Fréttablaðið - 11.07.2012, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 11.07.2012, Blaðsíða 22
22 12. júlí 2012 FIMMTUDAGUR Most shareholders are galvan-ized into action only when their rights have been trampled upon, and they would better to be more proactive in the first place“ – IR Magazine, júní 2009. Ofangreind tilvitnun lýsir ákveðnum veikleika sem hluta- bréfamarkaðir glíma gjarnan við, þ.e. að hluthafar láti ekki að sér kveða fyrr en búið er að traðka á réttindum þeirra og það er orðið um seinan. Þegar talað er um að traðkað sé á réttindum hluthafa þekkir maður því miður ótal dæmi frá árunum um og í kringum hrunið þar sem efast má um að hagsmunir hluthafa hafi verið í heiðri hafðir. Dæmi um að stjórnendur félaga hafi tekið of mikla áhættu og tapað að lokum umtalsverðum fjármunum, dæmi um að rekstur félaga hafi í veigamiklum atriðum tekið mið af hagsmunum stærstu hluthafa þeirra og þá á kostnað smærri hluthafa o.s.frv. Það sem fólk áttar sig ekki alltaf á er að þetta geta verið atriði sem liggja fyrir utan verksvið opin- berra eftirlitsaðila og að það sé á ábyrgð fjárfestanna sjálfra að gæta réttar síns og verja hagsmuni sína eftir bestu getu. En hvernig geta fjárfestar varið hagsmuni sína? Þeir munu því miður aldrei geta varið sig fullkom- lega, þar sem fjárfesting í hluta- bréfum er og verður alltaf áhættu- fjárfesting, en ef rétt er haldið á spilunum geta hluthafar þó komið einhverjum vörnum við og jafn- vel stuðlað að bættum markaði á sama tíma. Hér á eftir verða tekin til nokkur atriði sem fjárfestar á hlutabréfamarkaði geta haft í huga og er umfjölluninni skipt í þrennt: að vanda valið, láta í sér heyra og að kjósa með fótunum. Að vanda valið Nauðsynlegt er að fjárfestar geri strangar kröfur til fyrirtækja á markaði og byggi fjárfestingar- ákvarðanir sínar ekki einungis á hefðbundnum greiningum á kenni- tölum og fjárhagsupplýsingum heldur einnig á annars konar upp- lýsingum, s.s. um stjórnarhætti viðkomandi fyrirtækis og trúverð- ugleika stjórnenda og stærstu eig- enda þess. Verðmat greiningar- deilda nær t.d. yfirleitt ekki til slíkra atriða og er því sérstaklega nauðsynlegt að fjárfestar kynni sér þau á eigin forsendum og móti sér sjálfstæða skoðun. Að láta í sér heyra Fjárfestingu í hlutabréfum fylgir ákveðin ábyrgð. Að vera hluthafi í hlutafélagi er að vera einn af eig- endum þess og því er mikilvægt að hluthafar, stórir sem smáir, átti sig á því í hverju það felst. Hluta- félög eiga að vera rekin með hags- muni eigenda þeirra að leiðarljósi, þ.e. allra hluthafa þeirra, og er það m.a. hlutverk hluthafa að sjá til þess að svo sé. Hluthafar kjósa aðila til þess að sitja í stjórn við- komandi félags fyrir sína hönd og veita þeim umboð til þess að taka ýmsar ákvarðanir er varða félagið. Hluthafar eiga auk þess rétt á því að kjósa um önnur mikilvæg mál- efni á hluthafafundum, s.s. greiðslu arðs, starfskjarastefnu, þóknun fyrir stjórnarsetu og margt fleira. Þá eru hluthafafundir einnig vett- vangur hluthafa til að segja sína skoðun á málefnum er tengjast viðkomandi félagi og rekstri þess, spyrja spurninga og jafnvel fá svör við þeim á staðnum frá stjórnend- um og/eða stjórnarmönnum. Þetta vald hluthafa hefur verið vannýtt hér á landi, sem og reyndar víðar. Ef nógu hátt hlutfall hluthafa telst „óvirkt“ og tekur ekki þátt í því að móta stefnu viðkomandi félags býður það stjórnendum og/ eða öðrum (yfirleitt stórum) hlut- höfum upp á að stýra viðkomandi félagi eftir eigin höfði, sem getur farið illa. Virkt aðhald hluthafa stuðlar að bættum stjórnarhátt- um og dregur úr líkunum á hags- munaárekstrum og umboðsvanda (e. principal-agent problem). Að kjósa með fótunum Rétt eins og það er nauðsynlegt að fjárfestar hugi vandlega að því að félög fylgi góðum stjórnarháttum og að þeim sé stýrt með trúverð- ugum og heiðarlegum hætti áður en ákveðið er að kaupa hlutabréf þeirra getur að sama skapi verið nauðsynlegt fyrir eigendur að íhuga sölu á hlutabréfum sínum verði þeir þess áskynja að svo sé ekki. Ef slæmir stjórnarhættir auka söluþrýsting og lækka hluta- bréfaverð (hafa m.ö.o. tilfinnanleg- ar afleiðingar) eru stjórnarmenn líklegri til þess að ráða faglega og heiðarlega stjórnendur og ráðnir stjórnendur líklegri til þess að við- hafa góða stjórnarhætti. Samandregið Í stuttu máli snýst ofangreint um að krefjast þess að aðilar sem sýsla með fjármuni hluthafanna, þ.e. stjórnendur og stjórnarmenn, vinni starf sitt af heilindum, taki ekki óþarfa áhættu og vinni að hags- munum allra hluthafa en ekki ein- ungis þeirra stærstu. Krafan þarf að vera raunveruleg og viðkomandi aðilar þurfa að finna fyrir henni. Þar sem aðkoma almennings að hlutabréfamörkuðum fer að stóru leyti fram í gegnum lífeyrissjóðina er sérstaklega brýnt að þeir hugi vel að þessum málefnum og standi ekki á hliðarlínunni. Ákveðin jákvæð teikn má sjá á lofti, svo sem meiri áhuga á bætt- um stjórnarháttum og aukna með- vitund um lög og reglur á mark- aði, en björninn er langt frá því að vera unninn. Vísbendingar eru t.d. um að dagar hinna óvirku hluthafa séu ekki taldir, sem er afar miður. Baráttan fyrir heilbrigðum mark- aði er og verður alltaf viðvarandi samstarfsverkefni allra sem að honum koma, og í henni má aldrei slá slöku við. Hluthafasjálfsvörn - Dregur úr roða á háræðaslitnum svæðum - Eykur collagen framleiðslu - Dregur úr myndun marbletta - Eykur blóðflæði til fóta á aðeins 4 vikum - Kemur í veg fyrir inngróin hár sem myndast við rakstur eða vaxmeðferð - Virkar á innan við sólarhring - Má nota á bikiní línu, undir hendur og á fætur - Fjarlægir rakstursbólur TaxFree dagar um helgina FALLEGRI FÓTLEGGIR Í SUMAR VEIN AWAY MEÐ SKIN DOCTORS INGROW GO Að s já lfs ög ðu fæ r r ík iss jó ðu r 2 5, 5% v irð isa uk as ka tt af þ es sa ri sö lu . V er ðl æ kk un in 2 0, 32 % e r a lfa rið á k os tn að H ag ka up s. Fyrirbyggjandi gegn inngrónum hárum Dregur úr sýnileika háræðaslita á 4-6 vikum Fjármál Baldur Thorlacius sérfræðingur í eftirliti hjá NASDAQ OMX Iceland
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.