Fréttablaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 18
11. maí 2012 FÖSTUDAGUR18 Merkisatburðir Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. timamot@frettabladid.is BOB MARLEY, reggísöngvarinn vinsæli, lést á þessum degi árið 1981. „Rastafari er ekki menning, það er raunveruleiki.“ Þennan dag árið 1960 var stríðsglæpa- maðurinn Adolf Eichmann handsamaður af ísraelskum hermönnum í Búenos Aíres í Argentínu. Eichmann var for- ingi í SS-sveit nasista sem sá um að skipuleggja lestakerfið sem flutti fólk í útrýmingarbúðirnar. Hann sá til þess að allt gengi vel, hámarkaði afköst lestanna, lágmarkaði kostnað og tryggði að enginn slyppi. Réttarhöldin yfir Eichmann vöktu athygli um allan heim. Þau fóru fram í Ísrael og hann var meðal annars ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu. Eichmann sagðist ekki sjá eftir neinu og hélt því statt og stöðugt fram að hans ábyrgð væri engin, hann hefði aðeins verið að hlýða skipunum að ofan og reynt að vinna sína vinnu eins vel og hann gat. Eichmann var svo dæmdur og hengdur þann 31. maí 1962. ÞETTA GERÐIST: 11. MAÍ 1960 Adolf Eichmann handsamaður1721 Kötlugos hefst með jarðskjálfta og miklum drunum, sem heyrast allt norður í Eyjafjörð. Gosmökkurinn sést víða að. 1777 Hannes Finnsson er vígður Skálholtsbiskup 38 ára að aldri. Hann gegnir biskupsembætti til æviloka. 1911 Knattspyrnufélagið Valur í Reykjavík er stofnað af fjórtán drengjum í KFUM. 1946 Slysavarnafélag Íslands tekur í notkun nýja björgunarstöð í Örfirisey í Reykjavík. Mikill mannfjöldi er viðstaddur vígslu hennar. 1949 Nafni landsins Síam er breytt í Taíland. 1949 Leikrit Shakespeares, Hamlet Danaprins, er frumflutt í Iðnó. „Áttræðisafmæli er ekkert smáaf- mæli. Okkur langaði til að fara óhefð- bundna leið að því að halda upp á það. Við ákváðum að bjóða okkar stóra og góða starfsmannahópi ásamt mökum, viðskiptamönnum okkar og velunnur- um til tónlistarveislu sem er innblásin af íslenskri tónlistarsögu undanfarinna átta áratuga og tengir saman fortíð og framtíð,“ segir Sveinn Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri Verkís, um metnað- arfulla afmælistónleika fyrirtækisins, sem fram fara í Eldborg Hörpu í kvöld. Þar mun meðal annars hljómsveitin Hjaltalín frumflytja þrjú ný lög sem verða á nýrri plötu hennar sem kemur út í sumar. Aðrir flytjendur á tónleik- unum verða sópransöngkonan Þóra Einarsdóttir, sem frumflytur aríu úr væntanlegri óperu eftir þá Gunn- ar Þórðarson og Friðrik Erlingsson, karlakórinn Fóstbræður, Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari og strengjasveit. Það er Árni Harðarson kórstjóri sem stýrir tónleikunum, en hann setti jafnframt dagskrána saman. Hugmyndin að baki tónleikadag- skrá kvöldsins er að hún spanni átta- tíu ára sögu Verkís. Verkfræðistofan byggir á grunni einnar af elstu verk- fræðistofum landsins, Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, sem sameinað- ist fjórum öðrum stofum í sameining- aröldu verkfræðistofa árið 2008. Auk VST voru þar Rafteikning, Fjarhitun, RT raflagnatækni og Fjölhönnun sem sköpuðu Verkís. Í dag starfa 310 manns hjá fyrirtæk- inu. „Við köllum okkur elstu verkfræði- stofu landsins, þar sem við byggjum á grunni VST. Eftir að fyrirtækin sam- einuðust varð til stórt fyrirtæki sem getur boðið alla þá þjónustu sem bygg- inga-, orku- og iðnaðargeirinn þarf á að halda á einum stað,“ segir Sveinn Ingi. Hann er mjög ánægður með dagskrá tónleikanna. „Þarna verða mestu perl- ur íslenskrar söngtónlistar, á borð við Draumalandið og Lindina, í bland við það flottasta sem er að gerast í íslenskri tónlist í dag,“ segir hann að endingu og býst alveg eins við því að tár muni sjást á hvörmum úti í sal, þegar allra feg- urstu söngperlurnar verði fluttar. „Við vonum það. Að minnsta kosti eigum við von á mjög góðri stemningu.“ holmfridur@frettabladid.is ÁTTRÆÐISAFMÆLI VERKÍS: FAGNAÐ MEÐ STÓRTÓNLEIKUM Í ELDBORG HÖRPU Hjaltalín flytur fjögur ný lög BJÓÐA TIL TÓNLISTARVEISLU Sveinn Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri Verkís, er ánægður með metnaðarfulla tónleikadagskrá kvöldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR IBSEN lést miðvikudaginn 9. maí á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin verður auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU GUÐBJARGAR GUNNLAUGSDÓTTUR frá Efri-Harrastöðum, Skagaströnd, Kópavogsbraut 1B, Kópavogi. Bergdís Ósk Sigmarsdóttir Davíð W. Jack Gunnlaugur G. Sigmarsson Steinunn F. Friðriksdóttir Sigurþór Heimir Sigmarsson Þjóðbjörg Hjarðar barnabörn og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BENEDIKT KARL BACHMANN Kirkjuteigi 29, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn 9. maí. Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju, miðvikudaginn 16. maí kl. 13.00. Margrét Þorsteinsdóttir Þorsteinn Bachmann Rannveig Jónsdóttir Hrefna Bachmann Ólafur Þór Vilhjálmsson Gabríel Benedikt Bachmann Bjartur Örn Bachmann Auður Drauma Bachmann Margrét Björk Ólafsdóttir Sara Sigríður Ólafsdóttir Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR KOLBRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR Hvannarima 16, Reykjavík. Kristján H. B. Ólafsson Bryndís Björk Kristjánsdóttir Jóhann Örn Arnarson Einar Sigurður Kristjánsson Soffía Eðvarðsdóttir Guðni Magni Kristjánsson Margrét Einarsdóttir og barnabörn. Móðir mín, ÁSTRÍÐUR GUÐBJÖRNSDÓTTIR frá Rauðsgili, sem lést fimmtudaginn 3. maí, verður jarðsungin frá Reykholtskirkju laugardaginn 12. maí kl. 14.00. Snorri Tómasson Ástkær bróðir okkar og mágur, HAUKUR ANGANTÝSSON Kristnibraut 77, Reykjavík, lést föstudaginn 4. maí síðastliðinn á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi. Útförin fer fram föstudaginn 11. maí frá Guðríðarkirkju í Grafarholti kl. 15.00. Alúðarþakkir til starfsfólks á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi fyrir góða umönnun og hlýju. Ibsen Angantýsson Hulda Guðmundsdóttir Bára Angantýsdóttir Einar Sigurgeirsson Auður Angantýsdóttir Ólafur Angantýsson Guðrún Angantýsdóttir Viðar Már Matthíasson og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR RUTHAR JÓNSDÓTTUR Herjólfsgötu 40, Hafnarfirði. Inga Jóna Jónsdóttir Steindór Guðmundsson Ólína Bergsveinsdóttir Guðmundur Ragnar Ólafsson Jón Bergsveinsson Ásdís Árnadóttir Björg Bergsveinsdóttir Eggert Dagbjartsson Bergsveinn Bergsveinsson Gígja Hrönn Eiðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.