Fréttablaðið - 11.07.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.07.2012, Blaðsíða 4
12. júlí 2012 FIMMTUDAGUR4 Rangar merkingar birtust með súluriti um blaðalestur í Fréttablaði gærdags- ins. Bláu súlurnar eiga við um lestur á fyrsta ársfjórðungi 2012 og þær brúnu um annan ársfjórðung 2012. LEIÐRÉTT Markmið í endurvinnslu fyrir allt landið 1. júlí 2013 Lífrænn úrgangur til urðunar verði í mesta lagi 50 prósent af því sem til féll árið 1995. 1. janúar 2015 Sér- stakri söfnun á pappír, málmum, plasti og gleri komið á laggirnar. 1. janúar 2015 Bannað verður að afhenda ókeypis plastpoka og gjald lagt á einnota poka úr plasti í verslunum. 31. desember 2015 Aðeins 25 prósent af úrgangi urðuð (enn þá aðeins tillaga). 1. janúar 2021 Bann við urðun lífræns úrgangs (aðeins tillaga). 31. desember 2025 Að hámarki fimm prósent af úrgangi urðuð (aðeins tillaga). HEIMILD: DRÖG AÐ LANDSÁÆTLUN UM MEÐHÖNDLUN ÚRGANGS 2013-2024 FRÉTTASKÝRING Hver eru næstu skref í sorpflokkun? Það er lítið mál að umbylta rusla- málum þjóðarinnar, aðalatriðið er að fræða almenning. Þessu heldur Agnes Gunnarsdóttir fram. Hún er framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Íslenska gáma- félaginu sem þjónar fjöldamörg- um sveitarfélög um allt land. „Númer eitt, tvö og þrjú er fræðsla. Það er ekki nóg að senda einn bækling heim. Það þarf að fylgja þessu eftir,“ segir Agnes. Hún segir að starfsmenn Íslenska gámafélagsins hafi til að mynda heimsótt tíu þúsund heim- ili á landinu og beinlínis kennt fólki að flokka. „Fólk er að mikla fyrir sér hvernig á að koma fyrir öllum flokkunarílátunum. Hvort þetta eigi að vera inni í kústaskáp eða hvar. Fólk er oft svo stressað og hrætt við breytingar. En ef maður heldur aðeins í höndina á því er þetta ekkert mál.“ Agnes segir litlu hlutina helst flækjast fyrir fólki. „Smáatriðin verða oft stærstu atriðin fyrst, til dæmis tyggjó en því á að henda í almennt sorp.“ Hún segir spýtur af íspinnum og pilluspjöld einnig vera dæmi um hluti sem vefjast fyrir fólki. Mikilvægast sé að flokka stóru hlutina, pappa, plast og mjólkur- fernur. Agnes bendir á að framleið- endur beri vissa ábyrgð. Þeir þurfi að setja vörur sínar í endur vinnsluvænar umbúðir svo eftirleikurinn verði auðveld- ari fyrir neytendur. „Sjáðu til dæmis mjólkurfernu með tappa úr plasti. Þar er verið að blanda saman tveimur endurvinnslu- flokkum. Það þarf að gera fólki endurvinnslu auðveldari með því að blanda ekki saman flokkum. Þarna verðum við neytendur að þrýsta á framleiðendur,“ segir Agnes. Nú þegar eru sautján sveit- arfélög byrjuð að flokka í þrjá endurvinnsluflokka: lífrænt, endurvinnanlegt og almennt heimilissorp sem er óendurvinn- anlegt. Stykkishólmur er ákveð- in fyrirmynd í þessum málum en þar hefur náðst að flokka upp í 67 prósent af úrgangi. katrin@frettabladid.is Lítið mál að flokka sorp Mikil umbylting hefur átt sér stað í sorpmálum Íslendinga undanfarin ár og byltingin er rétt að byrja. Urðun úrgangs mun brátt heyra sögunni til að mestu leyti og flokkun heimilissorps er það sem koma skal. Heildarmagn úrgangs var mest árið 2008 og var þá 2.158 kíló á hvert mannsbarn. Síðan hefur talan farið ört lækkandi og var komin niður í 1.596 kíló árið 2010. Mikil umskipti hafa orðið á hvað verður um allt þetta rusl. 79 prósent af úrgangi voru urðuð árið 1995 en sú tala er komin niður í 32 prósent árið 2010. HEIMILD: DRÖG AÐ LANDSÁÆTLUN UM MEÐHÖNDLUN ÚRGANGS 2013-2024 Úrgangur SAMFÉLAGSMÁL Hópur fólks kom saman við rússneska sendiráðið í gær til að mótmæla varðhaldi yfir þremur rússneskum konum. Kon- urnar eru meðlimir í pönksveitinni Pussy Riot og hafa verið í haldi rússnesku lögreglunnar vegna mótmæla síðan í mars. Einn maður var handtekinn í mótmælunum við rússneska sendiráðið, en það kom skipuleggj- endum á óvart hversu mikill við- búnaður lögreglu var. Að sögn lögreglu veittist maðurinn að lög- reglumönnum þegar þeir ætluðu að hafa afskipti af öðrum mótmæl- anda. María Lilja Þrastardóttir, einn skipuleggjenda mótmælanna, segir að hinn handtekni hafi geng- ið á milli mótmælandans og starfs- manns sendiráðsins. Pussy Riot er femínísk pönk- hljómsveit sem mótmælir stöðu kvenna í landinu og tók þátt í mót- mælum gegn Vladimír Pútín for- seta. Þær héldu meðal annars tón- leika í kirkju í byrjun ársins, sem er ólöglegt. Þær eiga yfir höfði sér allt að sjö ára fangelsi verði þær dæmd- ar. Konurnar hófu hungurverkfall í síðustu viku eftir að þeim var birt 2.800 blaðsíðna ákæra. - þeb Hópur fólks hélt samstöðumótmæli fyrir meðlimi Pussy Riot í Rússlandi: Einn handtekinn í mótmælum FRÁ MÓTMÆLUNUM Hópurinn lét fara þokkalega vel um sig fyrir utan sendi- ráðið í Garðastræti í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR VIÐSKIPTI Iceland Express hefur sagt sig úr Samtökum ferðaþjón- ustunnar og verkefninu Ísland allt árið. Félagið segir Icelandair hafa óeðlileg áhrif á verkefnið, sem miði við áætlanir Icelandair. „Við látum ekki bjóða okkur það að við séum að leggja fé inn í verkefni sem hunsar okkar hags- muni algjörlega,“ segir Heim- ir Már Pétursson, upplýsinga- fulltrúi félagsins. Stjórnarformaður verkefnisins segir reynt hafa verið að koma til móts við Iceland Express. - þeb Segja miðað við Icelandair: Iceland Express mótmælir GENGIÐ 11.07.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 219,8372 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,93 128,55 199,15 200,11 157,06 157,94 21,118 21,242 20,991 21,115 18,362 18,47 1,6131 1,6225 192,43 193,57 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is VIÐSKIPTI Eggert B. Guðmunds- son, sem gegnt hefur starfi for- stjóra HB Granda, mun taka við starfi forstjóra N1 þann 1. sept- ember í haust. Eggert tekur við starfinu af Hermanni Guðmunds- syni sem hætti störfum í gær. Eggert lætur af störfum hjá HB Granda um næstu mánaða- mót. Eggert er rafmagnsverkfræð- ingur frá háskólanum í Karlsruhe og jafnframt með MBA-gráðu frá IESE-viðskiptaháskólanum í Barcelona. Hann hefur verið for- stjóri HB Granda frá 2005. Talsverðar breytingar hafa orðið á eignarhaldi N1 á síðustu misserum en stærstu eigendur félagsins eru nú Framtakssjóður Íslands (45%), Íslandsbanki (25%) og Lífeyrissjóður verslunar- manna (10%). - mþl Hermann hætti störfum í gær: Eggert ráðinn forstjóri N1 EGGERT B. GUÐMUNDSSON Blábjörg friðlýst Djúpavogshreppur hyggst friðlýsa Blá- björg á Berufjarðarströnd í samráði við landeigendur og Umhverfisstofn- un. „Um er að ræða mikinn flikru- bergsgang sem gengur í sjó fram. Hið fyrirhugaða friðlýsta svæði, sem er vinsæll áningastaður ferðamanna, er alls 1,44 ha að stærð,“ segir sveitar- stjórnin sem stefnir að því að ganga frá málinu í sumar. NÁTTÚRUVERND VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 29° 18° 18° 19° 20° 18° 18° 25° 19° 29° 29° 31° 17° 21° 26° 19°Á MORGUN víða 3-8 m/s, hvassara NA-til. LAUGARDAGUR 3-10 m/s 13 13 15 15 14 15 14 16 14 16 15 3 2 2 1 3 2 2 2 1 3 4 14 14 15 15 16 13 15 14 15 13 HLÝTT Bjart um allt land í dag en dregur heldur fyrir á morgun þó að víðast hvar sjáist eitthvað til sólar. Lítilsháttar væta N-til á laugardag. Hlýtt í veðri í öllum landshlutum næstu daga. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður Fólk er oft svo stressað og hrætt við breytingar. En ef maður heldur aðeins í höndina á því er þetta ekkert mál. AGNES GUNNARSDÓTTIR HJÁ SÖLU- OG MARKAÐSSVIÐI ÍSLENSKA GÁMAFÉLAGSINS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.