Fréttablaðið - 29.05.2012, Side 50
29. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR26
Svo sem:
• Hótel
• Hostel
• Sumarhús
• Veiðihús
• Einbýlishús
og svo fr.
Ótal möguleikar í boði.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Erum að hefja sölu á húseiningum
822-2222
Hreiðar Hermannsson
sandfellehf@simnet.is
822-7303
Eiríkur Hilmarsson
sandfellehf@simnet.is
660-7761
Stefán Antonsson
stefan@thingholt.is
898-4477
Viðar Marinósson
vidar@thingholt.is
Upplýsingar í síma:
sem hægt er að stilla saman á ýmsa vegu
Mjög hagstætt verð á fyrstu húsunum sem pöntuð verða
Standard eining, húsgögn fylgja. Ein af fjölmörgum hugmyndum. Ein af fjölmörgum hugmyndum.
HANDBOLTI Alfreð Gíslason gat
leyft sér að brosa og taka þátt
í þeirri einlægu gleði sem ríkti
eftir sigur liðs hans, THW Kiel, í
Meistaradeild Evrópu um helgina.
Alfreð, sem er afar líflegur á
hliðar línunni, hefur þó yfirleitt
haldið sig í bakgrunninum þegar
hans menn fagna einhverjum af
þeim fjölda titla sem Alfreð hefur
unnið í gegnum tíðina.
En í þetta skiptið komst Alfreð
ekki upp með að halda sig til
hlés. Hann var dreginn fram á
mitt sviðið af leikmönnum Kiel
og honum rétt styttan. Leikmenn
hylltu hann og mörg þúsund stuðn-
ingsmanna Kiel fögnuðu honum.
Á þessu augnabliki voru lætin í
hinni stórglæsilegu Lanxess-höll
í Köln ærandi. Alfreð stóð á miðju
keppnis gólfinu, með sigurlaunin í
hönd og einlægt bros á vör.
Alfreð er sem kunnugt er gall-
harður keppnismaður en þarna sáu
áhorfendur hlið á honum sem hann
sýnir ekki oft – hann var augljós-
lega hrærður.
„Ég er hrikalega stoltur,“ sagði
hann við Fréttablaðið stuttu eftir
leik, enn brosandi. Hann varð
Evrópu meistari í þriðja sinn á
ferlinum og var að vinna sinn
sextánda titil á þjálfaraferlinum.
„Ég átti bara þrennuna eftir. Þetta
var því stórkostlegt.“
Aron tók völdin
Kiel vann sigur á spænska
liðinu Atletico Madrid í úrslita-
leiknum, 26-21. Aron Pálmars-
son átti sinn þátt í sigrinum og
spilaði glimrandi vel þegar mest á
reyndi. Atletico var komið tveimur
mörkum yfir þegar um tíu mínútur
voru eftir af fyrri hálfleik og Kiel
missti tvo menn af velli með stuttu
millibili.
En Kiel bugaðist ekki heldur
virtist einfaldlega styrkjast.
Thierry Omeyer, hinn stórkost-
legi markvörður liðsins, lokaði
markinu og Aron og félagar gengu
á lagið í sókninni og komust yfir.
Þessa forystu létu þeir svo aldrei
aftur af hendi.
Aron var frábær á þessum kafla.
Hann skoraði þrjú mörk og fiskaði
eitt víti. Hann stjórnaði sókninni
afar vel og var ótrúlegt að fylgjast
með þessum 21 árs gamla kappa
einfaldlega taka yfir úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu.
Aron hefur unnið átta titla með
Kiel, þar af Meistaradeildina
tvisvar. „Tilfinningin er eiginlega
betri núna en fyrir tveimur árum
[þegar Kiel vann síðast Meistara-
deildina],“ sagði Aron. „Þá var ég í
minna hlutverki. En ég fæ að taka
þetta inn á jákvæðu nótunum, sem
betur fer.“
Ekki nóg að vera með góðan hóp
Kiel hefur í raun unnið fjóra titla
á tímabilinu því liðið vann þýska
ofurbikarinn í upphafi tíma-
bilsins. Kiel vann síðast þrefalt
árið 2007 en Alfreð getur gert
enn betur nú. Það eina sem vant-
ar nú upp á svo að tímabilið verði
algerlega fullkomið er að vinna
síðustu tvo deildarleikina, gegn
botnliði Eintracht Hildesheim
og Gummersbach, sem Alfreð
þjálfaði áður. Kiel fengi þá fullt
hús stiga á tímabilinu og það í
sterkustu deildarkeppni heims.
Aron segir að þetta góða gengi
segi meira en mörg orð um árangur
liðsins og ekki síst þjálfarans. „Það
er erfitt að bæta einhverju við töl-
fræðina. Það hefur þó margsýnt sig
í flestum íþróttum að það er ekki
nóg að vera með hóp frábærra leik-
manna – það þarf að skapa heild og
láta leikmenn vinna saman. Ég tel
að ef við náum fullkomnu tímabili
yrði það ein mesta viðurkenning
sem þjálfari getur fengið.“
AG fékk bronsið
Danska ofurliðið AG Kaupmanna-
höfn vann bronsið eftir sigur á
Füchse Berlin í fyrri leik sunnu-
dagsins. Leikurinn náði ekki sömu
hæðum og báðir undanúrslita-
leikirnir sem voru stórkostleg
skemmtun. Fimm íslenskir lands-
liðsmenn tóku þátt í bronsleiknum
auk þjálfarans Dags Sigurðssonar
hjá Berlínarrefunum.
Vonbrigði leikmanna voru mikil
eftir undanúrslitaleikina en Ólaf-
ur Stefánsson, landsliðsfyrirliði,
reyndi þó að njóta stundarinnar.
„Ég á kannski ekki svo mikið eftir
og því reyndi ég að taka mið af
því. Ég reyndi fyrst og fremst að
gleyma mér í góðum handbolta-
leik. Ég er glaður með sigurinn
enda þriðja sætið alltaf betra
en það fjórða,“ sagði Ólafur sem
getur þá státað af fjórum Evrópu-
meistaratitlum á sínum glæsilega
ferli. eirikur@frettabladid.is
Alfreð og Aron lögðu heiminn að fótum sér
Alfreð Gíslason og Aron Pálmarsson urðu um helgina Evrópumeistarar í handbolta og fengu þar með þrennuna eftirsóttu þar sem lið
þeirra, Kiel, er einnig ríkjandi deildarmeistari og bikarmeistari í Þýskalandi. Alfreð var að vinna sinn sextánda titil á þjálfaraferlinum.
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
skrifar frá Köln
STYTTAN Á LOFT Alfreð Gíslason hefur náð ótrúlegum árangri með frábært lið Kiel í
vetur. Hér lyftir hann sigurlaununum í Lanxess-Arena í Köln. NORDIC PHOTOS/GETTY