Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.05.2012, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 11.05.2012, Qupperneq 54
11. maí 2012 FÖSTUDAGUR34 FÖSTUDAGSLAGIÐ Hljómsveitin Hjálmar verður á faraldsfæti í sumar. Hún kemur fram á tónlistarhátíðunum Festival de- affaire og Into The Great Wide Open í Hollandi, Bazant Pohoda-hátíðinni í Slóvakíu, Ilmiö-hátíðinni í Finnlandi og á Íslandshátíð í Mobryggju í Noregi. Eins eru í undirbúningi tónleikar í Moskvu og á Grænlandi. Hér á Íslandi spila Hjálmar í annað sinn á Þjóðhátíð í Eyjum föstudaginn 3. ágúst. „Þetta eru flottir staðir og allt staðir sem við höfum ekki heimsótt áður, nema Moskva,“ segir Kiddi í Hjálmum sem er spenntur fyrir sumrinu. „Mig hefur lengi langað að spila á Grænlandi og það verður skemmtilegt að fara með íslenska reggíið þangað.“ Eins og Fréttablaðið hefur greint frá ætlar finnski tónlistarmaðurinn Jimi Tenor að vinna með Hjálmum að nýrri plötu. Samstarfið leggst mjög vel í Kidda en Tenor kemur til landsins 27. maí. „Hann stakk upp á að þetta yrði Black Sabbath-þema. Laga- titlarnir eru meðal annars Money Is My Master og Smoke Gone Wrong. Þetta eru svolítið dökkir laga- titlar við frekar gleðilegt reggí. Hugmyndin er að gera myrka reggíplötu og hann er búinn að dæla á okkur „demóum“.“ Að sögn Kidda mun Samúel Jón Samúelsson aðstoða þá á plötunni ásamt stórri brasssveit. Fyrstu tónleikar Hjálma í sumar verða í Gamla bíói 12. maí. Hjálmar og Tenor spila svo á tónleikum Hljómskálans í Hörpu 2. júní þar sem heyra má afrakstur samstarfs þeirra. - fb Hjálmar ferðast um Evrópu „Ég hef verið að hlusta svolítið á The National og lagið Blood- buzz Ohio kemur mér alltaf í gírinn á föstudögum.“ Þormóður Dagsson, forsprakki hljóm- sveitarinnar Tilbury. „Þetta er glæný hugmynd og þjón- usta sem vantaði og markaðsetn- ing fyrir Ísland í leiðinni,“ segir Unnar Helgi Daníelsson Beck, eig- andi fyrirtækisins Memo Iceland, sem sér til þess að ferðamenn gleymi ekki ævintýrum sínum á Íslandi. Memo Iceland býður upp á þá þjónustu að fylgja ferðamönn- um eftir og festa dvöl þeirra hér- lendis á filmu. Ferðalangarn- ir geta svo tekið með sér stutta heimildarmynd um ferðina til að sýna vinum og vandamönnum heima fyrir. Unnar Helgi segir þjónustuna hafa fengið góð við- brögð hingað til. „Ég vann við kvikmyndagerð í sjö ár áður en ég stofnaði ferðaþjónustufyrir- tækið og fannst tilvalið að blanda þessu tvennu saman,“ segir Unnar Helgi, sem einnig á fyrirtækið Reykjavik Rocks. „Þessi þjónusta er kjörin hérna á Íslandi því flest- ir sem koma hingað eru að skoða mikið á stuttum tíma. Þess vegna er gaman að geta tekið með sér stutta heimildarmynd um ferðina og geyma þannig minninguna á skemmtilegan hátt.“ Að sögn Unnars verður þjón- ustan á sanngjörnu verði en fyrirtækið er með marga færa tökumenn og klippara í vinnu. Meðallengd myndanna er um fimm mínútur. „Þetta er kjörin vinna fyrir fólk sem er nýbúið með Kvikmyndaskólann og fær þannig reynsluna.“ Þó að aðalmarkhópurinn séu ferðamenn geta Íslendingar einnig nýtt sér þjónustu Memo Iceland. „Ég hef fengið margar fyrirspurnir um hvort við viljum skrásetja steggjanir og gæsanir svo ég býst við að það verði líka smá að gera í því í sumar.“ Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um Memo Iceland á vefsíðunni Reykjavikrocks.is. - áp Festa ferðalagið á filmu HEIMILDARMYNDIR UM FERÐLAGIÐ Unnar Helgi Daníelsson Beck hefur stofnað fyrirtækið Memo Iceland sem sérhæfir sig í að búa til heimildarmyndir fyrir ferðamenn sem koma hingað til lands. Anna Rakel Ólafsdóttir, fata- hönnunarnemi við Istituto Mar- angoni hönnunarskólann í París, er í hópi tíu hönnuða sem komnir eru í úrslit í hinni árlegu Triumph Inspiration Awards-hönnunar- keppni. Keppnin er á vegum nær- fatafyrirtækisins Triumph og fer sigurvegarinn áfram í lokakeppni sem fram fer í Sjanghæ í október. Anna Rakel er á öðru námsári við Istituto Marangoni og hefur búið í París ásamt dóttur sinni og manni frá árinu 2010. Hún segir hönnunarkeppnina vera spennandi tækifæri fyrir hönnunarnema eins og hana enda hafi hún lært ýmis- legt nýtt og nytsamlegt með þátt- tökunni og að auki hlotið mikla umfjöllun í frönskum fjölmiðlum sem fylgjast vel með framgangi keppninnar. „Stór mynd af verkinu mínu birtist meðal annars í Madame Figaro og það er líka verið að vinna heimildarmynd um keppn- ina. Heilt tökulið kom þá heim til mín klukkan sex um morguninn og fylgdist með mér gera morgun- verkin mín og fylgja dóttur minni í skólann þannig að þetta kemur manni að einhverju leyti á fram- færi,“ segir Anna Rakel. Sá er sigrar frönsku keppnina fer síðan út til Sjanghæ í október en þar verður lokakeppnin haldin. Þema keppninnar í ár var „drekar og fiðrildi“ og hannaði Anna Rakel samfellu með prjónaðri hettu og slóða. „Við fengum að vita þemað í des- ember og gátum þá hafist handa við hugmyndavinnu. Svo höfum við fengið þrjá fundi með dómur- um sem komu með ýmsar ábend- ingar um hvað mætti betur fara.“ Lokakvöld frönsku keppninnar var í gærkvöldi og þegar Frétta- blaðið náði tali af Önnu Rakel var hún ósofin á leið á æfingu fyrir kvöldið. „Ég var í alla nótt að laga og ganga frá flíkinni og nú svíf ég um hálf ósofin og búin að drekka alltof mikið kaffi og bíð spennt eftir kvöldinu,“ segir hún að lokum. sara@frettabladid.is ANNA RAKEL ÓLAFSDÓTTIR: ÓSOFIN OG BÚIN AÐ DREKKA OF MIKIÐ KAFFI Í úrslit í nærfatakeppni á vegum Triumph í París Í ÚRSLIT Anna Rakel Ólafsdóttir fatahönnunarnemi er komin í úrslit í Triumph Inspiration Awards-hönnunarkeppninni í Frakklandi. MYND/INGIBJÖRG TORFADÓTTIR Nærfatafyrirtækið Triumph var stofnað í bænum Heubach í Þýskalandi árið 1886 af tveimur fjölskyldum, Spiesshofer og Braun. Fyrirtækið framleiddi upphaflega lífstykki og fór öll framleiðslan fram í hlöðu til að byrja með. Síðan hefur fyrirtækið vaxið og dafnað og í dag starfa um 36.500 manns hjá því í yfir tvöhundruð löndum. Árið 2009 voru árstekjur fyrirtækisins um 300 milljarðar. ÚR HLÖÐU Í STÓRVELDI Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00 Glæný Bláskel frá Stykkishólmi Ferskur Túnfiskur Alla föstudaga og laugardaga Humar 2.350 kr.kg Óbrotinn fyrsta flokks humar Fiskibollur að dönskum hætti (lax, þorskur, dill, rjómi, krydd) Harðfiskurinn frá Stykkishólmi Þessi sjúklega góði Humarsoð frá Hornarfirði Meiri Vísir. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á vísi. Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir, ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér allt sem Vísir hefur upp á að bjóða. HJÁLMAR Hljómsveitin verður á faraldsfæti í sumar og spilar á mörgum tónlistarhátíðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.