Fréttablaðið - 11.07.2012, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 11.07.2012, Blaðsíða 34
12. júlí 2012 FIMMTUDAGUR26 BAKÞANKAR Friðriku Benónýs 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. grasþökur, 6. samtök, 8. skip, 9. hár, 11. leita að, 12. flugfar, 14. fót- mál, 16. í röð, 17. fjallaskarð, 18. besti árangur, 20. nesoddi, 21. arða. LÓÐRÉTT 1. glufa, 3. ógrynni, 4. gunga, 5. af, 7. nakinn, 10. draup, 13. sarg, 15. svikull, 16. kerald, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. torf, 6. aa, 8. far, 9. ull, 11. gá, 12. flaug, 14. skref, 16. áb, 17. gil, 18. met, 20. tá, 21. arta. LÓÐRÉTT: 1. rauf, 3. of, 4. raggeit, 5. frá, 7. allsber, 10. lak, 13. urg, 15. flár, 16. áma, 19. tt. Jói! Við förum ekki ÞAÐ oft í kvöldmat til Rut frænku! What? Þessi föt eru þau dýrustu sem ég á í skápnum. 6.500 krónur á E-bay! Á flík. Mind you! En ég get líka alveg farið í einn rólegan á barnum ef þú vilt ekki hafa mig með! Ég vil alveg hafa þig með, en … Ókei! Let‘s Go! Dr. Love, geri ég ráð fyrir? Yes! Ég slapp! Lífrænt sojabuff með bankabyggi, lífrænum gulrótum og vatn. Namm! Njóttu verk- smiðjuframleidda morðborgarans, Palli. Félagsvitund Fríðu er í miklum blóma um þessar mundir. Ég þarf meiri tómatsósu. Svafstu aftur yfir þig? Þetta er í fimmta skipti sem þú missir af bar- daga í þessum mánuÐi. Veistu hvað? Það er hægt að lesa alls konar skemmtilegt á veggjunum þarna inni! Ætlarðu bara að sitja á þessum sófa allt sumarfríið?“ spyr vinur minn stór- hneykslaður á svip. Hann hefur kíkt í kaffi í góða veðrinu eftir að hafa hjólað tuttugu kílómetra, komið við í grillveislu, pantað sér sumarbústað og drukkið latte á úti- kaffihúsi við Austurvöll. „Maður verður að GERA eitthvað í sumarfríinu,“ segir hann með hyldjúpri sannfæringu. Og reynir að fela geispa með hendinni. ÉG BARA brosi. Ég verð ekki að gera neitt. Sumarfrí heitir frí vegna þess að þá má maður gera ekki neitt. Er laus við skyldurnar og kvaðirnar. Ef mig langar að sitja á sófanum í fimm tíma og stara upp í loftið þá má ég það. Það er mitt val. Þessi félagslega pressa um að vera sífellt á þönum eins og landafjandi á sterum snertir mig ekki neitt. Jú, það er gaman að fara í góða gönguferð og anda að sér ilminum af sumri, sitja með bók á bekk á Klambratúni og horfa á krakka á öllum aldri sletta úr klaufunum, drekka latte eða hvítvínsglas á kaffihúsi og brosa framan í sól- ina. En ég verð ekkert að gera það. Ég er í fríi, ég á mig sjálf. EITT AF ÞVÍ skemmtilega sem ég hef gert í fríinu er að lesa grein á bloggi nytimes.com um kröfuna um að vera önnum kafinn. Þar heldur greinarhöfund- ur, Tim Kreider, því fram að nútímafólk óttist svo tómið í lífi sínu að það fylli helst hverja stund sólarhringsins með einhverj- um fullkomlega ónauðsynlegum gjörning- um til þess eins að sýnast vera eftirsótt og með á nótunum. Til þess að aðrir fái það ekki á tilfinninguna að líf þess sé ekki nógu spennandi og ögrandi. Og til þess að þurfa ekki að hugsa. AÐ FINNAST gott að vera einn með sjálf- um sér, hugsa, lesa, skrifa eða einfaldlega bara vera, þykir merki um einkennileg- heit. „Ertu í einhverju þunglyndi?“ spyr fólk áhyggjufullt þegar maður svarar spurningunni um hvað eigi að gera í frí- inu í tuttugasta sinn með stuttu og lag- góðu: ekki neitt. Nei, ég er ekki í neinu þunglyndi. Þvert á móti. Ég er að njóta þess að vera til. Að vera í fríi og eiga tíma minn sjálf. Geta dundað mér á eigin hraða í gegnum dagana, borðað þegar ég er svöng, farið í gönguferðir klukkan fjögur á nóttunni og andað að mér friðsældinni sem skellur á eftir að allt ofurhressa og duglega fólkið er sofnað örmagna svefni hinna útkeyrðu. Og haldið svo áfram að gera ekki neitt einn daginn enn. Það er sumarfrí. Listin að gera ekki neitt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.