Fréttablaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 33
LÍFIÐ 30. MARS 2012 • 7 Hreyfingin? Allt of lítil. Er búin að vera dálítið á leiðinni í ræktina. Veitingastaðurinn? Of margir góðir til þess að gera upp á milli, bæði hér í Reykjavík og á landsbyggðinni. Get þó nefnt að einn af mínum uppáhaldsstöðum í útlöndum er Le George, veitinga- staður í París, uppi á þakinu á Centre Pompidou-safninu. Heimasíðan? http://www.icelandlocalfoodguide.is, www.icelandlo- calfoodguide.is og http://www.graennapril.is, www.graennapril. is og Google og Youtube Tímaritið? Vanity Fair. *Á meðan birgðir endast Sérfræðingar CHANEL verða í snyrtivöruverslun Lyfja & heilsu Kringlunni 29. mars – 4. apríl og veita þér faglega ráðgjöf. 20% afsláttur verður af varalitum og glossum ásamt glæsilegum kaupaukum frá CHANEL* og verða fljótlega tilbúnar. Og allt verður klárt fyrir sumarið. Þannig að þegar þú ferð næst í ferð um landið þarftu ekki bara að sjá sjoppufæðið. Þú getur náð í bæklinginn með kortinu yfir alla sælkerastaðina á Íslandi, en honum verður dreift í Reykjavík og um allt land og svo geturðu einnig skoðað lifandi kvikmyndaefni á netinu, bæði í tölvunni, spjaldtölvunni og snjall- símanum. Svo er þar einnig að finna æðislegar og oft óvenjulegar upp- skriftir. Þetta er alveg geggjað. Á einum veitingastaðnum á Vest- fjörðum upplifði ég ævintýri þar sem ég fékk einn besta mat sem ég hef borðað á ævinni. Glænýr fiskur- inn, lambið beint af fjallinu og jurt- ir og kryddplöntur tíndar í fjallshlíð- inni, með þvílíkum sósum að ég bað um að fá að sleikja diskinn, sem vakti nokkra kátínu í eldhúsinu. Það er fátt betra. Svo verða einn- ig frábærar uppskriftir, bæði í litlu bókinni og einnig kvikmyndaðar á heimasíðunum. Ein fiskuppskriftin hljóðar til dæmis svona: Skerðu glænýjan skötusel í um 2 cm þykka og 10 cm langa strimla. Vefðu einni sneið af beikoni utan um hvern strimil. Steiktu þá í smá olíu í um 2 mínút- ur á hvorri hlið og helltu síðan rjóma yfir. Ekkert krydd, bara beikonið. Með glænýjum kartöflum er þetta ótrúlega fljótlegt og lygilega gott. Þetta er eitt af því besta sem ég hef smakkað. Hver eru helstu mistök Íslend- inga þegar þeir fara í ferðalag um landið? Ég held að helstu mistökin liggi hreinlega í því að við ferðumst ekki nógu mikið um Ísland. Ég verð að viðurkenna að þar var ég áður fyrr engin undantekning. En ég hef verið að breyta því og hvílík dýrð sem þessi einstaka náttúra er sem við eigum og hvílíkir veitingastaðir um allt land. Það er fátt betra. Áttu þér uppáhaldsstað á land- inu? Kjósin, þaðan á ég dásamlegar æskuminningar frá dýrindis sumrum með fjölskyldunni og þar á ég ætt- ingja úr föðurættinni svo taugarn- ar liggja alltaf þangað. Þykir óhemju vænt um Kjósina. Úr náttúrunni í umhverfisátakið, Grænn apríl sem þú leggur nú lið annað árið í röð. Umhverfisátakið Grænn apríl er alveg einstakt. Guð- rún Bergmann og Maríanna Frið- jónsdóttir fengu mig til liðs við sig og ég er svo heppin að hafa fengið að vinna með þeim að þessu jákvæða átaki. Ástandið í umhverfismálum í heiminum er orðið skuggalegt og við erum allt of sofandi gagnvart þróun mála á því sviði. Þetta er annað árið sem umhverfisátakinu er hrint af stað í apríl. Skoðað er meðal ann- ars hverjir eru að gera jákvæða og umhverfisvæna hluti, bæði fyrirtæki og einstaklingar. Og einnig hvað má betur fara. Við sem neytendur höfum gífurlega mikið vald með innkaupum okkar, til dæmis fyrir heimilið. Það er í raun í okkar höndum að velja að versla frekar græna og um- hverfisvæna vöru frekar en vörur skaðlegar náttúrunni. Við höfum fengið velflesta fjölmiðla til liðs við okkur, bæði sjónvarpsstöðvarn- ar, útvarpsstöðvarnar og blöðin til þess að sem flestir geti tekið þátt og lagt sitt af mörkum. Margt smátt gerir eitt stórt og ótrúlegt hverju hægt er að áorka í krafti fjöldans. Guðrún og Maríanna eiga skilið að fá fálkaorðuna fyrir frumkvöðlastarf á þessu sviði. Hvað getur almenningur gert til að leggja sitt af mörkum? 1) Breyta bílnum í metanbíl. Það er minn stærsti draumur og á dag- skrá hjá mér. Ekki bara umhverf- isvænt heldur sparar fleiri tugi þúsunda á ári í rekstrarkostnaði. Ekki veitir nú af. 2) Flokka ruslið á heimilinu. Það þarf ekki að vera flókið. Hér í fjöl- býlishúsinu mínu erum við búin að safna 700.000 krónum á tveimur árum, bara með því að flokka og skila flöskum og dósum sem við fengum greitt fyrir. 3) Við eigum að neita að taka við öllum óþarfa umbúðunum sem sett- ar eru utan um vörurnar þegar við verslum, það er fáránlegt magn og ónauðsynlegt. Ásamt því að hugsa vel um nátt- úruna þá ertu þekkt fyrir jákvætt viðmót og unglegt útlit. Hver er galdurinn? Lífrænn matur eins oft og hægt er og reyna alltaf að finna tækifærin til þess að hlæja og vera glaður. Náttúrulega morfínið endorf- ín, sem líkaminn framleiðir við hlát- ur, er sannkallað yngingarmeðal. Ekki alltaf auðvelt, en nauðsynlegt að reyna sem oftast að finna gleðina. Lífið er svo stutt. Eitthvað að lokum? Ég segi eins og Megas „Ef þú smælar framan í heiminn, þá smælar heimurinn fram- an í þig“ og svo finnst mér gott að segja alltaf reglulega við sjálfa mig: Aldrei, aldrei, aldrei að gefast upp! LÍFSSTÍLLINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.