Fréttablaðið - 11.05.2012, Side 29
LÍFIÐ 11. MAÍ 2012 • 9
HÁRBAND MEÐ FJÖÐRUM
995 kr.
SIX KRINGLUNNI OG SMÁRALIND
SIX KYNNIR:
STRANDATASKA
1.195 kr.
SIX KRINGLUNNI OG SMÁRALIND
Hvernig unglingur varstu? Ég var
snarvitlaus unglingur, sem vildi vaka
fram eftir nóttu en tókst það aldrei
þar sem líf mitt snerist nánast alfar-
ið um íþróttir. Ég keppti meðal ann-
ars í sundi og frjálsum í nokkur ár en
sneri mér svo meira að langhlaupum
og hljóp í mörg ár alla daga, hvern
einn og einast dag ársins.
Ég var svolítill pönkari á unglings-
árunum og klæddist eftir því þar til
einn góðan veðurdag að ég ákvað
að gerast diskópían sem ég er í dag.
Hvernig kom það til að þú fórst í
skemmtanabransann? Ég slysaðist
alveg óvart inn í skemmtanabrans-
ann er ég fluttist heim eftir dvöl mína
á Ítalíu þar sem ég hafði búið í nokk-
ur ár og verið gift ítölskum manni.
Ég hóf ferilinn á Óðali, sem þá var
skemmtistaður en breyttist síðar í
strippstað. Ég tók verkefnið föst-
um tökum og rak staðinn af mikilli
ástríðu, vann dag og nótt og hafði
heilmikið upp úr því. En skömmin
og umtalið var alltaf skammt undan.
Þremur árum síðar kom svo tilboð
sem ég gat ekki hafnað og ég fann
að ég var komin með delluna og það
varð ekki aftur snúið. Það er mikil
spenna í kringum svona rekstur og
erfitt að halda sig frá honum þegar
maður hefur kynnst honum.
Það var svo árið 2001 að við
Garðar Kjartansson opnuðum Nasa.
Við áttum Nasa til ársins 2006.
Þegar við svo seldum staðinn ætl-
aði ég að vera nýjum eigendum inn-
anhandar en endaði með því að taka
Nasa aftur yfir níu mánuðum síðar.
Hefur alltaf verið jafn gaman öll
þau ellefu ár sem þú hefur verið
viðloðandi staðinn? Mér hefur allt-
af fundist jafn gaman að reka Nasa,
já, og ég hef alltaf fílað mig í botn í
þessari vinnu.
Hvað stendur upp úr þegar þú
horfir til baka? Það er mér erfitt
að nefna eitthvað eitt sem stendur
upp úr. Í heildina er þetta búið að
vera mjög gefandi og skemmtilegt í
alla staði og ég hef kynnst ótrúlega
mörgu flottu fólki. En ég get sagt
það að spennan við að bóka gott
„gigg“ og undirbúa það er ólýsan-
leg. Ég fæ alltaf stórt fiðrildi í mag-
ann fyrir Eurovision, Gay-pride og
Airwaves af spenningi.
Hafa margar erlendar stór-
stjörnur kíkt við í gegnum árin?
Stærstu stjörnurnar eru líklega Harr-
ison Ford og Kiefer Sutherland sem
eyddi hér heilum degi og fór meðal
annars út að pissa með hundinn
minn hann Bono. Svo fékk hann að
afgreiða aðeins á barnum um kvöld-
ið sem honum fannst ekkert lítið
skemmtilegt. Hann bauð mér svo í
nokkur partý en ég sagði alltaf nei
takk. Hann brosti bara og sagði „I
know, you are a smart girl“.
Er einhver ein hljómsveit eða
listamaður sem stendur þér sér-
staklega nærri eftir öll þessi ár?
Mest og best hef ég líklegast kynnst
Sálinni hans Jóns míns, Gus Gus og
Páli Óskari. Samstarf við þessa tón-
listarmenn hefur verið eins og góð
hjónabönd eiga að sér að vera og
mér þykir einstaklega vænt um allt
þetta tónlistarfólk. Páll Óskar hefur
á þessum tíma til dæmis orðið einn
af mínum bestu vinum. Við höfum
ferðast saman til útlanda, farið á
tónleika með Madonnu og fleira.
Einnig erum við Stefán Hilmarsson
mjög góðir vinir eftir allt samstarf-
ið. Krakkarnir í FM Belfast og Retro
Stefson eru alveg yndislegir, sömu-
leiðis strákarnir í Diktu og svona
gæti ég haldið áfram að telja …
Það liggur fyrir að starfsemi
Nasa verði lögð niður, hvernig
líður þér með það? Það er óhætt
að segja að ég muni sakna Nasa
enda hefur þetta verið mitt líf í rúman
áratug. Svona í hreinskilni sagt, þá
verður þetta án efa áfall allt saman.
Bara það að ganga inn í salinn fyllir
mig alltaf gleði og góðum anda. Ég
á eftir að sakna allra tónlistarmann-
anna, starfsfólksins sem hefur starf-
að hérna hjá mér í mörg mörg ár og
sumir hverjir frá upphafi. Svo bara
allra sem sækja NASA. Þess að kíkja
út á Austurvöll og sjá lífið í beinni;
alþingismenn, útigangsmenn og allt
þar á milli. Sýna mig og sjá aðra.
Hverjar eru ástæður þess að
staðurinn fær ekki að lifa áfram?
Ástæða þess að Nasa er lokað er
sú að til hefur staðið lengi hjá hús-
eigandanum Pétri Þór Sigurðssyni,
hæstaréttarlögmanni að byggja hótel
á þessum reit. Hann keypti jú þenn-
an reit með því hugarfari.
Hefurðu reynt að telja honum
hughvarf? Við Pétur Þór höfum átt
ágætis samstarf alla tíð. Það má eig-
inlega segja að við séum sammála
um að vera ósammála hvað varðar
þetta fallega hús.
Í hvert skipti sem hann kemur í te,
röltum við einn hring og ég tala um
góðu andana í húsinu. Hann bros-
ir þá bara til mín og segir: „þú ert
ágæt.“
Það ber að sjálfsögðu að virða
Framhald á síðu 10
Gríptu með þér Floridana. Morgunsafi, Heilsusafi, Appelsínusafi og Sumarsafi
frá Floridana eru 100% hreinir ávaxtasafar framleiddir úr úrvals hráefnum og
innihalda engan viðbættan sykur. Fáðu þér Floridana og lifðu vel. LIFÐU VEL!