Fréttablaðið - 30.03.2012, Page 12
30. mars 2012 FÖSTUDAGUR12
Föstudagsviðtaliðföstuda
gur Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
F
jöldi ferðamanna á
Íslandi hefur nærri sjö-
faldast á þrjátíu árum
og enn er stefnt að því að
fjölga þeim. Er svigrúm
til þess? Ræður Ísland
við fleiri gesti?
„Já, ég mundi nú halda að við
gætum alveg ráðið við fleiri ferða-
menn,“ segir Árni Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Flugfélags
Íslands og formaður Samtaka ferða-
þjónustunnar. „Kannanir sem hafa
verið gerðar á þolmörkum ferða-
mannastaða sýna að á einhverj-
um stöðum eru ferðamenn farnir
að upplifa það að það séu helst til
margir á staðnum miðað við hverju
þeir hefðu búist við,“ segir Árni.
Það sé hins vegar lykilatriði að
huga að álaginu á umhverfið og
aðstöðuna, göngustíga, salernisað-
stöðu og annað slíkt. „Við þurfum að
gera gangskör að því að byggja upp
aðstöðu á þessum mest sóttu stöð-
um þannig að álagið af komu ferða-
manna verði ekki eins mikið og við
verðum betur í stakk búin til að taka
við þeim. Þess vegna fögnuðum við
því að sjóður um uppbyggingu ferða-
mannastaða var stofnaður á síðasta
ári og vonumst til að þannig verði
meira fé varið til uppbyggingar
staðanna,“ segir Árni.
Ráðstefnugeirinn mikilvægur
Áætlanir um þetta tengjast hinu
megináhersluatriði ferðaþjónust-
unnar næstu árin, að sögn Árna.
Það er að fjölga ferðamönnum yfir
vetrartímann og dreifa þeim þannig
betur yfir árið.
„Það er alveg ljóst að innviðirnir,
eins og hótel og fjárfestingar í bíla-
leigubílum, rútum og öðru, nýtast
ekki vel á heilsársgrunni, sérstak-
lega ekki á landsbyggðinni. Árang-
urinn hefur verið betri á höfuð-
borgarsvæðinu en við eigum samt
töluvert verk að vinna við að ýta
undir það að fleiri komi á veturna.
Það dreifir álaginu og gerir það að
verkum að við getum tekið við fleira
fólki.“
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
tekið höndum saman við stjórnvöld
um átakið Ísland allt árið, en í því
felst að Ísland er fyrst og fremst
markaðssett yfir vetrartímann og
reynt að fjölga viðburðum sem laða
hingað fólk utan háannatíma.
Árni segir að þar spili ráðstefnu-
markaðurinn stórt hlutverk. „Það
eru einmitt ferðamenn sem koma
ekki í júlí og ágúst – þá eru menn
í sumarfríunum sínum en ekki í
vinnuferðum út af ráðstefnum.
Það hefur gengið alveg ágætlega
að efla þann geira og við sjáum
mikla möguleika í því samhengi
með Hörpunni. Framboð á ráð-
stefnusölum af stærri skalanum
var takmarkað þangað til hún kom
til sögunnar.“
Hins vegar sé ráðstefnuhald alls
ekki það eina sem horft sé til varð-
andi vetrarferðamennskuna. „Við
erum auðvitað líka að reyna ná
til þeirra sem fara í frí á veturna.
Það eru styttri ferðir en við þekkj-
um það héðan og annars staðar frá
að fólk gerir ekki síður vel við sig
í gistingu og mat og öðru slíku í
styttri ferðum.“
Vel heppnuð heimboð
Hins vegar þurfi að fjölga mögu-
leikum fólks sem kemur hing-
að að vetri til. „Það er að ýmsu
leyti ágætis afþreyingarframboð
í kringum höfuðborgarsvæðið en
á landsbyggðinni hefur verið til-
hneiging til þess að það sé minna í
boði þegar fer að líða fram á haust-
ið og að söfn og aðrir slíkir staðir
séu síður opnir.“
Þetta hafi þó verið að breyt-
ast ört undanfarinn áratug. „Ég
tek hvalaskoðunina sem dæmi.
Hún var löngum bara yfir sumar-
tímann en núna er verið að keyra
hana nánast allt árið, til dæmis frá
Reykjavík,“ segir Árni. Ýmis önnur
starfsemi sem ekki er beinlínis háð
tíðarfari standi nú til boða og gagn-
gert sé unnið að því að auka hana.
„Í fréttum ekki alls fyrir löngu
var sagt frá hóteli á Mývatni sem
hafði gjarnan verið lokað á vet-
urna en var nú með 50 prósenta
nýtingu í febrúar. Hótel í Reykja-
vík eru komin í 70 til 80 prósenta
nýtingu í janúar og febrúar sem er
bylting frá því sem var. En þetta
er verkefni sem verður ekki klár-
að í einum spretti. Þetta er lang-
hlaup. Þess vegna er mjög gott að
þetta verkefni sé til þriggja ára til
að byrja með. Við erum að reyna
núna að klára fyrsta veturinn og þá
eru tveir eftir.“
Árni nefnir eitt tiltekið verkefni
undir hatti Íslands allt árið sem
hafi verið mjög vel lukkað. „Heim-
boðin með forsetann og borgar-
stjórann í fararbroddi vöktu mikla
athygli og umfjöllun í 57 löndum
þar sem átakið komst í fjölmiðla.
Ég veit ekki hvort það er hægt að
beintengja það því að við sáum tölu-
verða fjölgun erlendra ferðamanna
í janúar og febrúar miðað við árið í
fyrra en auðvitað er slík umfjöllun
mjög verðmæt.“
Fagnar auknu flugi til landsins
Flug til og frá Íslandi gegnir sömu-
leiðis mikilvægu hlutverki og því
segir Árni það vera fagnaðarefni
að Icelandair hafi aukið til muna
framboð á flugi yfir vetrartímann
og að alþjóðleg flugfélög á borð við
Easyjet stefni að því að fljúga hing-
að allt árið. „Þetta skiptir okkur
meginmáli,“ segir hann.
Ásókn erlendra flugfélaga í að
fljúga hingað er þó enn mest á sumr-
in og Árni segir það ekkert nema
jákvætt. „Þegar stór erlend flug-
félög á borð við Delta og Air Berlin
byrja að fljúga hingað þá ná þau
gjarnan til allt annars markaðar
en þau sem fyrir voru. Þetta opnar
líka á þann möguleika að félögin sjái
ástæðu til að fara að fljúga hingað
allt árið, svo að þetta getur þróast
í mjög jákvæðar áttir,“ segir Árni.
Auknar skatttekjur renni til upp-
byggingar í ferðaþjónustu
Reglulega skýtur upp kollinum
umræða um gjaldtöku í ferðaiðnaði,
hvort heldur sem er gjaldtöku hins
opinbera af aðilum í ferðaþjónustu,
eða þá gjaldtöku ferðaþjónustunnar
af ferðamönnunum sjálfum – eitt-
hvað sem varla mátti nefna fyrir
nokkrum árum. Aðspurður sam-
sinnir Árni því að ferðaþjónust-
an í heild þurfi að móta sér stefnu
um það hvernig best væri að haga
þessu umhverfi.
„Við höfum sem atvinnugrein
í rauninni ekki lagt niður fyrir
okkur eina línu í þessum efnum og
auðvitað bendir oft hver á annan
um hver á að fjármagna þetta.
Ríkið bendir á greinina og öfugt.
Ég hef litið svo á að það sé ekk-
ert óeðlilegt að eitthvað af þess-
um auknu tekjum sem ríkið fær
af ferðaþjónustunni renni til upp-
byggingar á ferðamannastöðum,“
segir Árni og bendir á að í fyrra
hafi fjölgun erlendra ferðamanna
skilað ríkinu tveimur milljörðum í
beinar auknar skatttekjur.
„Síðan hef ég sjálfur haft þá
skoðun að það megi alveg skoða
gjaldtöku á ferðamannastöðum,
og þá er horft til þess að það sé
einhver þjónusta þar í boði. Þetta
er þekkt úr erlendum þjóðgörð-
um. Það er ekkert óeðlilegt að
menn borgi eitthvað fyrir merk-
ingar, stígagerð, uppbyggingu á
salernisaðstöðu og veitingaaðstöðu.
Það var gerð könnun á þessu
meðal erlendra ferðamanna fyrir
nokkrum árum – í Landmannalaug-
um, Skaftafelli og við Gullfoss og
Geysi, og þeir spurðir hvort þeir
hefðu eitthvað á móti því að tekin
yrði upp gjaldtaka og féð rynni til
uppbyggingar á staðnum. 95 pró-
sent svarenda sögðust ekkert hafa
Best að þeir borgi sem njóti
Mikilvægustu verkefnin sem íslensk ferðaþjónusta stendur frammi fyrir er að fjölga ferðamönnum á veturna, byggja upp aðstöðu
á ferðamannastöðum og hlúa að náttúrunni, segir Árni Gunnarsson, formaður SAF, í samtali við Stíg Helgason.
Á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar í síðustu viku var
sérstaklega ályktað um stöðu hvalaskoðunar og nauð-
synjar þess að stækka griðasvæðin, einkum á Faxaflóa.
Árni segir þó að mjög hafi dregið úr neikvæðum áhrifum
hvalveiða á ímynd landsins og að ályktunin snúist í raun
ekki um veiðarnar sem slíkar.
„Við erum að álykta um að griðasvæðið á Faxaflóanum
verði stækkað til að hvalaskoðunarfyrirtækin fái einfald-
lega frið fyrir hvalveiðimönnunum – að það sé ekki verið
að skjóta dýrin sem er verið að skoða. Þarna virðast menn
vera hver ofan í öðrum. Þeir sem veiða vilja fara sem styst
út og kosta sem minnstu til, sem er ekkert óeðlilegt, en fer
illa saman við skoðunina. Rannsóknir sýna að þetta eru
mikið til sömu dýrin sem eru þarna og við höfum mestar
áhyggjur af því að það sé verið að ganga á stofninn sem
við erum að skoða og skjóta hann niður.“
Ekki má skoða og skjóta sömu hvalina
á móti hóflegu gjaldi í þeim efnum.
Möguleikar okkar eru miklu meiri
í því að byggja staðina upp með því
að láta þá sem njóta þeirra borga
fyrir það. Ég held að það sé heil-
brigðasta nálgunin: að þeir sem
njóta borgi.“
Ekki gáfulegur skattur
Gistináttaskattur sem ríkið lagði
á nýverið hefur mætt mikilli and-
stöðu ferðaþjónustunnar. Árni
segir að þar ríki skilningur á því að
greinin þurfi hugsanlega að taka í
meiri mæli þátt í kostnaði við upp-
byggingu á ferðamannastöðum.
Útfærsla gistináttaskattsins sé hins
vegar alveg agaleg. Ekki gangi að
taka einn þátt ferðaþjónustunnar,
gistinguna, út sérstaklega og skatt-
leggja hana.
„Þeir sem gista á hótelum fara
ekkert allir á staðina sem við ætlum
að nota þessa peninga í að byggja
upp. Það er óréttlæti í því að kúnni
sem kemur til landsins eða er jafn-
vel íslenskur – þetta gildir líka um
þá – og er ekkert á leiðinni á þessa
helstu ferðamannastaði, borgi fyrir
það.“
Auk þess sé gríðarmikið um leyf-
islaus gistirými á landinu. Könn-
un í fyrra hafi sýnt að það jafngilti
tveimur stærstu hótelunum saman-
lögðum. „Maður sér ekki fyrir sér
að þessir aðilar verði fyrstir til að
skila inn gistináttagjaldi. Auk þess
er verið að mismuna fólki eftir því
hvort það er í svefnpoka, tjaldi eða
á hóteli. Útfærslan á þessu er ekki
gáfuleg.“
Mikilvægt að vernda náttúruna
Rætt hefur verið um að unnt væri að
tvöfalda fjölda þeirra ferðamanna
sem heimsækja Ísland árlega, þann-
ig að þeir yrðu milljón talsins. Telur
Árni það raunhæft?
„Ég held að það sé alveg raun-
hæft að vinna að því, að því gefnu
að þeir komi ekki allir á sama tíma
og dreifist jafnar um árið. En millj-
ón ferðamenn á ári er ekkert mark-
mið sem slíkt, heldur frekar að
greinin geti vaxið og arðsemin verði
ásættanleg.“
Á það hafi víða skort upp á síð-
kastið, þrátt fyrir gott gengi krón-
unnar. „Við erum að horfa miklu
meira á að jafna árstíðasveifluna
og auka þannig tekjurnar af ferða-
mönnum. Fjölgun farþega sem slík
er ekki endilega aðalmarkmiðið.“
Árni segir að mest áríðandi verk-
efnin séu einkum tvö: Annars vegar
hið títtnefnda markmið um meiri
vetrarferðamennsku, og hins vegar
að huga að uppbyggingu innviðanna
og ekki síður varðveislu náttúrunn-
ar. Þar séu aðilar í ferðaþjónustu
reiðubúnir að leggja sitt af mörkum.
„Náttúran er aðdráttarafl númer
eitt og við þurfum að passa upp
á hana og ganga um hana með
ábyrgum hætti. Það er orðið akút.“
ÁNÆGÐUR MEÐ HÖRPU Árni segir að
mun betur gangi að fá hingað stórar
ráðstefnur með tilheyrandi fjölda
ferðamanna eftir tilkomu Hörpu.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM