Fréttablaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 27
LÍFIÐ 11. MAÍ 2012 • 7 Kaffihúsakeðjan Te og kaffi hefur um árabil selt vinsæla kalda kaffi- og tedrykki. Það var þó ekki fyrr en síðasta sumar sem fyrirtækið fór í sérstakt markaðsátak til að kynna sumardrykki sína. Kristín María Dýrfjörð, markaðsstjóri fyrirtækis- ins, segir þau leggja meiri áherslu á sumardrykkina þegar sól hækk- ar á lofti. „Við setjum fjóra nýja og ferska sumardrykki á mark- að í dag föstudag. Að sjálfsögðu bjóðum við svo upp á aðra sum- ardrykki sem hafa notið vinsælda á síðustu árum,“ segir Kristín. Hún segir Te og kaffi hafa aukið við drykkjarúrvalið síðastliðin ár og jafnframt reynt að stíla úrval- ið inn á hvern árstíma. Þannig sé aukið úrval heitra drykkja yfir veturinn á meðan kaldari drykkir fái meira pláss yfir sumartímann. „Við bjóðum áfram upp á vinsæla drykki fyrri ára eins og pippóinn. Kaffibarþjónar okkar höfðu ekki undan við að framreiða hann síð- astliðið sumar. Einnig má nefna lakkrísfrappó og allt ísteið okkar, til dæmis hvíta ísteið, sem er ríkt af andoxunarefnum, græna teið og ávaxtateið. Svo er alltaf í boði að fá rjóma og karamellu- eða súkkul- aðisósu á frappóinn.“ Kristín segir viðskiptavini hafa tekið mjög vel í sumardrykkina. Fjölskyldum þyki til dæmis sérstaklega skemmti- legt að mæta á kaffihúsin þegar allir fjölskyldumeðlimir geta fund- ið sér drykki við hæfi. Heilsubomba sumarsins Te og kaffi hefur selt matcha-latte yfir vetrartímann. Sá drykkur hefur verið mjög vinsæll og því fannst þeim upplagt að búa til kald- an matcha-frappó. Kristín segir drykkinn innihalda matcha-telauf- in sem teljist til ofurfæðu. „Matcha-te er framleitt úr há- gæða japönskum telaufum. Laufin innihalda 10-15 sinnum fleiri nær- ingarefni en annað grænt te og margfalt fleiri andoxunarefni en til dæmis bláber, spínat og spergil- kál.“ Kristín segir matcha-te inni- halda allt telaufið en ekki seyði te- laufanna eins og önnur græn te. „Matcha-frappó er uppáhalds- drykkurinn minn í dag enda er mér umhugað um allt sem er hollt og gott.“ Syndsamlega góður drykkur Sumardrykkurinn í ár verður án efa oreo-frappó,“ segir Kristín. Eins og nafnið gefur til kynna er drykkurinn meðal annars búinn til úr hinum vinsælu Oreo-kexkökum. Hún segir drykkinn vera syndsam- lega góðan. „Oreo-kexið passar alveg einstaklega vel með kaffinu. Ef ég vil gera vel við mig fæ ég mér svona drykk.“ Hún segir drykkinn verða enn betri sé rjóma og súkkulaði- eða karamellusósu bætt við hann. Ljúffengur brennsludrykkur Oolong-te hefur verið kallað megr- unarte. Að sögn Kristínar eykur það fitubrennslu og auðveldar meltingu. Hingað til hafa margir kælt teið og tekið með sér í lík- amsræktina. „Okkur langaði ti l að kynna betur hollustu tesins í gegnum sumardrykkina svo Daníel, sem er kaffibarþjónn hjá okkur, bjó til þennan snilldardrykk. Oolong- og engifer-smoothie er því mjög holl- ur og góður sumardrykkur enda bætum við pressuðum engifer út í hann ásamt mangó- og epla-smo- othie. Virkilega ferskur og sval- andi drykkur.“ Krydduð sumargleði Te og kaffi hefur í langan tíma boðið upp á chai-latte sem er heitur kryddaður tedrykkur. Fyrir sumarið var ákveðið að bjóða upp á kaldan chai-tedrykk og úr varð chai-frappó. Kristín segir marga sem smakkað hafa heita drykk- inn telja að um kaffidrykk sé að ræða. „Þeir sem elska chai-latte munu kunna vel að meta þenn- an drykk.“ SYNDSAMLEGA GÓÐIR SUMARDRYKKIR Í SÓLINNI Mikil sprenging varð í sölu kaldra sumardrykkja hjá Te og kaffi síðasta sumar. Í ár verða fjórir svalandi sumar- drykkir kynntir til sögunnar sem bætast við flóru eldri vinsælli drykkja. „Við setjum fjóra nýja ferska sumardrykki á markað í dag, föstudag,“ segir Kristín María Dýrfjörð, markaðsstjóri hjá Te og kaffi. MYND/VILHELM Inniheldur: Chai-teblöndu, ísmola, mjólk og síróp. Inniheldur: Matcha-te, ísmola og síróp. Inniheldur: Formosa oolong-te, engiferskot og epla- og mangó- smoothie. Hinn sívinsæli karamellufrappó svíkur engan. Í honum er kaffi, ís- molar, síróp, rjómi og karamellu- sósa. AUGLÝSING: TE & KAFFI KYNNIR CHAI FRAPPÓ MATCHA FRAPPÓ OOLONG & ENGIFER SMOOTHIE KARAMELLU FRAPPÓ OREO FRAPPÓ Inniheldur: kaffi, ísmola, Oreo kex- kökur og mjólk. Sjá nánar á visir.is/lifid
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.