Fréttablaðið - 29.05.2012, Síða 8
29. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR8
A Ð A L F U N D U R C C P h f .
Aðalfundur CCP hf., kt. 450697 - 3469, verður haldinn 12. júní 2012 á skrif-
stofu félagsins að Grandagarði 8, Reykjavík og hefst kl. 10.00.
D A G S K R Á :
Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.07 samþykkta félagsins
Undir dagskrárliðnum “breytingar á samþykktum” verður tekin fyrir eftir-
farandi tillaga:
„Tillaga stjórnar félagsins um að félagið hafi heimild til að taka skuldabréfa-
lán allt að fjárhæð USD 20.000.000 til allt að 5 ára með breytirétti í hluta-
bréf á tilteknum kjörum og uppgreiðslurétti. Kjör breytiréttarins eru nánar
skilgreind í skilmálum skuldabréfanna og liggja ítarlegir skilmálar þeirra
frammi á skrifstofu félagsins. Jafnframt fái stjórn félagsins heimild til að
hækka hlutafé þess um allt að kr. 625.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra
hluta í tengslum við skuldabréfalánið. Hluthafar skulu ekki hafa forgangs-
rétt til áskriftar að þessum nýju hlutum.“
Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
CCP hf. skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en 5 sólar-
hringum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa
gefið kost á sér.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi
á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis frá og með 5. júní 2012, 7 dögum
fyrir aðalfundinn.
Aðalfundarstörf munu fara fram á ensku.
Stjórn CCP hf.
námskeið
Skráning í síma
581 1281
"Crash course"
í júní
Einkatímar
2x í viku í 4 vikur
Skráning er hafin
www.gitarskoli.is
MorGUnþÁTturinn
Ómar alLa vIRka
dagA kl. 7
VARNARMÁL Um 170 manns frá
bandaríska flughernum sinna nú
loftrýmisgæslu við Ísland í samræmi
við loftrýmisgæsluáætlun NATO.
Áætlunin felur í sér að sveitir
frá NATO-löndum koma reglulega
hingað til lands, en undanfarin
misseri hafa til dæmis Frakkland,
Spánn, Noregur og Danmörk séð
um slíka gæslu, en þetta er í annað
sinn sem bandarískar sveitir koma
til landsins síðan Bandaríkjaher
yfirgaf landið haustið 2006.
Flugsveitirnar koma frá her-
stöðvum í þremur löndum, Bret-
landi, Bandaríkjunum og Þýska-
landi. Þrenns konar vélar taka þátt í
verkefninu, fjórar F-15 orrustu þotur,
ein KC 135 eldsneytisflugvél og ein
Hercules C130 leitar- og björgunar-
flugvél.
Gæslan felst í því að sveitirnar
eru á vakt allan sólarhringinn gegn
hugsanlegum ógnum sem berast inn
í lofthelgi NATO.
Orrustuþoturnar fara í þrjú til
fjögur æfingarútköll á viku, en þar
er markmiðið að vera komnir í loftið
innan við 15 mínútum eftir að útkall
berst.
„Það er markmiðið, en við erum
yfirleitt talsvert fljótari,“ segir Mike
Casey, undirofursti og yfir maður
493ju orrustuflug sveitarinnar, í
samtali við Fréttablaðið. Sveitin er
jafnan staðsett á flugstöðinni við
Lakenheath í Englandi og segir
Casey að aðstæður séu nokkuð öðru-
vísi en þeir séu vanir þaðan.
„Stærsti munurinn er að sjálf-
sögðu öfgarnar í veðrabrigðum,“
segir Casey, standandi í skjóli fyrir
gríðarlegum vindstrekkingi á flug-
brautinni á föstudaginn.
„Vegna þessara veðurskilyrða
erum við með leitar- og björgunar-
sveit með okkur sem gæti brugðist
við ef eitthvað kæmi upp á, en þeir
munu vinna með Landhelgisgæslu
Íslands.“
Bandaríkjamenn verða hér á landi
fram til 7. júní.
thorgils@frettabladid.is
Þotuliðið við störf á vellinum
Bandarísk flugsveit sinnir loftrýmisgæslu NATO á Íslandi. Nota fjórar orrustuþotur af gerðinni F-15, Hercu-
les-vél sem er með búnað til leitar og björgunar og KC-135 eldsneytisvél. Herliðið yfirgefur landið 7. júní.
Í LOFTIÐ Allt er klárt og F-15 þotan skríður út úr skýlinu á leið til að fylgja óboðnum gesti úr lofthelgi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ALLT GERT KLÁRT KC-135 eldsneytisvélin fór í loftið
þennan dag. Með henni er hægt að fylla á eldsneytis-
tanka F-15 þotnanna á flugi.
STOKKIÐ UM BORÐ Rétt eftir útkall er flugmaður einnar
F-15 þotunnar kominn út í skýli.
ALLTAF REIÐUBÚNIR Leitar- og björgunarsveitin mun
vinna með Landhelgisgæslunni á meðan á dvölinni
stendur.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir niður-
stöður könnunarinnar ekki koma sér á óvart, enda sé
líka búið að samþykkja málið í þinginu. Hann segist
vonast til þess að lokið verði við að skipa starfshóp,
sem á að vinna frumvarp sem heimilar staðgöngu-
mæðrun, í þessari viku. Þegar sé búið að skipa formann.
„Við reynum að láta öll sjónarmið vera í hópnum,“ segir
hann. Hópurinn eigi að vinna frumvarpið eins fljótt og
hægt er en auðvitað þurfi hann að vanda sig og gera
sem best frumvarp. - þeb
Starfshópur skipaður í vikunni
KÖNNUN Mikill meirihluti þjóðar-
innar, um 87 prósent, vill að stað-
göngumæðrun verði heimiluð hér
á landi samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
Alls segjast 27,5 prósent vilja
heimila staðgöngumæðrun án skil-
yrða. Þá vilja 59,8 prósent heimila
staðgöngumæðrun, en ekki í hagn-
aðarskyni heldur eingöngu sem vel-
gjörð. Um 12,7 prósent vilja ekki
heimila staðgöngumæðrun.
Svipað hlutfall karla og kvenna
vill ekki leyfa staðgöngumæðrun,
12,1 prósent kvenna og 13,2 prósent
karla. Fleiri karlar vilja heimila
staðgöngumæðrun án skilyrða, 34,1
prósent samanborið við 20,9 pró-
sent kvenna. Fleiri konur vilja því
heimila staðgöngumæðrun sem vel-
gjörð eingöngu, 66,9 prósent sam-
anborið við 52,7 prósent karla.
Alþingi samþykkti fyrir um
fjórum mánuðum að fela velferðar-
ráðherra að stofna nefnd til að
semja lagafrumvarp sem heimila á
staðgöngumæðrun. Nefndin hefur
enn ekki verið skipuð.
Spurt var: Á að leyfa staðgöngu-
mæðrun á Íslandi? Alls tóku 90,8
prósent þeirra sem náðist í afstöðu
til spurningarinnar. - bj
Meirihluti þjóðarinnar vill heimila staðgöngumæðrun:
13 prósent á móti
staðgöngumæðrun
Afstaða til staðgöngumæðrunar
Á að leyfa staðgöngumæðrun á Íslandi?
Nei
12,7
HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 23. OG 24. MAÍ 2012
Já, án
skilyrða
27,5
Já, en ekki í hagnaðarskyni
heldur eingöngu sem velgjörð
59,8