Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.05.2012, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 11.05.2012, Qupperneq 25
LÍFIÐ 11. MAÍ 2012 • 5 Mæðgurnar Elísabet Guðmundsdóttir og Guðfinna Helga Þórðardóttir eru nýir eigendur skóbúðarinnar Bianco í Kringlunni. „Við erum á sama stað og áður en erum búnar að gera búðina algjörlega upp og breyttum henni mikið. Við erum komnar með nýjar vörur og ætlum að vera með mikið flæði í búðinni. Svo fáum við nýjar vörur á tveggja vikna fresti þannig að það verða alltaf einhverjar nýjungar,“ segir Elísabet. Bianco býður nú ekki einungis upp á skó heldur einnig töskur, skart og aðra fylgihluti. „Við erum með mikið úrval af skartgripum og töskum og alls kyns aðra fylgihluti svo sem naglalökk og fleira. Svo viljum við leggja áherslu á að Bianco er líka búð fyrir herra. Við erum með fallega herralínu og miðum alls ekki að einhverjum ákveðnum hópi. Hér ættu bæði karlmenn og konur á öllum aldri að geta fengið skó við sitt hæfi á sanngjörnu verði.“ Elísabet segir sumarið í skótískunni verða litríkt. „Það verða glamúrhæla- skór og sumarsandalar og allt þar á milli. Háir hælar eru inni og fylltu hæl- arnir eru enn í gangi. Litirnir verða meðal annars skærir: bleikir, myntugræn- ir og bláir. Tískan verður mjög fjölbreytt og nánast allt í gangi.“ Elísabet hefur lengi unnið hjá Bianco og þekkir verslunarkeðjuna því vel. Þær mæðgur fóru til Danmerkur í skoðunarleiðangur þar sem þær litu á aðrar Bianco-verslanir áður en þær réðust í endurbæturnar á búðinni í Kringlunni. „Bianco er stór keðja verslana og því mikið að gerast og alltaf einhver þemu í gangi. Nú erum við að fara af stað með partýþema og verða ýmis skemmtilegheit í kringum það,” segir Elísabet. Hún segir þær mæðgur fyrst og fremst leggja áherslu á góðar vörur, sanngjarnt verð, góðan anda og góða þjónustu.“ GLAMÚR, GLIMMER OG SKÆRIR LITIR Bianco hefur opnað nýja og endurbætta verslun í Kringlunni. Þar er hægt að fá skó, skart og alls kyns fylgihluti í miklu úrvali. Mæðgurnar Elísabet Guðmundsdóttir og Guðfinna Helga Þórðardóttir eru nýir eigendur Bianco í Kringlunni. MYNDIR/VALLI Skór með fylltum hæl verða áfram í tísku í sumar. Búið er að gera Bianco algjörlega upp og breyta versluninni mikið. Þessar flottu töskur eru hluti af nýrri fylgihlutalínu Biancos. Mæðgurnar í Bianco leggja fyrst og fremst áherslu á góðar vörur, sanngjarnt verð, góðan anda og góða þjónustu.“ Bianco er líka fyrir strákana og býður verslunin upp á fallega herra- skólínu. Miki l l g lamúr verður í tískunni í s u m a r o g þessir glimm- erhælaskór hitta beint í mark. Bianco býður nú upp á alls kyns fylgi- hluti, naglalökk, töskur og skartgripi. Heitustu litirnir í sumar verða meðal annars skær- ir: bleikir, myntugrænir og bláir. AUGLÝSING: BIANCO KYNNIR Þessir fallegu skór prýða ef- laust einhverja blóma- rósina í sumar. Elísa- bet segir tískuna verða fjölbreytta í sumar. Sjá nánar á visir.is/lifid

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.