Fréttablaðið - 29.05.2012, Page 47
ÞRIÐJUDAGUR 29. maí 2012 23
Tvennir tónleikar til heiðurs
ABBA verða haldnir í Eldborgar-
sal Hörpunnar 25. ágúst í tilefni af
40 ára afmæli sænsku hljómsveit-
arinnar. ABBA hefur selt fleiri en
370 milljón plötur frá upphafi og
seljast plöturnar enn í milljónum
eintaka á hverju ári.
Heiðurstónleikarnir verða
hinir glæsilegustu og í sönnum
anda ABBA. Fram koma Jóhanna
Vigdís Arnardóttir, Regína Ósk
Óskarsdóttir, Selma Björnsdóttir
og Stefanía Svavarsdóttir, ásamt
hljómsveit undir stjórn Jóns
Ólafssonar. Selma Björnsdóttir
verður einnig danshöfundur tón-
leikanna. Miðasala hefst í Hörpu
1. júní.
Til heiðurs
ABBA
ABBA Tvennir tónleikar til heiðurs ABBA
verða haldnir í Eldborg í ágúst.
Fyrirsætan Janice Dickinson er ekki hrifin af
fyrrum vinnuveitanda sínum, Tyru Banks, og
nýtir hvert tækifæri til að úthúða henni opinber-
lega. Banks rak nýverið dómarana J. Alexander,
Jay og Nigel Barker, sem hafa verið viðloðandi
America’s Next Top Model allt frá upphafi, og
vandaði Dickinson henni ekki kveðjurnar vegna
þessa.
„Hún rak alla og mun halda áfram að reka fólk.
Hún er með hjarta úr steini og er köld manneskja,“
sagði Dickinson sem sendi Önnu Wintour, ritstjóra
bandaríska Vogue, einnig tóninn vegna nýrra
starfsreglna sem Vogue tímaritin settu sér
nýverið og vöruðu við því að nota mjög grannar
fyrirsætur í myndaþætti. „Horfið á Önnu Wintour.
Hún er mjórri en mjótt og ég kaupi ekki að hún
ætli sér að standa við reglurnar.“
Ósátt við Tyru Banks
ÓSÁTT VIÐ TYRU
Janice Dickin-
son er ósátt
við Tyru Banks.
NORICPHOTOS/GETTY
Söngkonan Britney Spears hefur
verið ráðin sem dómari í sjón-
varpsþættinum X-Factor ásamt
Disney-stjörnunni Demi Lovato.
Look Magazine birti nýverið óska-
lista Spears sem er heldur hógvær
í óskum miðað við stórstjörnu.
Meðal þess sem Spears vill
hafa í búningsherbergi sínu er
Diet Coke, snakk, kjúklinga bitar,
kartöflusalat og tólf Snickers-
súkkulaði stykki. Að auki vill söng-
konan afskorin blóm í vasa, sinn
eigin snyrtifræðing og nuddara.
Auðsætt er að ekki mun væsa
um Spears á milli þess sem hún
dæmir hæfileika Bandaríkja-
manna.
Vill Snickers og kók
VILL SÚKKULAÐI Britney Spears vill
snakk og súkkulaði í búningsherbergi
sínu. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikarinn Russell Crowe kom
gestum í opna skjöldu þegar hann
steig á svið með Elvis Costello
á tónleikum hins síðarnefnda í
Royal Albert Hall í London.
Costello söng öll sín þekktustu
lög áður en Crowe mætti upp á
svið. Sungu þeir saman Evil sem
Elvis Presley gerði vinsælt og
Folsom Prison Blues með Johnny
Cash. Á Twitter-síðu sinni daginn
eftir sagði Crowe að það hefðu
verið mikil forréttindi að fá að
spila með Costello. Báðir eru þeir
væntan legir til Íslands
á árinu. Costello
spilar í Hörpunni 10.
júní og Crowe leik-
ur aðalhlut verkið í
stórmyndinni Noah
sem verður að
hluta til tekin
upp hér á landi.
Söng með
Costello
ÓVÆNT UPP-
ÁKOMA
Russell Crowe
kom gestum í
opna skjöldu í
Royal Albert Hall.
Kynntu þér málið á www.arionbanki.is/ibudarsparnadur og reiknaðu dæmið
út frá eigin forsendum.
Með reglubundnum sparnaði þar sem lagðar eru fyrir að lágmarki 10 þúsund krónur á mánuði
í tvö ár fá þeir sem taka íbúðalán hjá Arion banka:
Sparaðu fyrir þínum fyrstu
íbúðarkaupum
Anna Guðný og Örn keyptu sína fyrstu
íbúð eftir að hafa lokið háskólanámi
í Danmörku. Þau tóku lán hjá Arion
banka og nutu ráðgjafar frá starfs-
fólki bankans.
50% afslátt af lántökugjöldum
Frítt greiðslumat
Innflutningsgjöf, í formi gjafakorts
arionbanki.is – 444 7000