Fréttablaðið - 29.05.2012, Blaðsíða 4
29. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR4
GENGIÐ 25.05.2012
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
224,6096
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,92 129,54
202,14 203,12
162,11 163,01
21,813 21,941
21,435 21,561
18,029 18,135
1,6201 1,6295
195,62 196,78
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
FULLKOMINN FERÐAFÉLAGI!
ÖFLUG SPRENGING Hjúkrunarfólk þurfti
að hlúa að særðum á götum úti eftir að
öflug sprenging sprakk í Naíróbí.
NORDICPHOTOS/AP
KENÍA, AP Að minnsta kosti 33 eru
særðir eftir öfluga sprengingu í
Naíróbí, höfuðborg Keníu, í gær.
Grunur leikur á að um hryðju-
verk sé að ræða en samkvæmt
forsætisráðherra landsins, Raila
Odinga, hafa hryðjuverkasam-
tökin Al-Shabab hótað árásum á
borð við þessa í Naíróbí um hríð.
Sprengingin átti sér stað í
verslunargötu í miðborginni
en þeir særðu fengu aðstoð frá
hjúkrunarfólki á götum úti á
meðan lögreglumenn reyndu að
bægja forvitnum mannfjöldanum
frá. Árásin átti sér stað stutt frá
bandaríska sendiráðinu þar sem
sams konar sprenging varð 224
manns að bana árið 1998. - áp
Hryðjuverk í Kenía:
33 særðust í
sprengingu
EKKI SÉÐ ANNAÐ EINS Þurrkarnir í
Norður-Kóreu eru verstir á vesturströnd
landsins. NORDICPHOTOS/AP
NORÐUR-KÓREA, AP Alvarlegir
þurrkar ganga nú yfir Norður-
Kóreu sem gætu haft áhrif á
matvælabirgðir landsins, en þær
eru nú þegar slæmar. Ólíklegt
þykir að hjálp berist frá Banda-
ríkjunum eða Suður-Kóreu, sér-
staklega eftir eldflaugaæfingar
landsins í apríl.
Engin úrkoma hefur verið í
Norður-Kóreu síðan 27. apríl,
sem þýðir 31 dag án rigningar, og
eru aðstæður sérstaklega slæmar
á vesturströnd landsins. Bændur
kvarta yfir þornuðum ökrum og
segja þurrkinn þann versta í 30
ár.
Bandarísk stjórnvöld segjast
gjarna vilja veita landinu aðstoð
en að Norður-Kórea hafi brotið
samninga með eldflaugaæfingum
sínum í síðusta mánuði. - áp
Þurrkar í Norður-Kóreu:
31 dagur liðinn
án úrkomu
Seðlabúnt um borð í flugvél
Tíu þúsund norskar krónur fundust
við eitt sæti flugvélar Iceland Express
á sunnudag. Seðlarnir fundust þegar
verið var að þrífa vélina. Lögreglunni
á Suðurnesjum var gerð viðvart og
tók hún peningana í sína vörslu.
Upphæðin samsvarar um 215 þúsund
íslenskra króna.
LÖGREGLUMÁL
Hrakti tvo þjófa á flótta
Húsráðandi í Reykjanesbæ hrakti
tvo innbrotsþjófa á flótta frá heimili
sínu á föstudagsnótt. Maðurinn var
að koma heim og sá þá tvo menn
að brjótast inn í húsið. Annar hafði
farið inn um baðglugga og var í þann
mund að hleypa félaga sínum inn, en
þeir flúðu á brott þegar húsráðandi
kom heim.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VIÐSKIPTI Orkuveita Reykjavíkur
(OR) hefur samið við belgíska
bankann Dexia Crédit Local um
breytingar á afborgunum lána.
„Samningurinn auðveldar
okkur róðurinn klárlega. Það
má líka segja að þetta skapi
okkur betri samningsstöðu þegar
kemur að eignasölu auk þess að
veita okkur tækifæri á því að
stíga frekari skref,“ segir Ingvar
Stefáns son, framkvæmdastjóri
fjármála hjá OR, og heldur áfram:
„Erlendir bankar hafa alltaf litið
á þennan stóra gjalddaga á næsta
ári og spurt hvernig við ætlum að
ráða við hann. Þó við höfum getað
sýnt þeim plan um hvernig við
ætluðum að gera það þá styrkir
þetta stöðu okkar og gefur mögu-
lega tækifæri síðar á að læsa inni
lægri vexti á hluta lánanna en
áætlunin gerir ráð fyrir.“
Eins og áður sagði stendur OR
frammi fyrir stórum gjalddögum
á næstu árum en samanlagt nema
afborganir hátt í 100 milljörðum
króna til og með árinu 2016.
Erfiðasta árið þar af er næsta
ár en samkvæmt síðasta árs-
reikningi fyrirtækisins voru 29,3
milljarðar á gjalddaga á árinu.
Samningurinn við Dexia seinkar
afborgunum um 5,4 milljarða til
ársloka 2015.
Þar með dregur samningurinn
úr þörf OR fyrir erlendan gjald-
eyri næstu misserin sem gæti
valdið því að gengi krónunnar
verði sterkara á árinu en ella.
- mþl
Nýr samningur auðveldar OR að standa í skilum á stórum gjalddaga á næsta ári:
Seinkar greiðslum á fimm milljörðum um tvö ár
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Stjórnendur
OR hafa á síðustu misserum hagrætt
verulega í rekstri með það fyrir augum
að tryggja rekstrargrundvöll fyrirtækisins
sem er mjög skuldsett. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
26°
17°
15°
22°
23°
15°
15°
25°
18°
26°
29°
31°
15°
25°
19°
12°
Á MORGUN
Hægviðri eða hafgola.
FIMMTUDAGUR
Hægviðri eða hafgola.
11
13
1313
13
13
16
11 14
17
15
14
13
15
17
8
13
9
12
9
11
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
BJARTIR DAGAR
eru framundan og
það er óhætt að
segja að sum-
arið sé komið.
Það er þó hætta
á þokulofti með
ströndum og þá
verður svalara þar
en annars staðar.
Hitinn verður víðast
hvar á bilinu 10 til
20 stig.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
KÖNNUN Ríflega fjórir af hverjum
tíu Íslendingum vilja leyfa kín-
verska athafnamanninum Huang
Nubo að leigja jörðina Grímsstaði
á Fjöllum en tæpur þriðjungur er
því mótfallinn, samkvæmt niður-
stöðum skoðanakönnunar Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2.
Alls sögðust 42 prósent þeirra
sem tóku afstöðu mjög eða frekar
hlynnt því að leyfa Huang að leigja
landið, en 30,7 prósent sögðust því
mjög eða frekar andvíg. Um 27,3
prósent sögðust því hvorki hlynnt
né andvíg.
Nærri helmingur þeirra karla
sem afstöðu tók vildi leyfa Huang
að leigja Grímsstaði, um 48,1 pró-
sent. Um 29,4 prósent vildu það
ekki. Konur virðast síður vilja
að af leigunni verði, 35,7 prósent
sögðust því hlynnt en 32,2 prósent
andvíg.
Stuðningsmenn Vinstri grænna
skera sig úr stuðningsmönnum
hinna stóru flokkanna. Alls sögð-
ust 50 prósent þeirra sem sögðust
myndu kjósa Vinstri græn yrði
gengið til kosninga nú því andvíg
að Huang fái að leigja jörðina, en
31,3 prósent voru því mjög eða
frekar hlynnt.
Afstaða stuðningsmanna hinna
þriggja stóru flokkanna er svipuð.
Um 54,2 prósent samfylkingar-
fólks eru hlynnt því að Huang fái
að leigja Grímsstaði en 22,9 pró-
sent eru því andvíg. Alls eru 50,5
prósent sjálfstæðismanna hlynnt
því að hann fái að leigja en 26,6
prósent eru á móti. Þá eru 49,1
prósent framsóknarmanna hlynnt
leigu en 29,8 prósent andvíg.
42% vilja að Huang
Nubo fái að leigja
Fleiri segjast hlynntir því en andvígir að Huang Nubo fái að leigja Grímsstaði
á Fjöllum samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Helmingur
stuðningsmanna Vinstri grænna segist andvígur því að Huang fái að leigja.
HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 23. OG 24. MAÍ 2012
Mjög andvíg(ur)
19,9
Frekar
andvíg(ur)
10,8
Hlutlaus
27,3
Frekar
hlynnt(ur)
18,3
Mjög
hlynnt(ur)
23,6
Leiga Grímsstaða á Fjöllum
Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) á skalanum 1 til 5 ertu því að kínverski kaup-
sýslumaðurinn Huang Nubo fái að leigja land á Grímsstöðum á fjöllum?
Hringt var í 1.326 manns þar
til náðist í 800 manns samkvæmt
lagskiptu úrtaki miðvikudaginn
23. maí og fimmtudaginn 24. maí.
Þátttakendur voru valdir með
slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svar-
endur skiptust jafnt eftir kyni, og
hlutfallslega eftir búsetu og aldri.
Spurt var: Hversu hlynnt(ur)
eða andvíg(ur) á skalanum 1 til 5
ertu því að kínverski kaupsýslu-
maðurinn Huang Nubo fái að leigja
land á Grímsstöðum á Fjöllum?
Alls tóku 94,6 prósent í afstöðu til
spurningarinnar.
brjann@frettabladid.is