Fréttablaðið - 29.05.2012, Qupperneq 16
29. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR16
timamot@frettabladid.is
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
MÁR HALLGRÍMSSON
lést sunnudaginn 20. maí síðastliðinn á
Landspítala í Fossvogi. Útför hans verður
gerð frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 30.
maí kl. 13.00.
Sigríður Másdóttir
Gunnar Auðólfsson
Auðólfur Már Gunnarsson
Árni Karl Gunnarsson
Ásgeir Hrafn Gunnarsson
Ástkær faðir okkar og sonur,
GUÐMUNDUR KARL ERLINGSSON
fyrrv. flugstjóri,
Flyðrugranda 14, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi
sunnudaginn 20. maí. Útför fer fram frá
Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 30. maí
kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda
Jón Erlingur Guðmundsson
Albert Guðmundsson
Friðrik Guðmundsson
Hulda Karlsdóttir
Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SVAVAR KRISTJÓNSSON
rafverktaki
Eikjuvogi 17,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 29. maí og hefst athöfnin kl. 15.
Guðný Ásbjörnsdóttir
Guðný Svavarsdóttir Sveinn Óttar Gunnarsson
Jörundur Svavarsson Sif Matthíasdóttir
Erla Kristín Svavarsdóttir Sigríkur Smári Ragnarsson
Lilja Steinunn Svavarsdóttir Bjarni Jónsson
Auður Ólína Svavarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÁSDÍS SIGFÚSDÓTTIR
frá Vogum í Mývatnssveit,
Hörðalandi 8, verður jarðsungin frá
Langholtskirkju miðvikudaginn 30. maí
kl. 15.00.
Sólveig Ólöf Jónsdóttir Pétur R. Guðmundsson
Guðmundur H. Pétursson Elín B. Gunnarsdóttir
Eva Sólveig, Ásdís Eir og Erla Margrét
Birgir Tjörvi Pétursson Erla Kristín Árnadóttir
Kristín Klara og Árni Pétur
Ásdís Ýr Pétursdóttir Haraldur Örn Ólafsson
Sólveig Kristín og Ólafur Örn
Bryndís Ýr Pétursdóttir Jürgen Maier
Ísak Þorri, Freyja og Marta
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUNNAR B. HÁKONARSON
vinnuvélastjóri
Strikinu 4, Garðabæ,
lést laugardaginn 12. maí.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 30. maí kl. 13.00.
Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir
Hákon Gunnarsson Guðný Helgadóttir
Helga Gunnarsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir Unnar Reynisson
Hrefna Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og vinur,
HÁKON KRISTINSSON
vélsmiður,
Innri-Njarðvík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi,
Garði, laugardaginn 19. maí. Útförin fer
fram frá Njarðvíkurkirkju, Innri-Njarðvík,
miðvikudaginn 30. maí kl. 14.00.
Þorsteinn Hákonarson Kristín Tryggvadóttir
Stefanía Hákonardóttir Sigurbjörn Júlíus Hallsson
Bryndís Hákonardóttir
Steinunn Hákonardóttir Elvar Ágústsson
Guðfinna Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Á fimmtudaginn kemur safnast konur
saman að Öngulsstöðum í Eyjafirði til
að taka þátt í jógakvennabúðum sem
standa til 3. júní. Búðirnar leiðir Dev
Suroop Kaur, sem er mörgum iðkendum
Kundalini-jóga að góðu kunn. Hún er
bæði dáður jógakennari og þekkt tón-
listarkona í jógaheiminum.
Kvennabúðir á borð við þessar eru
árlegir viðburðir víða um heim. Guð-
rún Darshan Arnalds, eigandi jóga-
stöðvarinnar Andartaks og ein þeirra
sem hafa veg og vanda af komu Dev
Suroop hingað til lands, segir búðirnar
tilvalinn vettvang fyrir konur til að efla
innsæi sitt og endurnýja sambandið við
andlegu konuna innra með sér. „Konur
eru alltaf að gera og gera – í staðinn
fyrir að vera. Á Íslandi er það dyggð
að vera alltaf dugleg og ætla sér mikið.
Þannig er hætt við að við missum sam-
bandið við okkar innri vitru konu, sem
býr innra með okkur öllum,“ segir Guð-
rún og heldur áfram. „Samkvæmt jóga-
fræðunum hafa konur að eðlisfari mjög
sterkt innsæi. Ef kona nærir sínar and-
legu hliðar veit hún sjálf hvað er rangt
og hvað er rétt. Þá þarf hún ekki að leita
út fyrir sig eftir hjálp. Hún getur verið
sinn eigin sálfræðingur.“
Í búðunum munu konur komast
nær þessari innri konu, meðal annars
með fræðslu og ástundun kundalini-
jóga. „Við erum oft fastar í ákveðnum
munstrum sem erfitt er að brjóta upp.
Það eru til mjög öflugar hugleiðslur, og
svokallaðar kríur, sem hafa þann til-
gang að skapa ákveðið ástand innra með
okkur, til dæmis að styrkja taugarnar
eða skerpa á innsæinu,“ útskýrir Guð-
rún. Hún segir ástundun kundalini-jóga
eiga vel við í nú tímanum, þar sem það
hjálpi fólki að fara inn á við til að ná
í orkuna sem þarf til að takast á við
eril lífsins. „Við konur förum í gegnum
miklar breytingar í hverjum mánuði og
erum stöðugt að fara í gegnum nýjar
tilfinningasveiflur. Það er talað um að
konur séu með 11 mánasvæði og hvert
þeirra standi fyrir ákveðinn part af
líkamanum og ákveðið tilfinningalegt
ástand. Við erum tvo og hálfan dag í
hverju mánasvæði. Ef við lærum inn á
þau skiljum við betur í hvaða ástandi
við erum hverju sinni.“
Guðrún segir kvennabúðirnar
ekki eingöngu tilvalið tækifæri til að
kynnast jógafræðunum, heldur einnig
til að komast í burtu frá amstri hvers-
dagsins, hlaða batteríin í fallegu
umhverfi og borða góðan mat í félags-
skap annarra kvenna. „Dev Suroop
spilar á gítar og við munum syngja
saman, fara í leiki og ýmiss konar
skapandi verkefni. Þetta verður heil-
mikið fjör.“ holmfridur@frettabladid.is
DEV SUROOP KAUR: LEIÐIR JÓGAKVENNABÚÐIR AÐ ÖNGULSSTÖÐUM Í EYJAFIRÐI
Konur kynnast eigin styrk
LIFA OG HRÆRAST Í JÓGA Ragnhildur Ragnarsdóttir og Guðrún Arnalds standa að kvennabúðunum ásamt þeim Berglindi Ásgeirsdóttur og
Ragnhildi Evu Guðmundsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í dag eru 65 ár liðin frá mesta flugslysi Íslandssögunnar,
er Dakotavél frá Flugfélagi Íslands flaug inn í Hestfjall við
Héðinsfjörð með þeim afleiðingum að vélin splundraðist
og brann. 25 manns fórust í slysinu, 21 farþegi og 4 manna
áhöfn. Vélin var á leið frá Reykjavík til Akureyrar, en ferðin
átti að vera fyrri ferð vélar og áhafnar til Akureyrar þennan
dag. Þegar flugvélin kom ekki til lendingar á eðlilegum tíma
var send út leitarflugvél frá varnarliðinu í Keflavík. Leitar-
flokkar voru einnig sendir af stað gangandi, en þeir fundu
ekki vélina, þar sem svo mikil þoka var á svæðinu að ekki sást
upp í fjallshlíðar. Eftir að þokunni létti var leit haldið áfram og
að morgni 30. maí fann Smári Karlsson, flugmaður á TF-ISP,
flugvélina í Hestfjalli. Strax varð ljóst að enginn hefði komist
lífs af úr slysinu.
ÞETTA GERÐIST: 29 MAÍ 1947
Mesta flugslys Íslandssögunnar
TÓNLISTARMAÐURINN Noel Gallagher á afmæli í dag.
„Ég veit að írskt blóð rennur um æðar mínar því ég
vakna með timburmenn á hverjum degi.“
Merkisatburðir
1453 Býsans leið undir lok þegar Konstantínópel féll fyrir her
Mehmets 2. Tyrkjasoldáns.
1935 Lokið var við byggingu Hoover-stíflunnar.
1953 Edmund Hillary og Tenzing Norgay náðu tindi Everestfjalls
fyrstir manna.
1971 Afhjúpaður var minnisvarði um Bjarna Benediktsson for-
sætisráðherra, konu hans og dótturson á Þingvöllum, en
þau fórust þar í eldsvoða árið áður.
1996 Benjamin Netanyahu var kosinn forseti Ísraels.
2008 Jarðskjálfti sem var 6,2 stig á Richter-kvarða átti sér stað á
Íslandi klukkan 15.46.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HREFNA G. GUÐNADÓTTIR
Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi,
lést á Droplaugastöðum 22. maí. Útför
hennar fer fram frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 30. maí kl. 15.
Úlfar Aðalsteinsson
Sigrún Aðalsteinsdóttir
ömmubörn og langömmubörn