Fréttablaðið - 30.03.2012, Síða 20
20 30. mars 2012 FÖSTUDAGUR
Íslenskir skátar fagna því þessa dagana að eitt hundrað ár eru
liðin frá því skátastarf hófst á
Íslandi. Það gera þeir undir ein-
kunnarorðunum „ævintýrið held-
ur áfram“.
Sem ég nú óska skátahreyf-
ingunni til hamingju með þenn-
an áfanga, þá hvarflar hugurinn
til þeirra ára sem ég átti sjálfur
í hreyfingunni frá níu ára aldri –
fyrst sem ylfingur en síðan sem
skáti og skátaforingi. Margt rifjast
upp, svo sem útilegur, skátamót,
varðeldar, gönguferðir, söngur og
leikir. Ég kynntist nýjum félögum,
strákum og stelpum – ungum og
öldnum. Svo komu fullorðinsár-
in og lágu spor okkar víða. Einn
er nú læknir, annar smiður, þriðji
sálfræðingur, fjórði leikari og einn
stofnaði virt stórfyrirtæki. Þannig
mætti lengi telja.
Sumir eru fallnir frá, „farnir
heim“ eins og við kölluðum það, en
eru engu að síður skýrir og nálæg-
ir í minningunni.
Leikur og þroski
Lítið vissi ég sem ungur strákur
að skátastarf er annað og meira
en leikur einn. Að skilaboðaleik-
ur ylfinga var þjálfun í að hlusta,
taka eftir og skila því sem manni
var trúað fyrir. Sömuleiðis að
gjaldkerastarfið í skátaflokknum
tæki mann fyrstu skrefin í því að
umgangast peninga af ábyrgð og
innrætti heiðarleika og nákvæmni.
Að læra þjóðsönginn og allt um
íslenska fánann jók virðingu okkar
fyrir landi okkar og þjóð. Að vera
síðan foringi flokks og sveitar
þroskaði m.a. ábyrgðartilfinningu,
mannleg samskipti, umhyggju og
stjórnunarhæfileika.
Á námskeiðum lærðum við
skipulagningu, kennslutækni,
stjórnun við varðeld, samstarf við
foreldra, kortalestur, umgengni
við náttúruna, ótal hnúta og
skyndihjálp – sem þá kallaðist
„hjálp í viðlögum“.
Hér er stiklað á stóru og fátt eitt
nefnt. En þegar saman fór leikur
og skemmtilegur lærdómur voru
áhrifin merkjanleg: Samheldni,
sjálfsöryggi, áræðni, heiðarleiki,
hjálpsemi og jákvæðni urðu meira
og meira áberandi í fari og pers-
ónuleika ungra drengja og stúlkna
sem fyrr en varði urðu fullorðin og
að hefja þátttöku í hringiðu þjóð-
félagsins.
Sjálfur veit ég að tíma mínum í
skátunum var vel varið. Þeim er
að þakka að ég kom betri og sterk-
ari inn í fullorðinsárin, betur
undir nám og störf búinn. Ég veit
að mín gömlu skátasystkini eru á
sömu skoðun. Það sem meira er;
samkenndin og gagnkvæmt traust
er enn til staðar. Margt sem ég
lærði í skátunum hefur oft komið
að gagni. Þörf fyrir skyndihjálp
hefur komið upp, reynt hefur á
frumkvæði og oft hafa hnútarn-
ir komið sér vel, ekki síst „pela-
stikkið“ sem ég kann enn áratug-
um síðar – bæði einfalt og tvöfalt!
Æskan – framtíð þjóðarinnar
Foreldrum ræð ég heilt þegar ég
segi: Kynnið ykkur skátastarf
fyrir börn ykkar og unglinga. Það
er heilbrigt, skemmtilegt og þrosk-
andi. Ef þið voruð ekki sjálf í skát-
unum á margt eftir að koma ykkur
gleðilega á óvart. Góð byrjun gæti
verið að skoða vefsíðu bandalags
skáta – www.skatar.is. Skoðið þar
hvað skátar hafa fyrir stafni og
lesið skátaheitið og skátalögin.
Næsta skref er svo að hafa sam-
band við skátafélagið í bænum
ykkar eða – á höfuðborgarsvæðinu
– félagið í ykkar hverfi. Það verður
tekið vel á móti ykkur.
Stjórnvöld, ríki og sveitarfélög
Ég hvet stjórnvöld til að mæta vel
fjárhagslegri þörf skátahreyfing-
arinnar og annarrar heilbrigðr-
ar æskulýðsstarfsemi. Á tímum
efnahagsþrenginga er sérstaklega
nauðsynlegt að tryggja börnum og
unglingum jákvæð, holl og þrosk-
andi viðfangsefni fjarri hættuleg-
um og spillandi freistingum okkar
tíma – unga fólkið er framtíð þjóð-
arinnar.
Ævintýrið
heldur áfram
Einkunnir í grunnnámi banda-rískra háskóla hafa farið
hækkandi. Í Harvard hækkaði
meðaleinkunnin úr sem svarar
6,75 árið 1963 í 8,63 árið 2005.
Þetta vekur spurningar.
Fara námshæfileikar nemenda
sívaxandi? Fá nemendur sífellt
betri undirbúning fyrir háskóla-
nám? Leggja nemendur æ harðar
að sér?
Svarið við spurningunum er
nei. Nemendur nota æ minni tíma
í námið skv. National Survey of
Student Engagement, NSSE.
Hvað orsakar einkunnabólgu?
George Kuh frá NSSE telur að
milli háskólakennara og nemenda
sé þegjandi samkomulag. „Ef þú
lætur mig í friði, þá skal ég ekki
gera of miklar kröfur til þín“.
Þarna vísar hann til kennslu-
kannana þar sem nemendur eru
spurðir um frammistöðu kenn-
ara. Miklu skiptir fyrir kennara
að koma vel út úr þeim. Stuart
Rojstaczer, prófessor við Duke
háskólann, skrifaði grein í Wash-
ington Post. Þar segist hann hætt-
ur að gefa lægri einkunnir en B-
(5,8). Gæfi hann þeim C sem það
eigi skilið fengi hann færri nem-
endur og á markaðstorgi æðri
menntunar sé slíkt talið merki
um lélega kennslu. John Thor-
stensson, prófessor í eðlisfræði,
segir 9 af hverjum 10 nemendum
sínum í fyrsta áfanga í eðlisfræði
dreyma um að komast í lækna-
skóla. Einkunn undir A- gerir það
illmögulegt. Háskólakennarar
eru því undir miklum þrýstingi.
Guðrún Geirsdóttir, dósent í
kennslufræði í HÍ, vekur athygli
á áhugaleysi íslenskra háskóla-
nema og heimtufrekju þeirra.
„Nemendur virðast vilja gera
sem minnst sjálfir, en krefjast
hins vegar mikils af kennurum.“
Margir nemendur sækjast ekki
eftir menntun og þroska held-
ur aðeins prófgráðu með sem
minnstri fyrirhöfn. Þeir mæta
illa, lesa ekki kennslubækurn-
ar en krefjast hárra einkunna.
Mæti þeir í tíma eru þeir oft á
fésbókinni í stað þess að taka
þátt í kennslustundinni. Gjarnan
er skilað skýrslum og verkefnum
sem einhver annar hefur unnið,
t.d. nemandi frá fyrra ári. Fái
þeir sínu framgengt munu háskól-
ar í auknum mæli útskrifa hyskið,
heimtufrekt og ómenntað fólk.“
Á Rás 2 voru þessi mál til
umræðu og var m.a. rætt við
háskólanema. Þeir létu sumir
ótrúlegustu hluti út úr sér og var
hreint átakanlegt að hlusta á þá.
Af máli þeirra mátti ráða að verði
kennari ekki við heimtufrekju
þeirra megi hann búast við að
verða „tekinn af lífi“ í kennslu-
könnunum en gegnum þær hafa
nemendur kverkatak á kennurum
sínum. Þær byggja að hluta til á
þeim misskilningi nýfrjálshyggj-
unnar að skóla sé hægt að reka
eins og hvert annað framleiðslu-
fyrirtæki í samkeppni.
Líklega kynda kennslukann-
anir undir einkunnabólgu og
undan látssemi kennara enda er
oft fylgni milli einkunna sem
kennari fær og einkunna sem
nemendur búast við frá honum.
Það gleymist að kennarar þurfa
að halda uppi aga og námskröf-
um og slíkt er ekki alltaf vinsælt
meðal nemenda. Markaðsvæðing
menntunar er ákaflega vandmeð-
farin. Eru til sölu á Íslandi fyrir-
hafnarlitlar námseiningar?
Ég hef ekki séð tölur um ein-
kunnabólgu á Íslandi. Vegna örra
breytinga á námskrám og nem-
endasamsetningu framhaldsskól-
anna er erfitt að mæla einkunna-
bólgu hér. Líklega er þó sums
staðar dulin einkunnabólga. Hún
birtist ekki í hærri einkunnum
heldur því að fleiri komist í gegn
með minni kunnáttu en áður.
Kennari sem kennt hefur sama
áfanga lengi getur hugsanlega
sýnt fram á að meðaleinkunn hafi
staðið í stað, en það gæti stafað af
því að hann hafi slakað á náms-
kröfum vegna svipaðs þrýstings
og fyrr var lýst.
Í framhaldsskólum fór færi-
band frjálshyggjunnar að rúlla
fyrir rúmum áratug með nýrri
námskrá og hinu illræmda
reiknilíkani. Valfrelsi nemenda
var aukið, t.d. getur nemandi
á náttúrufræðibraut valið sig
framhjá lykilgreinum í náttúru-
fræðum og útskrifast sem stúd-
ent t.d. með litla eðlis- og efna-
fræðikunnáttu. Nemendur fengu
sem sagt frelsi til að gengisfella
stúdentsprófið sitt. Jafnframt
ýtti þetta undir samkeppni milli
kennara um nemendur. Kennar-
ar sem bera virðingu fyrir nem-
endum og menntun þeirra og vilja
standa fast á eðlilegum náms-
kröfum geta orðið undir í þeirri
samkeppni því að sumir nemend-
ur velja auðveldustu leiðina og
sneiða hjá slíkum kennurum.
Með reiknilíkaninu fengu kenn-
arar skilaboð um að skólar fengju
ekki greitt fyrir nemendur sem
ekki mættu í lokapróf þótt þeim
hefði verið sinnt alla önnina.
Skólar með hátt hlutfall getu-
lítilla nemenda lentu fljótt í tap-
rekstri vegna brottfalls nemenda.
Til að vinna bug á taprekstrinum
var kennslumagn minnkað svo
að tekjur kennara í viðkomandi
skólum lækkuðu. Þeir voru hýru-
dregnir fyrir að skila ekki öllum
áfram á færibandinu. Hefðu þeir
hleypt öllum í gegn hefðu þeir
uppskorið hærri tekjur vegna
meiri framleiðni eins og það heit-
ir á máli frjálshyggjunnar.
Fyrir kennara er freistandi að
láta undan þrýstingi nemenda
og yfirvalda og sigla lygnan sjó,
gera litlar kröfur og gefa hátt.
Það eykur líkur á góðri útkomu í
kennslukönnunum og er gott fyrir
fjárhag skólanna. En undanláts-
semin er auðvitað vanvirðing við
nemendur og menntunina sem
þeir þurfa að öðlast.
Ráðuneyti menntamála gerir
lítið til að hjálpa framhaldsskóla-
kennurum að meta hvað séu hæfi-
legar námskröfur. Skólar senda
ráðuneytinu námskrár en lítið
er fylgst með hvað gert er í raun
og hvaða námskröfur eru gerð-
ar. Ráðuneytið telur hve margir
nemendur skila sér í próf og veit-
ir fjárveitingar skv. því. Fjöldi
nemenda mætir í próf bara til að
skrifa nafnið sitt. Það lækkar á
pappírnum hið illræmda brottfall.
Margir stúdentar sem hefja
nám í HÍ hafa góðan undirbúning
úr framhaldsskóla og eru fullfær-
ir um að stunda bitastætt háskóla-
nám, en svo virðist sem vaxandi
fjöldi sé það ekki og því telur HÍ
nauðsynlegt að taka upp inntöku-
próf. Það þýðir að sum stúdents-
prófsskírteini séu talin marklít-
il plögg eða svikin vara eins og
Ólafur Stephensen ritstjóri orðaði
það. Ekki er ólíklegt að einkunna-
bólga, dulin eða ódulin, sé undir-
rót þessa vanda sem er að grafa
undan menntakerfinu.
Einkunnabólga:
orsakir og afleiðingar
Því miður fór umræðan svolítið úr böndunum á netinu þegar
aganefnd KSÍ dæmdi tvo drengi
í leikbann og gagnrýnt var. Svo-
lítið er eins og verið sé að stíga
inn á heilagt svæði en knatt-
spyrna kemur okkur öllum við og
kynþáttafordómar eru því miður
staðreynd hér á landi.
Nú tek ég drengina tvo út fyrir
sviga enda hafa þeir sæst en til-
vikið gefur tilefni til umræðu og
ábendinga.
Nauðsynlegt er að mínu mati
að KSÍ og önnur sambærileg
sambönd komi sér upp verklags-
reglum í meðferð svona mála.
Þau eiga að leita til sérfræðinga
við gerð þeirra.
UEFA hafði samráð við ECRI
(Evrópunefndin gegn kynþátta-
fordómum) þegar verklagsregl-
ur voru settar fyrir síðasta og
einnig næsta Evrópumót um það
hvernig ætti að tækla rasisma á
fótboltavellinum. Knattspyrnu-
sambandið í Englandi hefur haft
samráð við svipaðan aðila þar.
Ekki skal efast um góðan
ásetning forystu KSÍ, þ.m.t.
Þóris Hákonarsonar, en þetta
með verklagsreglur og hvernig
þær eiga að vera er ekkert sjálf-
gefið. Þar ætti m.a. að kveða á
um að dómarar og þeir sem sitja
í ráðum og nefndum fái fræðslu
um það hvernig þekkja eigi ras-
isma og hvernig bregðast eigi við
honum. Það sama á við um yfir-
stjórn og starfsmenn. Félögin
eiga með hjálp KSÍ að fræða
þjálfara um rasisma og helst
ekki að ráða þá til starfa nema að
undangengnu námskeiði um það
hvernig meðhöndla eigi hann.
Þá er í meira lagi vafasamt að
bregðast við með leikbönnum í
yngri flokkum. Slíkt getur ein-
angrað og útilokað. Fræðsla er
á því stigi árangursríkust. Þetta
eru drengir/stúlkur á mótunar-
skeiði. Sá sem gerir sig sekan
um rasisma er yfirleitt hvorki
betri né verri en félagarnir en
endurspeglar þá menningu sem
þeir eru allir sprottnir úr. Hann
er, má segja, einnig fórnarlamb
hennar.
Rasisma má líkja við veiru sem
þarf að útrýma. Rasískt hugarfar
flokkar fólk eftir uppruna, lita-
rafti, þjóðerni og jafnvel menn-
ingu og trú og felur í sér fyrir-
litningu á hóp eða hópum sem við
tilheyrum ekki.
Rasismi kumrar í yfirborði
samfélags. Kemur stundum upp á
yfirborðið og er þá gjarnan með-
höndlaður sem einstakt tilvik.
Það er ekki bara KSÍ sem þarf
að koma sér upp verklagsreglum
í þessum málaflokki. Þess þurfa
önnur sambærileg sambönd svo
og skólar og allir þeir sem koma
að mótun unglinga.
KSÍ og fordómar
Samfélagsmál
Baldur
Ágústsson
forstjóri og
forsetaframbjóðandi
Kynþátta-
fordómar
Baldur
Kristjánsson
sérfræðingur í ECRI
og áhugamaður um
knattspyrnu
Menntamál
Björn
Guðmundsson
framhaldsskólakennari
Nemendur virðast vilja gera sem minnst
sjálfir, en krefjast hins vegar mikils af
kennurum.Margir nemendur sækjast ekki
eftir menntun og þroska heldur aðeins prófgráðu með
sem minnstri fyrirhöfn.
Heilsuhelgi um páskana í Kríunesi.
Dagana 4-9 apríl.
• Markþjálfun
• Margvísleg hreyfing úti í náttúrunni
• Fitumæling
• Hugleiðsla, teygjur, æfingar, slökun og fræðsla
• Kvöldvökur
• Heilsufæði.
Í Kríunesi er frábær aðstaða, m.a. gufa, pottur, hjól, bátar og.fl.
Eftir dvölina ferðu heim með:
• Basískann Líkama
• Hugarfarsbreytingu til framtíðar
• Meðvitund um að líkaminn er musteri sálarinnar
• Löngun til að hugleiða daglega
• Lærir fullt af æfingum sem þú heldur áfram að gera
Nánari upplýsingar á www.hvatning.com og í síma 897 2400 Bubbi