Fréttablaðið - 29.05.2012, Qupperneq 44
29. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR20 20
menning@frettabladid.is
Pálmi Gestsson leikari
les upp ljóð Þorsteins frá
Hamri við tónlist Hrólfs
Vagnssonar á nýjum geisla-
diski.
Gömul skip nefnist nýr geisla-
diskur þar sem Pálmi Gestsson
leikari les upp fjórtán ljóð eftir
Þorstein frá Hamri við tónlist
Hrólfs Vagnssonar. Pálmi segir
það hafa blundað með sér lengi að
lesa ljóð inn á disk en frum kvæðið
hafi komið frá Hrólfi. „Hann
þurfti ekki að sannfæra mig, ég
sló strax til og við höfum verið að
vinna að þessu í hjáverkum undan-
farin fimm eða sex ár.“
Pálmi hefur lengi haft dálæti á
kveðskap Þorsteins frá Hamri og
segir hann hafa verið nærtækt val
þegar þeir Hrólfur ákváðu efni á
diskinn.
„Það er úr heilmiklu að moða
í íslenska ljóðaarfinum en við
Hrólfur vorum sammála um að
einhvers konar samtíningur væri
ekki heppilegur fyrir þennan disk
heldur vildum við halda okkur
við eitt skáld. Þorsteinn er auð-
vitað frábært ljóðskáld og hann lá
nokkuð beint við.“
Eftir Þorstein liggja fleiri ljóð
en hægt er að gera skil á einum
geisladisk og segir Pálmi að þeim
Hrólfi hafi verið nokkur vandi að
velja úr.
„Á endanum ákváðum við
að halda okkur við aldamóta-
bækurnar þrjár, Vetrarmyndina,
Meira en mynd og grunur og Dyr
að draumi, sem komu út frá 2000
til 2005. Þetta voru þrjár nýjustu
bækur hans þegar við byrjuðum
á verkinu en síðan þá hefur hann
gefið út fleiri.“
Þorsteinn var ekki með í ráðum
við gerð disksins og vissi ekki af
honum fyrr en Pálmi og Hrólfur
voru búnir að taka hann upp.
„Við leyfðum honum að hlusta og
hann var himinlifandi með þetta.
Það er ekki sjálfgefið að ljóðskáld
taki því vel þegar aðrir eru að
gera einhverjar kúnstir við verkin
þeirra.“
Spurður hvort hann geti hugsað
sér að endurtaka leikinn og gera
fleiri ljóðadiska svarar Pálmi hik-
laust já.
„Það er til svo mikið af góðum,
ólesnum ljóðum og ófáar perlurnar
sem mig langar til að lesa í við-
bót.“ bergsteinn@frettabladid.is
ÞORSTEINN LÁ BEINT VIÐ
PÁLMI GESTSSON Segist lengi hafa langað að lesa ljóð inn á disk og sló hiklaust til
þegar Hrólfur Vagnsson tónlistarmaður leitaði til hans fyrir nokkrum árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þjónustusími 800-1902 · www.smalan.is
Þetta
er ekkert
stórmál! Við lánum þér allt að
100.000 kr. í allt
að 30 daga.
Sendu sms í
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
1
21
53
8
Í KVÖLD KLUKKAN 20 og næstu fimm þriðjudagskvöld á eftir stendur Nýlistasafnið fyrir hljóð-
verkadagskrá í tengslum við sýninguna Volumes for Sound sem nú stendur yfir í safninu. Þar munu
íslenskir hljóðlistamenn og tónskáld nota skúlptúra sýningarinnar til að flytja eigin hljóðverk.
Hann þurfti
ekki að sann-
færa mig, ég sló strax
til og við höfum verið
að vinna að þessu í
hjáverkum undanfarin
fimm eða sex ár.
Heimildarmyndin Hreint hjarta
eftir Grím Hákonarson bar sigur
úr býtum í áhorfendakosningu á
Skjaldborgarhátíðinni, sem fram
fór á Patreksfirði um helgina.
Úrslitin voru kunngjörð á balli í
Félagsheimilinu á Patreksfirði á
aðfaranótt mánudags.
Hreint hjarta, sem jafnframt
var opnunarmynd hátíðarinnar,
fjallar um séra Kristin Friðfinns-
son, sóknarprest á Selfossi. Fylgst
er með Kristni við dagleg störf,
sálgæsluhlutverki hans og deilum
hans við kirkjuyfirvöld.
Þetta var í sjötta sinn sem
Skjaldborgarhátíðin var haldin
og þótti hún takast vel. Um 200
manns lögðu leið sína á hátíðina,
fyrir utan heimamenn, sem fjöl-
menntu einnig í bíó.
Hreint hjarta sigraði
SKJALDBORG Úrslitin fóru fram í Félags-
heimili Patreksfjarðar þar sem Grímur
Hákonarson tók á móti verðlaunum fyrir
myndina Hreint Hjarta.
Hafðu samband við Fyrirtækjasvið Pennans í síma 540 2050 eða fyrirspurn@penninn.is.
Vertu jafnframt velkomin/n í verslanir okkar í Hallarmúla 4 og Grensásvegi 11.
Söluráðgjafar Pennans eru fyrirtækjum innanhandar með faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu.
ALLT SEM KLÆÐIR
SKRIFSTOFUNA VEL
Penninn býður gríðarlega mikið úrval af stórum og smáum gæðavörum fyrir skrifstofuna. Jafnframt
veitum við frábæra þjónustu og ráðgjöf varðandi rekstrarvörur, húsgögn og skipulag skrifstofunnar!
Nýttu þér þægindin og pantaðu allt fyrir skrifstofuna á einum stað.
www.penninn.is