Fréttablaðið - 30.03.2012, Síða 12

Fréttablaðið - 30.03.2012, Síða 12
30. mars 2012 FÖSTUDAGUR12 Föstudagsviðtaliðföstuda gur Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar F jöldi ferðamanna á Íslandi hefur nærri sjö- faldast á þrjátíu árum og enn er stefnt að því að fjölga þeim. Er svigrúm til þess? Ræður Ísland við fleiri gesti? „Já, ég mundi nú halda að við gætum alveg ráðið við fleiri ferða- menn,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands og formaður Samtaka ferða- þjónustunnar. „Kannanir sem hafa verið gerðar á þolmörkum ferða- mannastaða sýna að á einhverj- um stöðum eru ferðamenn farnir að upplifa það að það séu helst til margir á staðnum miðað við hverju þeir hefðu búist við,“ segir Árni. Það sé hins vegar lykilatriði að huga að álaginu á umhverfið og aðstöðuna, göngustíga, salernisað- stöðu og annað slíkt. „Við þurfum að gera gangskör að því að byggja upp aðstöðu á þessum mest sóttu stöð- um þannig að álagið af komu ferða- manna verði ekki eins mikið og við verðum betur í stakk búin til að taka við þeim. Þess vegna fögnuðum við því að sjóður um uppbyggingu ferða- mannastaða var stofnaður á síðasta ári og vonumst til að þannig verði meira fé varið til uppbyggingar staðanna,“ segir Árni. Ráðstefnugeirinn mikilvægur Áætlanir um þetta tengjast hinu megináhersluatriði ferðaþjónust- unnar næstu árin, að sögn Árna. Það er að fjölga ferðamönnum yfir vetrartímann og dreifa þeim þannig betur yfir árið. „Það er alveg ljóst að innviðirnir, eins og hótel og fjárfestingar í bíla- leigubílum, rútum og öðru, nýtast ekki vel á heilsársgrunni, sérstak- lega ekki á landsbyggðinni. Árang- urinn hefur verið betri á höfuð- borgarsvæðinu en við eigum samt töluvert verk að vinna við að ýta undir það að fleiri komi á veturna. Það dreifir álaginu og gerir það að verkum að við getum tekið við fleira fólki.“ Samtök ferðaþjónustunnar hafa tekið höndum saman við stjórnvöld um átakið Ísland allt árið, en í því felst að Ísland er fyrst og fremst markaðssett yfir vetrartímann og reynt að fjölga viðburðum sem laða hingað fólk utan háannatíma. Árni segir að þar spili ráðstefnu- markaðurinn stórt hlutverk. „Það eru einmitt ferðamenn sem koma ekki í júlí og ágúst – þá eru menn í sumarfríunum sínum en ekki í vinnuferðum út af ráðstefnum. Það hefur gengið alveg ágætlega að efla þann geira og við sjáum mikla möguleika í því samhengi með Hörpunni. Framboð á ráð- stefnusölum af stærri skalanum var takmarkað þangað til hún kom til sögunnar.“ Hins vegar sé ráðstefnuhald alls ekki það eina sem horft sé til varð- andi vetrarferðamennskuna. „Við erum auðvitað líka að reyna ná til þeirra sem fara í frí á veturna. Það eru styttri ferðir en við þekkj- um það héðan og annars staðar frá að fólk gerir ekki síður vel við sig í gistingu og mat og öðru slíku í styttri ferðum.“ Vel heppnuð heimboð Hins vegar þurfi að fjölga mögu- leikum fólks sem kemur hing- að að vetri til. „Það er að ýmsu leyti ágætis afþreyingarframboð í kringum höfuðborgarsvæðið en á landsbyggðinni hefur verið til- hneiging til þess að það sé minna í boði þegar fer að líða fram á haust- ið og að söfn og aðrir slíkir staðir séu síður opnir.“ Þetta hafi þó verið að breyt- ast ört undanfarinn áratug. „Ég tek hvalaskoðunina sem dæmi. Hún var löngum bara yfir sumar- tímann en núna er verið að keyra hana nánast allt árið, til dæmis frá Reykjavík,“ segir Árni. Ýmis önnur starfsemi sem ekki er beinlínis háð tíðarfari standi nú til boða og gagn- gert sé unnið að því að auka hana. „Í fréttum ekki alls fyrir löngu var sagt frá hóteli á Mývatni sem hafði gjarnan verið lokað á vet- urna en var nú með 50 prósenta nýtingu í febrúar. Hótel í Reykja- vík eru komin í 70 til 80 prósenta nýtingu í janúar og febrúar sem er bylting frá því sem var. En þetta er verkefni sem verður ekki klár- að í einum spretti. Þetta er lang- hlaup. Þess vegna er mjög gott að þetta verkefni sé til þriggja ára til að byrja með. Við erum að reyna núna að klára fyrsta veturinn og þá eru tveir eftir.“ Árni nefnir eitt tiltekið verkefni undir hatti Íslands allt árið sem hafi verið mjög vel lukkað. „Heim- boðin með forsetann og borgar- stjórann í fararbroddi vöktu mikla athygli og umfjöllun í 57 löndum þar sem átakið komst í fjölmiðla. Ég veit ekki hvort það er hægt að beintengja það því að við sáum tölu- verða fjölgun erlendra ferðamanna í janúar og febrúar miðað við árið í fyrra en auðvitað er slík umfjöllun mjög verðmæt.“ Fagnar auknu flugi til landsins Flug til og frá Íslandi gegnir sömu- leiðis mikilvægu hlutverki og því segir Árni það vera fagnaðarefni að Icelandair hafi aukið til muna framboð á flugi yfir vetrartímann og að alþjóðleg flugfélög á borð við Easyjet stefni að því að fljúga hing- að allt árið. „Þetta skiptir okkur meginmáli,“ segir hann. Ásókn erlendra flugfélaga í að fljúga hingað er þó enn mest á sumr- in og Árni segir það ekkert nema jákvætt. „Þegar stór erlend flug- félög á borð við Delta og Air Berlin byrja að fljúga hingað þá ná þau gjarnan til allt annars markaðar en þau sem fyrir voru. Þetta opnar líka á þann möguleika að félögin sjái ástæðu til að fara að fljúga hingað allt árið, svo að þetta getur þróast í mjög jákvæðar áttir,“ segir Árni. Auknar skatttekjur renni til upp- byggingar í ferðaþjónustu Reglulega skýtur upp kollinum umræða um gjaldtöku í ferðaiðnaði, hvort heldur sem er gjaldtöku hins opinbera af aðilum í ferðaþjónustu, eða þá gjaldtöku ferðaþjónustunnar af ferðamönnunum sjálfum – eitt- hvað sem varla mátti nefna fyrir nokkrum árum. Aðspurður sam- sinnir Árni því að ferðaþjónust- an í heild þurfi að móta sér stefnu um það hvernig best væri að haga þessu umhverfi. „Við höfum sem atvinnugrein í rauninni ekki lagt niður fyrir okkur eina línu í þessum efnum og auðvitað bendir oft hver á annan um hver á að fjármagna þetta. Ríkið bendir á greinina og öfugt. Ég hef litið svo á að það sé ekk- ert óeðlilegt að eitthvað af þess- um auknu tekjum sem ríkið fær af ferðaþjónustunni renni til upp- byggingar á ferðamannastöðum,“ segir Árni og bendir á að í fyrra hafi fjölgun erlendra ferðamanna skilað ríkinu tveimur milljörðum í beinar auknar skatttekjur. „Síðan hef ég sjálfur haft þá skoðun að það megi alveg skoða gjaldtöku á ferðamannastöðum, og þá er horft til þess að það sé einhver þjónusta þar í boði. Þetta er þekkt úr erlendum þjóðgörð- um. Það er ekkert óeðlilegt að menn borgi eitthvað fyrir merk- ingar, stígagerð, uppbyggingu á salernisaðstöðu og veitingaaðstöðu. Það var gerð könnun á þessu meðal erlendra ferðamanna fyrir nokkrum árum – í Landmannalaug- um, Skaftafelli og við Gullfoss og Geysi, og þeir spurðir hvort þeir hefðu eitthvað á móti því að tekin yrði upp gjaldtaka og féð rynni til uppbyggingar á staðnum. 95 pró- sent svarenda sögðust ekkert hafa Best að þeir borgi sem njóti Mikilvægustu verkefnin sem íslensk ferðaþjónusta stendur frammi fyrir er að fjölga ferðamönnum á veturna, byggja upp aðstöðu á ferðamannastöðum og hlúa að náttúrunni, segir Árni Gunnarsson, formaður SAF, í samtali við Stíg Helgason. Á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar í síðustu viku var sérstaklega ályktað um stöðu hvalaskoðunar og nauð- synjar þess að stækka griðasvæðin, einkum á Faxaflóa. Árni segir þó að mjög hafi dregið úr neikvæðum áhrifum hvalveiða á ímynd landsins og að ályktunin snúist í raun ekki um veiðarnar sem slíkar. „Við erum að álykta um að griðasvæðið á Faxaflóanum verði stækkað til að hvalaskoðunarfyrirtækin fái einfald- lega frið fyrir hvalveiðimönnunum – að það sé ekki verið að skjóta dýrin sem er verið að skoða. Þarna virðast menn vera hver ofan í öðrum. Þeir sem veiða vilja fara sem styst út og kosta sem minnstu til, sem er ekkert óeðlilegt, en fer illa saman við skoðunina. Rannsóknir sýna að þetta eru mikið til sömu dýrin sem eru þarna og við höfum mestar áhyggjur af því að það sé verið að ganga á stofninn sem við erum að skoða og skjóta hann niður.“ Ekki má skoða og skjóta sömu hvalina á móti hóflegu gjaldi í þeim efnum. Möguleikar okkar eru miklu meiri í því að byggja staðina upp með því að láta þá sem njóta þeirra borga fyrir það. Ég held að það sé heil- brigðasta nálgunin: að þeir sem njóta borgi.“ Ekki gáfulegur skattur Gistináttaskattur sem ríkið lagði á nýverið hefur mætt mikilli and- stöðu ferðaþjónustunnar. Árni segir að þar ríki skilningur á því að greinin þurfi hugsanlega að taka í meiri mæli þátt í kostnaði við upp- byggingu á ferðamannastöðum. Útfærsla gistináttaskattsins sé hins vegar alveg agaleg. Ekki gangi að taka einn þátt ferðaþjónustunnar, gistinguna, út sérstaklega og skatt- leggja hana. „Þeir sem gista á hótelum fara ekkert allir á staðina sem við ætlum að nota þessa peninga í að byggja upp. Það er óréttlæti í því að kúnni sem kemur til landsins eða er jafn- vel íslenskur – þetta gildir líka um þá – og er ekkert á leiðinni á þessa helstu ferðamannastaði, borgi fyrir það.“ Auk þess sé gríðarmikið um leyf- islaus gistirými á landinu. Könn- un í fyrra hafi sýnt að það jafngilti tveimur stærstu hótelunum saman- lögðum. „Maður sér ekki fyrir sér að þessir aðilar verði fyrstir til að skila inn gistináttagjaldi. Auk þess er verið að mismuna fólki eftir því hvort það er í svefnpoka, tjaldi eða á hóteli. Útfærslan á þessu er ekki gáfuleg.“ Mikilvægt að vernda náttúruna Rætt hefur verið um að unnt væri að tvöfalda fjölda þeirra ferðamanna sem heimsækja Ísland árlega, þann- ig að þeir yrðu milljón talsins. Telur Árni það raunhæft? „Ég held að það sé alveg raun- hæft að vinna að því, að því gefnu að þeir komi ekki allir á sama tíma og dreifist jafnar um árið. En millj- ón ferðamenn á ári er ekkert mark- mið sem slíkt, heldur frekar að greinin geti vaxið og arðsemin verði ásættanleg.“ Á það hafi víða skort upp á síð- kastið, þrátt fyrir gott gengi krón- unnar. „Við erum að horfa miklu meira á að jafna árstíðasveifluna og auka þannig tekjurnar af ferða- mönnum. Fjölgun farþega sem slík er ekki endilega aðalmarkmiðið.“ Árni segir að mest áríðandi verk- efnin séu einkum tvö: Annars vegar hið títtnefnda markmið um meiri vetrarferðamennsku, og hins vegar að huga að uppbyggingu innviðanna og ekki síður varðveislu náttúrunn- ar. Þar séu aðilar í ferðaþjónustu reiðubúnir að leggja sitt af mörkum. „Náttúran er aðdráttarafl númer eitt og við þurfum að passa upp á hana og ganga um hana með ábyrgum hætti. Það er orðið akút.“ ÁNÆGÐUR MEÐ HÖRPU Árni segir að mun betur gangi að fá hingað stórar ráðstefnur með tilheyrandi fjölda ferðamanna eftir tilkomu Hörpu. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.