Fréttablaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 12
11. maí 2012 FÖSTUDAGUR12 grundvallaratriði að menn kynni til sögunnar trúverðuga útreikn- inga á því hver auðlindarentan er í raun og veru í sjávarútveginum. Það hvílir að sjálfsögðu á herðum þess sem leggur frumvarp um nýtt veiðigjald fram á Alþingi en menn hafa algjörlega skautað fram hjá því. Þá fyrst gætum við tekið umræðuna um það með hvaða hætti við eigum að skipta henni á milli stjórnvalda og þeirra sem eru í útgerð.“ En mun sá dagur einhvern tím- ann rísa að Sjálfstæðisflokkurinn gangi gegn vilja útgerðarinnar? „Bíðum nú við. Það var í tíð Sjálfstæðisflokksins sem veiði- gjaldinu var komið á. Það var þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór fyrir ríkisstjórn sem auðlinda- nefndinni var komið á fót þar sem öllum þessum hugmyndum var komið í faglegan farveg. Og það var Sjálfstæðisflokkurinn, í sinni stjórnartíð, sem hrinti þessum hugmyndum í framkvæmd. Nú leyfa menn sér að segja að Sjálf- stæðisflokkurinn sé á móti veiði- gjaldi. Það er ekki bara rangt heldur hrein sögufölsun. Það er ekki nóg með að ekki hafi verið verið lagt í þá grundvallar- vinnu að reikna með sanngjörn- um hætti hver auðlindarentan er, heldur hefur verið lagt fram frum- varp sem umsagnaraðilar, meira að segja umsagnaraðilar sem sjáv- arútvegsráðherrann sjálfur kall- aði sér til ráðgjafar, segja að muni leiða til þess að stór hluti útgerð- arinnar muni einfaldlega lenda í greiðsluþroti ef þessar hugmyndir ná fram að ganga. Þá segir sjávarútvegsráðherr- ann og stjórnarliðar: Já allt í lagi, við höfum kannski gengið hér of geist fram, en það er að minnsta kosti orðið ljóst núna að útgerðin þolir meira. Eru það einhver rök í þessu máli? Er ekki hægt að finna fullt af fyrirtækjum í þessu landi, í fjármálaþjónustu, ferðaþjónustu og alls konar iðnaði, sem myndu hugsanlega þola meira, innan gæsalappa? Það þýðir ekki að það sé skynsamlegt að auka álögurn- ar. Ég hélt að við værum að fjalla um grein sem hefði aðgang að tak- markaðri auðlind og að við ætluð- um að ræða hvernig ætti að skipta auðlindarentunni. Menn eru orðn- ir algjörlega rökþrota þegar þeir segjast vera búnir að finna það út að útgerðin þoli meira.“ Þráhyggja um kannanir Annað stórt mál sem virðist ganga erfiðlega að afgreiða í þinginu er stjórnarskrármálið. Sjálfstæð- ismenn hafa ekki verið spennt- ir fyrir því að þjóðin sé innt eftir skoðun sinni á því áður en þing- ið mótar sínar tillögur. En er það ekki einmitt það sem þarf, eigi að nást vottur af samstöðu á þingi? „Það er ekki rétt að við höfum verið á móti því að vinna málið opið og leita eftir sjónarmiðum fólks,“ segir Bjarni. Hann rifjar upp að starfandi hafi verið stjórnarskrárnefnd undir forystu Jóns Kristjáns- sonar sem hafi haldið úti opinni heimasíðu og hvatt alla Íslendinga til að senda inn erindi og koma á framfæri sínum sjónarmiðum um breytingar á stjórnarskránni. Allt sé þetta til í skýrslu. Enn fremur hafi verið haldinn þúsund manna þjóðfundur og niðurstöður hans liggi einnig fyrir. Síðan hafi verið sett á laggirnar stjórnlagaráð, sem Sjálfstæðisflokknum hafi raunar þótt ótímabært. „En gott og vel, það var engu að síður gert. Það kom tillaga frá ráðinu og við sögðum: Fínt. Hér er komin fram tillaga til breytinga á stjórnarskránni og við skulum þá hefjast handa við að endurskoða hana með hliðsjón af þessum til- lögum, og líka öllu því sem við höfum áður fengið. Okkar sjónarmið er það að í dag höfum við í höndunum allt sem þarf til þess að setja vinnuna af stað á Alþingi, þar sem þessi vinna á heima, en þessi vetur hefur algerlega farið forgörðum vegna þess að það virðist vera ein- hvers konar þráhyggja hjá stjórn- arflokkunum að vera stanslaust að senda allar hugmyndir sem koma hingað til þingsins rakleiðis aftur út úr þinginu í einhverjar kann- anir. Og okkur finnst bara komið gott af því. Það er kominn tími til að bretta upp ermar og vinna vinnuna hérna á þinginu. Við munum síðan hvort sem er, þegar þeirri vinnu lýkur, bera afurðina undir þjóðina. Þar er ég einfaldlega að taka undir með formanni stjórnlaga- ráðsins og einstökum stjórnlaga- ráðsmönnum sem sakna þess að þingið taki afstöðu til þeirra hug- mynda sem stjórnlagaráðið hefur sett fram. Það er kominn tími til þess fyrir löngu síðan. Það þarf ekki enn eina kosninguna, sem í raun verður ekki annað en skoð- anakönnun og mun kosta 250 millj- ónir til að veita þinginu sjálfs- traust til að hefja þessa vinnu.“ Ekki fastur í fortíðarágreiningi Leiðtogar stjórnarandstöðunnar hafa ítrekað krafist þess að ríkis- stjórnin fari frá og að boðað verði til kosninga. Kannanir benda til þess að Sjálfstæðisflokkurinn yrði í oddastöðu að loknum slík- um kosningum en miðað við gíf- uryrðin sem fallið hafa flokka á milli upp á síðkastið – ekki síst í tengslum við landsdómsmálið – mætti ætla að stjórnarmyndun gæti reynst torsótt. Bjarni segist hins vegar trúa því að næstu kosn- ingar muni snúast um framtíðina, ekki fortíðina eins og þær síðustu, og vill ekki útiloka nein stjórnar- mynstur fyrir fram. „Ég geri ekki lítið úr því að þau pólitísku réttarhöld sem hér fóru fram hafi spillt stjórnmála- ástandinu á Íslandi en á einhverj- um tímapunkti – og það getur helst gerst í gegnum kosningar þar sem við eigum möguleika á að endurnýja okkur – þá þurfa menn að segja skilið við þá tíma og horfa fram á veginn. Það liggur í þeim orðum mínum að ég ætla mér ekki að festast í fortíðarágreiningi. Við erum hins vegar öll mann- leg hérna og auðvitað hafa svona ákvarðanir alltaf áhrif, en verk- efnið sem við erum að sinna er bara svo miklu stærra en slík- ur ágreiningur á milli einstakra þingmanna.“ S tjórnarandstaðan sætir um þessar mund- ir harðri gagnrýni af hálfu forystumanna rík- isstjórnarinnar fyrir að teppa þingið með umræðum um breytingar á stjórn- arráðinu. Ásakanir um málþóf eru háværar – svo sem ekki í fyrsta skipti á þessum tíma árs. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, segir hins vegar að stjórnvöld geti sjálfum sér um kennt. „Kjarni þess máls er sá að rík- isstjórninni hefur gengið illa að koma frá sér til þingsins þeim málum sem hún leggur áherslu á. Þingstörf hefjast á haustin og síð- ustu daga þingsins er vaninn að þingið uppskeri eftir vinnu nefnda sem átt hefur sér stað yfir vetrar- mánuðina. Í þetta skipti lagði rík- isstjórnin fram tæplega sextíu mál á síðasta mögulega framlagning- ardegi þessa þings og þess vegna hefur skapast sú staða að öll þessi mál eru skammt á veg komin. Það er ekki á ábyrgð stjórnarandstöðunnar heldur ríkisstjórnar- innar.“ En er þetta ekki alltaf svona, ár eftir ár, sama hvaða flokkar sitja við völd? „Það er rétt að þings- ins hefur að jafnaði beðið að afgreiða mik- inn fjölda mála á síðustu dögum þess. En það er hins vegar nýtt að menn komi með í tugatali stór mál, höfuðmál stjórnar- innar, á síðasta fram- lagningardegi og ætlist til þess að þingið hraði þeim í gegnum þingið og kalli allt annað einfald- lega málþóf. Þau mál sem þó hafa komist til nefnda og til umsagn- ar hafa auk þess ein- faldlega fengið fall- einkunn, til dæmis það sem sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram og mundi setja stóran hluta útgerðarinnar á hausinn. Hvar mundi það gerast að stjórn- arandstaða spyrnti ekki við fótum í þeirri stöðu? En ég spyr líka: Hvaða stóru framfaramál eru það sem stjórn- arandstaðan hefur stöðvað á þessu kjörtímabili? Jú, það kann að vera að við höfum tafið lögfestingu ein- hverra mála, eins og Icesave. En ég kannast ekki við að stjórnar- andstaðan hafi stöðvað eitt einasta mál sem ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á. Ég held að ríkisstjórnin hafi bara gert allt sem hún hefur ætlað sér að gera, eins dapurlegt og það er fyrir stjórnarandstöðu- flokk.“ Þingforseti fái aukið vald Bjarni segist engu að síður telja að samstaða gæti verið á þingi um róttækar breytingar á þingsköp- um til að koma betri reglu á þing- fundina. „Ég held að lykillinn að því að gera hér raunverulegar breytingar sé að finna nýtt jafnvægi á milli tillits til stjórnarandstöðunnar og kröfunnar um eðlilegan fram- gang mála,“ segir Bjarni. „Ég sé til dæmis fyrir mér að forseti Alþing- is gæti gegnt lykilhlutverki í því að skipuleggja þingstörfin markviss- ar og að honum yrði fært í hend- ur aukið vald til þess að höggva á hnútinn svo bindandi sé þegar ágreiningur er um framgang þing- starfanna.“ Fyrst þyrfti hins vegar að tryggja að forset- inn yrði ekki bara framlenging á vilja ríkisstjórnarinnar. „Ég nefni þetta sem dæmi um eitt- hvað sem getur komið til álita en ekkert af þessu mun hjálpa ef ríkisstjórnin kemur seint fram með mál og hefur þau illa und- irbúin og illa ígrund- uð.“ Rökþrot að vísa í þol útgerðarinnar Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa miklar áhyggjur af framkomnum kvóta- frumvörpum ríkis- stjórnarinnar. En er ekki alveg ljóst að útgerðin muni alltaf mótmæla harðlega lagasetningu sem bitnar á henni? „Jú, en það sem hefur algjörlega mis- tekist í þessu máli er að horfa til þess sem sameinar menn. Það sem sameinar stjórnina og stjórnarand- stöðuna, og jafnvel útgerðina, er sú skoðun að það sé sanngjarnt að greidd sé auðlindarenta, það er að greitt sé gjald fyrir þann umfram- hagnað sem myndast á grundvelli þess að menn hafa forgang til nýt- ingar þessarar auðlindar.“ Hversu hátt finnst sjálfstæðis- mönnum að það gjald megi vera? „Við höfum alltaf talað fyrir hóflegu veiðigjaldi. Ætli menn að gera breytingar á þessu þá er Föstudagsviðtaliðföstuda gur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisfl okksins Foreldrar ungmenna í hættulegri áfengis- og vímuefnaneyslu flurfa stu›ning og a›sto›. ÁLFASALAN 2012 Höfum ekki stöðvað neitt mál Gera ætti róttækar breytingar á þingsköpum til að koma betri reglu á þingstörfin, að mati Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann segir Stíg Helgasyni þó að staðan á Alþingi núna sé alfarið stjórnarflokkunum að kenna. TIL Í ALLT Bjarni Benediktsson útilokar ekki neitt stjórnarsamstarf að loknum næstu kosningum. Hann ætlar ekki að festast í fortíðarágreiningi um mál á borð við Landsdómsmálið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Ég held að það sé best að ég geymi það nú bara hjá sjálfum mér,“ segir Bjarni Benediktsson, spurður hvern hann hyggist kjósa í forsetakosningunum í júní. „Mér finnst við vera komin í ótrúlegar ógöngur með það að hafa einhvern sameiginlegan skilning á því fyrir hvað þetta embætti stendur. Það er nú kannski það sem veldur mér mestu hugarangri, frekar en hvern ég vil fá á Bessastaði.“ En ertu búinn að ákveða þig? „Nei, satt best að segja er ég ekki ákveðinn hvað ég geri, enda er framboðsfrestur svo sem ekki útrunninn.“ Ekki búinn að velja forsetakandídatNú leyfa menn sér að segja að Sjálf- stæðisflokkur- inn sé á móti veiðigjaldi. Það er ekki bara rangt heldur hrein sögufölsun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.