Valdís segir Nordjobb góðan valkost
fyrir íslensk ungmenni í dag þegar
mikið sé um atvinnuleysi yfir sumar-
mánuðina. „Umsóknartímabilið er
komið á gott skrið og mörg íslensk ung-
menni stefna á að finna sér vinnu á
Norðurlöndunum í sumar. Umsóknar-
frestur er til 31. maí en í dag stöndum
við einnig fyrir námskeiði fyrir þá sem
stefna á að fara út sem nordjobbarar,“
útskýrir Valdís. Á námskeiðinu verður
farið yfir hvernig gera má ferilskrá og
hvað þarf að hafa í huga þegar flutt er
til nýs lands. Námskeiðið hefst klukkan
16.30 í Húsi Norræna félagsins.
■ TRYGGVI GUNNARSSON
23 ÁRA NEMI Í RAFMAGNSVERK-
FRÆÐI VIÐ HÍ
FÓR SEM NORDJOBBARI TIL FINNLANDS
SUMARIÐ 2011.
„Ég fór að vinna í úthverfi Helsinki,
fyrst við garðyrkju og síðan við smíð-
ar. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór
þetta lengi einn að heiman en ég fékk
enga heimþrá, gleymdi mér bara í því
að hafa gaman,“ segir Tryggvi sem
var tæpa þrjá mánuði úti. Hann kunni
ekki stakt orð í finnsku þegar hann fór
út en bjargaði sér á ensku. „Finnska
er ekki auðvelt tungumál en ég lærði
orð og orð hjá vinnufélögunum. Nor-
djobb bauð líka upp á smá tungumála-
kennslu.“ Tryggvi leigði íbúð í miðri
Helsinki með sex öðrum strákum til
að byrja með en flutti svo á stúdenta-
garðana í Espo. Hann vann til klukkan
fjögur á daginn og fór í ferðir með
Nordjobb hópnum, meðal annars til
Tallin í Eistlandi. „Ég var eini Íslend-
ingurinn í Helsinki en í ferðinni hitti
ég íslendinga sem voru annars staðar
í Finnlandi. Ég held ennþá sambandi
við krakkana sem ég kynntist úti, bæði
nordjobbara og strákana sem ég leigði
með,“ segir Tryggvi og mælir með því
að eyða sumri sem nordjobbari. „Já,
hiklaust! Ekki til að safna peningum
kannski en til að safna reynslu. Mér
fannst til dæmis hressandi að taka lest
í vinnuna á morgnana, það er eitthvað
sem maður á ekki að venjast á Íslandi.“
■ ÁSA KRISTÍN EINARSDÓTTIR
22 ÁRA NEMANDI Í MÁLVÍSINDUM Í HÍ
FÓR SEM NORDJOBBARI TIL SVÍÞJÓÐAR
SUMARIÐ 2010.
„Ég fór að vinna með öldruðum í Stokk-
hólmi. Ég talaði ekki sænsku áður en
las og æfði mig sjálf áður en ég fór út.
Þetta var „eldgosasumarið mikla“ og
fólki fannst spennandi að ég kæmi frá
Íslandi. Ég sat oft bara heilu dagana og
spjallaði við gamla fólkið og lærði auð-
vitað mikið á því,“ segir Ása. Hún kunni
vel við sig í Stokkhólmi.
„Þetta er yndisleg borg. Ég hafði tæki-
færi til að ferðast um landið en ég var að
langmestu leyti í borginni. Ég hafði uppi
á tveimur íslenskum stelpum sem voru
líka nordjobbarar og við vorum mikið
saman, stunduðum kaffihúsin og kíktum
í H&M,“ segir Ása og hlær. Spurð hvort
hún hafi fengið heimþrá viðurkennir hún
að erfitt hafi verið að fara frá mömmu.
„Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór
ein að heiman. Fyrstu vikuna grenjaði
ég allan tímann en svo jafnaði ég mig.
Ég man að ég fékk nett taugaáfall þegar
ég þurfti fyrst að fara út í búð að kaupa
í matinn og hringdi grátandi í mömmu.
En svo lærði ég inn á þetta,“ segir Ása
og hlær að minningunni. Hún segist
betri manneskja fyrir vikið.
„Ég lærði bara svo margt og væri ekki
sama manneskja og ég er í dag ef ég
hefði ekki farið. Þetta er frábær reynsla
til að læra að standa á eigin fótum.
Henda sér bara út í djúpu laugina.“ ■ rat
STAÐIÐ Á EIGIN FÓTUM
AUKIN TENGSL Nordjobb hefur verið starfrækt frá árinu 1985 til að auka
tengslin milli allra Norðurlandanna sem og að auka þekkingu á tungumálum
þjóðanna og menningu. Allir á aldrinum 18 til 28 ára geta sótt um.
SPENNANDI
Valdís Ösp Árnadóttir,
verkefnisstjóri hjá Nor-
djobb á Íslandi segir
sumarvinnu gegnum
Nordjobb spennandi
valkost fyrir ungmenni
í dag þar sem atvinnu-
leysi sé talsvert yfir
sumarmánuðina.
MYND/STEFÁN
LÆRDÓMSRÍKT
Tryggvi Gunnarsson var
nordjobbari í Finnlandi.
MYND/STEFÁN
YNDISLEGT
Ása Kristín Einars-
dóttir var nordjobbari í
Svíþjóð.
MYND/HAG
HEILLANDI
HÖFUÐBORG
Ása Kristín Einars-
dóttir vann eitt
sumar í Stokkhólmi
gegnum Nordjobb.
NORDICPHOTOS/GETTY
FERÐIR
■ HEILRÆÐI Fyrir sólarlanda-
ferð er gott að aðgæta hvort
nokkuð í farangri hafi gleymst.
Nauðsynlegir smáhlutir eru sól-
arvörn, plástur, verkjalyf, töflur
við brjóstsviða, lítil skæri,
flöskuupptakari, flísatöng,
vörn gegn moskító-flugum og
bakteríudrepandi krem gegn
húðsýkingum. Þeir sem neyta
lyfja daglega ættu að pakka
nokkurra daga skammti í litlar
umbúðir og hafa í handfarangri.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
lindesign.is
sendum frítt
Nánari upplýsingar á utivist.is
eða í síma 562 1000
Höldum Páska í Dalakofanum.
Gönguskíðaferð
Jeppaferð á eigin jeppum
NÝ SENDING AF
SPARIKLÆÐNAÐI
Útsalan að klárast en meiri lækkun
Skipholti 29b • S. 551 0770
NAUÐSYNLEGIR
SMÁHLUTIR