Fréttablaðið - 30.03.2012, Page 30
4 • LÍFIÐ 30. MARS 2012
HVER ER KONAN? Andrea Magnús-
dóttir.
STARF? Fatahönnuður & eigandi
Andrea boutique.
BAKGRUNNUR/MENNTUN? Stúdents-
próf úr FG, förðunarfræðingur og
fatahönnuður frá Margrethe-
skolen í Kaupmannahöfn.
LÁ ÞAÐ ALLTAF FYRIR AÐ FARA ÞESSA
LEIÐINA Í LÍFINU? Já, ætli það ekki,
einu sinni þegar ég var í fram-
haldsskóla ætlaði ég að fara í
sálfræði eða viðskiptafræði en
svo fékk ég overlock-vél í út-
skriftargjöf og þá varð ekki aftur
snúið.
HVERNIG GENGUR AÐ VERA FATAHÖNN-
UÐUR OG REKA VERSLUN Á SAMA TÍMA?
Það er í nógu að snúast og okkur
leiðist aldrei.
HVAÐA STRAUMA MUNUM VIÐ SJÁ Í
SUMAR? Í sumar sjáum við fullt af
litum, falleg munstur og skósíða
kjóla.
ÁTTU ÞÉR DRAUMAVERKEFNI? Já, ég
á mér alltaf drauma og drauma-
verkefni. Ég er einmitt að byrja
að vinna að einum þeirra núna
og stefni á og vona að hann ræt-
ist árið 2013.
HVERNIG GENGUR AÐ SAMTVINNA FER-
ILINN OG MÓÐURHLUTVERKIÐ? Það
gengur rosalega vel. Við vinnum
mikið saman ég og maðurinn
minn og reynum að leyfa börn-
unum að taka sem mestan þátt í
vinnunni okkar. Sonur okkar, sem
er 13 ára, fór til að mynda með
okkur í síðustu vinnuferð til út-
landa sem var frábært. Ég held
að það sé bara hollt fyrir börn að
sjá hvað foreldrarnir eru að gera
og um að gera að leyfa þeim að
vera þátttakendur í því eins og
hægt er. Svo sit ég oft og teikna
með dóttur minni sem er 6 ára,
hún er oft með æðislegar hug-
myndir að rosalegum kjólum, lita-
valið hennar er innblástur fyrir
mig.
HVAÐ GERIRÐU ÞEGAR ÞÚ ERT EKKI AÐ
VINNA? Þá nýt ég þess að vera
með fjölskyldunni. Ég kann sem
betur fer að stimpla mig út, fara
í frí og njóta þess að vera með
fólkinu mínu.
HVERT ER ÞITT MOTTÓ Í LÍFINU?
Draumar eru til að láta þá rætast
og það er allt hægt.
ATHAFNAKONAN
HAMINGJUHORNIÐ
FÆR INNBLÁSTUR FRÁ DÓTTURINNI
HVAÐ GERIR ÞÚ TIL AÐ TÆMA HUGANN
EFTIR ERFIÐA VINNUVIKU? Hjá mér er
engin erfið vinnuvika. Ég er aldrei
í vinnunni af því ég er að sinna
áhugamálinu, að halda fyrirlestra
og skrifa. En hugurinn tæmist hjá
mér við margvíslegar aðstæður. Í
ræktinni, við bóklestur, í göngutúr
í rigningu og þögn.
HVERNIG HLEÐUR ÞÚ BATTERÍIN? Ég
hleð batteríin við það að taka á
því í ræktinni og sömuleiðis á
nóttunni. Þar sem ég er geim-
vera þá ferðast ég um alheiminn
á meðan ég sef. Dásamlegt.
HUGLEIÐIR ÞÚ EÐA NOTAR ÞÚ AÐRAR
AÐFERÐIR TIL AÐ RÆKTA HUGANN? Ég
hef ekki enn átt fasta tíma í hug-
leiðslu daglega en það að halda
fyrirlestra er hugleiðsla. Og það
að gefa af sér sá fræjum er
hugleiðsla.
VILTU DEILA MEÐ OKKUR UPPÁHALDS-
HAMINGJUMOLANUM ÞÍNUM? Hver er
sinnar gæfu smiður og stefndu
alltaf á sólina, þú gætir krækt í
stjörnu.
HVERNIG RÆKTAR ÞÚ HJÓNABANDIÐ?
Ég á margt eftir ólært þar. Engin
leikrit í gangi en það er kúnst að
kunna að sleppa og treysta og
losa um bandið í hjónabandinu.
ÞORGRÍMUR
ÞRÁINSSON
RITHÖFUNDUR
FERÐAST UM ALHEIMINN Á NÓTTUNNI
HEIMILISHORNIÐ
TANNKREM Á
VEGGINA
Það má finna ýmis önnur notagildi
í tannkremi en að hreinsa tennurn-
ar með því. Ef til stendur að pússa
silfrið prófaðu þá að nuddaðu það
upp úr tannkremi og skolaðu svo
með köldu vatni. Einnig má nota
það til að þrífa pennastrik og liti á
veggjum eftir litla putta.
Bæjarlind 16 - Kópavogur - Sími 553 7100 - www.linan.is
opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 laugardaga 11 - 16
svefnpláss fyrir 2
140x200 cm
svefnpláss fyrir 2
140x200 cm
einfalt og fljótlegt að breyta í rúm
- extra þykk og góð springdýna
einfalt og fljótlegt að breyta í rúm
- góð springdýna
SUPREME
RECAST
deluxe
kr. 169.800
kr. 149.800
DAGUR & NÓTT