Fréttablaðið - 29.05.2012, Blaðsíða 46
22 29. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR
Leikkonan Charlize Theron ætt-
leiddi nýverið drenginn Jackson
og í spjallþætti Ellen DeGeneres
segist hún fá ómetanlega hjálp
við uppeldið frá hundunum sínum
tveimur.
„Hundarnir féllu fyrir Jack-
son um leið og hann kom inn í
líf okkar, það var dásamlegt.
Fólk spyr mig hvernig það sé
að vera einstæð móðir og ég er
það í raun ekki, ég er með tvo
aðstoðarmenn,“ sagði Theron um
hundana. „Bolabíturinn vaknaði
með mér á hverri nóttu þegar
ég þurfti að gefa Jackson eða
skipta um bleiu. Og í hvert sinn
sem barnið grét, fór bolabíturinn
einnig að gráta.“
Hundarnir
aðstoða
EKKI EINSTÆÐ Charlize Theron segist
fá aðstoð við uppeldið frá hundunum
sínum. NORDICPHOTOS/GETTY
Joe Jonas verður dómari í fegurðar-
samkeppninni Ungfrú Bandaríkin
ásamt Rob Kardashian, raunveru-
leikastjörnunni Ali Fedotowsky
og sjónvarpsmanninum George
Kotsiopoulos. Keppnin er í eigu
milljarða mæringsins Donalds
Trump.
Fegurðarsamkeppnin fer fram í
Las Vegas í byrjun júní og verða
Andy Cohen og Giuliana Rancic
kynnar hennar. Sigurvegarinn
tryggir sér sæti í keppninni Ungfrú
heimur sem fer fram síðar á árinu.
Frægðarsól Jonas reis á árinu
2009 þegar hann sló í gegn ásamt
bræðrum sínum með hljóm-
sveitinni The Jonas Brothers. Í
fyrra ákvað söngvarinn þó að ein-
beita sér að sólóferli sínum.
Jonas í dómarasætið
DÓMARI Joe Jonas dæmir fegurðarsamkeppni í eigu Donalds Trump. NORDICPHOTOS/GETTY
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
Í 3-D
5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
MIB 3 3D KL. 3.30 - 5.30 - 8 - 10.30 10
MIB 3 3D LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
MIB 3 2D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
THE DICTATOR KL. 3.30 - 6 - 8 - 10 12
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT KL. 5.20 - 8 12
21 JUMP STREET KL. 10.30 14
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L
MIB 3 3D KL. 6 - 8 - 10.10 10
THE DICTATOR KL. 8 - 10 12
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT KL. 5.45 12
MIB 3 3D KL. 6 - 9 10
SALMON FISHING IN THE YEMEN KL. 5.30 - 8 - 10.15 10
THE DICTATOR KL. 6 - 8 - 10.30 12
GRIMMD: SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 - 8 10
SVARTUR Á LEIK KL. 10 16
MEN IN BLACK 3 3D 5.30, 8, 10.15
THE DICTATOR 6, 8, 10.25
THE FIVE-YEAR ENGAGEMENT 8
LORAX 3D 6
LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
SPRENGHLÆGILEG MYND
www.laugarasbio.is
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
5%
EGILSHÖLL
16
V I P
V I P
12
12
12
12
L
10
10
10
Stærsta ofurhetjumynd allra tíma!
12
MÖGNUÐ HASARMYND
MEÐ JASON STATHAM Í
AÐALHLUTVERKI
empire
joblo.com
ÁLFABAKKA
UNDRALAND
IBBA
Skemmtileg teiknimynd
fyrir alla fjölskylduna
Sýnd með íslensku tali
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
12
12
L
10
AKUREYRI
16
16
16
KRINGLUNNI
12
12
10
Total film Variety
Johnny Depp er
stórkostlegur í þessari
frábæru gamanmynd
Nýjasta meistaraverk
Tim Burtons.
p.h. boxoffice magazine
16
12
L
SELFOSS
10
KEFLAVÍK
16
L
12
ISO.IBAMÁ SÉR MIÐA ÞTRYGGÐU
GADÍ Ó ÍBSGADÞRIÐJU
Tónleikar ★★★★★
Bryan Ferry
Listahátíð, Harpa 27. maí
Það var troðfullur og prúðbúinn
Eldborgarsalur sem tók á móti
enska tónlistarmanninum Bryan
Ferry og hljómsveit á sunnudags-
kvöldið. Dagskráin hófst á því að
Gulli Briem kynnti Mandela daga
í Reykjavík og fékk tónleikagesti
til þess að lyfta höndum að hætti
Nelsons Mandela, en síðan birtist
hljómsveit Ferrys og taldi í upp-
hafslagið, I Put a Spell on You. Það
er gamall Screamin‘ Jay Hawkins
smellur, en fönkuð poppútgáfa
Ferrys heyrðist fyrst á plötunni
hans Taxi árið 1993. Næst kom
ofursmellurinn Slave to Love, þá
Don‘t Stop the Dance og svo þrjú
Bob Dylan-lög í röð.
Það voru alls þrettán manns
á sviðinu þegar mest var, Ferry,
þrjár bakraddasöngkonur, tveir
gítarleikarar, hljómborðs leikari,
saxófónleikari, bassaleikari,
trommuleikari, slagverksleikari
og tveir dansarar. Í hljóm sveitinni
voru tveir gamlir félagar Ferrys,
Paul Thompson trommu leikari
Roxy Music og Chris Spedding
gítar leikari, sem spilaði með Ferry
á sólóplötunum hans á áttunda
áratugnum. Yngra liðið stóð sig
samt ekkert verr, til dæmis gítar-
leikarinn Oliver Thompson og
saxófónleikarinn Jorja Chalmers.
Bryan Ferry flutti lög af öllum
ferlinum, m.a. fjögur lög af gömlu
Roxy Music-plötunum, þrjú lög af
Avalon og tvö af nýju plötunni,
Olympiu, alls 21 lag. Þetta voru
frábærir tónleikar og margir
FIRNAGÓÐUR FERRY
hápunktar. Mest var klappað fyrir
smellum eins og Love Is the Drug,
Jealous Guy og More Than This,
en minna þekkt lög, sem voru
útsett þannig að hljóðfæraleik-
ararnir fengu að sýna hvað þeir
gátu, voru ekki síður góð. Þar á
meðal voru My Only Love, Reason
or Rhyme og útgáfa Ferrys af Neil
Young-laginu Like a Hurricane.
Það hefur verið mikið talað
um útlit og fatastíl Ferrys og
vissulega var hann glæsilegur á
sviðinu í Eldborgarsalnum. Með-
limir hljómsveitarinnar voru
allir í stíl, klæddir í svart eða
gyllt. Ljósasýningin og mynd-
efnið á bak við hljómsveitina var
líka mjög flott. Það sem stóð upp
úr var hins vegar tónlistin sjálf.
Útsetningarnar voru ósviknar,
hljómsveitin frábær og lagavalið
gott, þó að gamlir aðdáendur eins
og ég sakni auðvitað alltaf ein-
hverra laga. Ferry lék á alls oddi
og sýndi að hann á nóg eftir. Á
heildina litið firnagóðir tónleikar
sem stóðust allar væntingar – og
þær voru miklar!
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Bryan Ferry heillaði troð-
fullan Eldborgarsal með frábærum
tónleikum á sunnudagskvöldið.
LÉK Á ALLS ODDI Tónleikar Bryan Ferry stóðust allar væntingar Trausta Júlíussonar
sem gefur þeim heilar fimm stjörnur. NORDICPHOTOS/GETTY