Fréttablaðið - 11.05.2012, Qupperneq 22
2 • LÍFIÐ 11. MAÍ 2012
Fjöldi fólks lagði leið sína
á Höfðatorg í vikunni
sem leið. Á veitingahús-
inu Happi mátti sjá Ástu
Andrésar, Ásu Ninnu Pét-
ursdóttur eiganda GK,
Silju Hrund Einarsdóttur
fatahönnuð og Birnu
Rún Gísladóttur
gæða sér á holl-
ustunni. Ingunn
Helgadóttir, eða
Systa, sem kennd
er við KFC-veitinga-
húsakeðjuna, sat á Ís-
lensku kaffistofunni
ásamt eiginmanni
sínum, Atla Ein-
arssyni. Á veit-
ingahúsinu Osushi
í Borgartúni mátti sjá
fréttakonuna og hina ný-
bökuðu móður, Sigrúnu
Hilmarsdóttur, geislandi
með mánaðargamlan
son sinn ásamt héraðs-
dómslögmanninum Heið-
rúnu Lind Marteinsdóttur.
Útgáfufélag 365 miðlar ehf.
Forsíðumynd Valgarður Gíslason
Útlitshönnun Arnór Bogason
Auglýsingar Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Lífið Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, sími 512 5000
www.visir.is/lifid
UMSJÓN
Ellý Ármanns elly@365.is
Kolbrún Pálína Helgadóttir
kolbrunp@365.is
HVERJIR
VORU
HVAR?
Klæðnaður Ingu: GALLERÍ 17 og í
einkaeigu, G.S. SKÓR Hár og önnur
aðstoð: Halldóra Ágústsdóttir Förðun:
Anna Björg Þorvaldsdóttir
M
Y
N
D
IR
/V
IL
H
E
LM
ALLIR ÖRUGGIR
ÚT AÐ HJÓLA
www.markid.is sími 517 4600 Ármúla 40
Mikið úrval reiðhjóla
af öllum gerðum
fyrir dömur, herra og börn
Markið er sérhæfð sportvöruverslun.
30 ára reynsla og þekking starfsmanna
skapar Markinu sérstöðu á sínu sviði.
Öll hjól e ru
yfirfarin
á verkstæði
Marksins, einu
fullkomnasta
hjólaverkstæði
á Íslandi.
Dorrit Moussaieff mætti
á sýninguna Handverk og
hönnun í Ráðhúsinu á laug-
ardaginn. Hún sýndi hönn-
un Þórdísar Jóhannsdóttur
Wathne, sem á og rekur
Spunadís, mikinn áhuga en
Þórdís handgerir fallegt
hálsskraut sem vakið
hefur athygli hjá ís-
lenskum konum.
„Ég var að sýna hönnunina
mína, Spunadís. Þetta eru
bæði hálsmen og kragar
fyrir konur á öllum aldri. Við-
tökurnar voru frábærar enda gera
þessir fylgihlutir mikið fyrir annars
látlausar flíkur. Dorrit á tvo hluti eftir
mig, bæði hálsmen og kraga. Hún
sýndi sýningunni mikinn áhuga, hitti
hönnuði og spjallaði við þá. Hún
kom við hjá mér og lýsti ánægju
sinni á hönnun minni og sagðist hafa
notað hana við mörg tilefni. Það er
auðvitað mikilvægt fyrir íslenska
hönnuði að finna þennan áhuga,“
segir Þórdís hæstánægð yfir áhuga
forsetafrúarinnar.
DORRIT HRIFIN AF SPUNADÍS
Dorrit mátar hönnun Þórdísar.
„Það er okkur sönn ánægja að fá að taka
þátt í þessu verkefni,“ segir Lilja Kon-
ráðsdóttir hjá Max Factor um samstarf
snyrtivörumerkisins og sjónvarpsþátta-
seríunnar Finlands Next Top Model. Einn
þáttur úr seríunni var tekinn upp hér á
landi í vikunni og tileinkaður Íslandi. Öllu
var til tjaldað og útkoman var hin glæsi-
legasta.
„Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuð-
ur sá um tískusýninguna sem fram fór í
Hörpunni. Einnig komu stúlkurnar fram í
flugfreyjueinkennisbúningum Icelandair
frá upphafi starfsemi þess til nútímans
og hitti það svo sannarlega í mark hjá
flugfreyjukórnum sem kom og söng fyrir
gesti.“
Lífið kíkti baksviðs á meðan undirbún-
ingur tískusýningarinnar stóð sem hæst
og fylgdist með. Ísak Freyr sá um förð-
un og Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack
um hárið.
Sjá má fleiri myndir af viðburðinum á
Facebooksíðu Max Factor á Íslandi.
NEXT TOP
MODEL Á ÍSLANDI