Fréttablaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 28
8 • LÍFIÐ 11. MAÍ 2012 Hún er næturdrottning ef svo má að orði komast. Hún hefur í það minnsta staðið vaktina á NASA í rúman áratug og notið hvers dags og hverrar nætur í starf- inu. Nú, þegar starfsemi þessa farsæla skemmtistaðar er að ljúka, fannst Lífinu viðeigandi að setjast niður með Ingu á Nasa eins og hún er kölluð og ræða far- inn veg. Hver er Inga á Nasa? Ég er bara ósköp venju- leg íþróttastelpa úr Vesturbænum sem gat aldrei verið kyrr. Ég hafði ekki einu sinni tíma til að bíða eftir strætó og fór heldur frá Reyni- mel niður í bæ á handahlaupum. Ég varð snemma ábyrgðarfull og var byrj- uð að passa börn aðeins níu ára gömul. Pen- ingar urðu strax eitthvað sem skipti mig miklu máli og ég reiknaði allt út frá því hversu marg- ar gallabuxur ég gæti keypt. Hvað dreymdi þig um að verða þegar þú yrðir stór? Ég ætlaði alltaf að verða ballett- dansari eða húsmóðir en, ótrúlegt en satt, gekk hvorugt eftir. Ætli ég hafi nokkuð verið með það á hreinu þar sem ég var alltaf að fá nýjar hugmyndir og prófa eitthvað nýtt. Það er í það minnsta ekki hægt að segja að ég hafi verið rólegt barn, ég var alltaf á fullu. ÞETTA VERÐUR ÁFALL STEFÁN HILMARSSON Staður með áru og sál Hvernig líður þér með það að nú sé skemmtistaðurinn Nasa allur? Mér finnst grábölvað að sjá á eftir þessum sal. Bæði á hann sér nokkuð merka sögu og er auk þess einn fárra á landinu með áru og sál sem hæfir þeim sveittu og heitu samkomum sem stand- andi popptónleikar eru. Salurinn hefur í senn eiginleika félagsheimilis og klúbbs, hann er hæfilega „smooth“, en einnig temmilega röff, þó ávallt þrifalegur og aldrei sjoppuleg- ur, Inga hefur séð til þess. Og hún hefur um langt skeið verið besti vertinn í bransanum, gerir alltaf vel við sína listamenn, er sannkallað- ur höfðingi heim að sækja. Hvað þýðir þetta fyrir tónlistarmenn eins og þig , Sálina, Gus Gus og fleiri? Fyrir utan fyrrnefnda kosti þá er stærðin lykilatriði. Nasa hentar vel fyrir 600-800 manna samkom- ur, sem passar Sálinni ágætlega. Í fljótheitum man ég ekki eftir neinum sal í Reykjavík af þessari stærð, allra síst í eða við miðbæinn, hvað þá sal sem geymir álíka andrúmsloft. Það verður því vont að missa Nasa út af kortinu, ekki aðeins fyrir okkur, heldur fleiri sjóuð bönd. Svo ekki sé minnst á viðburði eins og Iceland Airwaves. Er einhver staður á Íslandi sem er sambærilegur Nasa í augnablikinu. Það má nefna Spot í Kópavogi, það er prýðilegt samkomuhús, en þó er andinn þar mjög ólíkur andanum á Nasa. Harpa er fín fyrir sinn hatt, en salirnir, aðstaðan og andrúmsloftið eru bara allt annars eðlis en á Nasa, það er alls ekki sambæri- legt. Svo ekki sé minnst á háan kostnað sem fylgir tónleikahaldi í Hörpu, sem er kapítuli út af fyrir sig. Auðvitað er undirliggjandi ástæða endaloka Nasa sú að rekstur slíks staðar hefur verið að þyngjast, sér í lagi eftir að Harpa kom til skjalanna. Bransinn er einn- ig orðinn „fragmentaðri“ en áður var, með síaukinni miðlun hafa opnast fleiri leiðir fyrir hljómsveitir til að koma sér á framfæri, sem er gott og blessað. Og á meðan þær sveitir eru að byggja upp áhangendahóp, þá hentar þeim að spila á 200-300 manna stöðum, sem töluvert er til af. En þegar vinsældirnar taka að aukast er orðið í færri svöl og sveitt hús að venda. INGIBJÖRG ÖRLYGSDÓTTIR ALDUR: 45 ára. HJÚSKAPARSTAÐA: Einhleyp í þessum rit- uðu orðum. BÖRN: Hundurinn Bono. LÍKAMSRÆKTIN? Tabata í Sporthúsinu og langar göngur. DEKRIÐ? Gott andlitsbað er það besta sem ég veit um. TÍMARITIÐ? HELLO. HEIMASÍÐAN? nasa.is SJÓNVARPSÞÁTTURINN? Top Model. VEITINGASTAÐURINN? Fer sjaldan út að borða, en fór með Páli Óskari um daginn á Grillmarkaðinn og við gáfum staðnum fullt hús stiga. ALMENN LEIÐSÖGN OG GÖNGULEIÐSÖGN Leiðsöguskólinn sími: 594 4025 Draumastarfið í draumalandinu LEIÐSÖGU SKÓLINN WWW.MK.IS Ef þér finnst gaman að ferðast um Ísland og umgangast erlenda ferðamenn þá gæti leiðsögunám verið fyrir þig. Leiðsögunám er fjölbreytt og skemmtilegt og getur opnað dyr að áhugaverðu og krefjandi starfi. INNRITUN STENDUR TIL 31. MAÍ Kannt þú erlend tungumál?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.