Fréttablaðið - 11.07.2012, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 12. júlí 2012 19
Í Fréttablaðinu 2. júlí sl. talar Páll Hjalta-son, formaður skiplagsráðs Reykjavík-
ur, fyrir vinningstillögu í samkeppni sem
haldin var um skipulag Ingólfstorgs og
nærliggjandi lóða. Tillagan er af sama toga
og eldri tillögur frá árinu 2009, en hún er
þeirra verst því hún gengur lengst þessara
tillagna í auknum byggingum og skerðingu
almannarýma á þessu einstaka svæði.
Ingólfstorg er vanmetið og vanvirt
Ingólfstorg er vanmetin auðlind með mikla
möguleika en það þarf að bæta það og laga.
Ingólfstorg er eina stóra torgið í Reykja-
vík með gömlum timburhúsum á þrjá
vegu. Flest þeirra eru meira en aldargöm-
ul. Í þessum timburhúsum, í byggingar-
stíl þeirra, skipulagi og byggingarefni er
fólginn stórmerkur arfur frá byggingar-
sögu höfuðborgarinnar. Að ekki sé talað
um sögu fólksins sem þar hefur búið og
starfað.
Það sem hefur aukið verðmæti þessa
svæðis er einmitt hið stóra torg, sem hefur
myndast í áranna rás með húsbrunum og
niðurrifi húsa. Það er orðinn hlutur sem
óþarft er að trega og óþarft að byggja upp
að nýju. Til hefur orðið útisvæði, sam-
komustaður utandyra, sem er nauðsyn-
legur stækkandi þjóð. Við torg af þessu
tagi blómstrar veitingarekstur með iðandi
mannlífi á sumrin. Sú er raunin við Ing-
ólfstorg og Austurvöll. Mikilvægi torganna
í höfuðborginni er ekki minna en tónleika-
sala, kvikmyndahúsa og safna. Opin rými,
torg og garðar eru nefnilega helstu verð-
mæti höfuðborga, auðlind sem víðast er
metin að verðleikum.
Hagsmunir almennings og umhverfisgæði
ekki í fyrirrúmi
Páll segir hugmyndir „um þróun miðborgar-
innar hafa breyst mikið síðustu áratugi og
í dag er lögð aukin áhersla á byggðavernd-
un ásamt mikilvægi þess að almannahags-
munir og umhverfisgæði séu höfð að leiðar-
ljósi.“ Í einu atriði er hægt að finna þessum
sjónarmiðum stað í tillögunni eða þar sem
gert er ráð fyrir að gömlu timburhúsin við
Vallarstræti fái að standa. En þá er þeim
gæðum spillt með því að byggja upp að þeim
stærri hús sem skyggja á þau og rjúfa sam-
band þeirra við hin gömlu húsin við torgið.
Heildarmyndin sem nú er hverfur og NASA
verður rifið en nýr salur í breyttri mynd
byggður í kjallara á sama stað og er hluti
hótelsins í Landsímahúsinu. Tónleikastað-
urinn sem nú kallast NASA er samkvæmt
tillögunni úr sögunni. Það er miður ef svo
fer, því staðurinn er einstakur og þarf að
varðveita.
Þá er vart hægt að sjá almannahagsmuni í
því að minnka Ingólfstorg um helming með
því að byggja nýbyggingar á suðurhluta
þess, á sólríkasta hlutanum. Hvernig dettur
mönnum þetta í hug? Þá er leyft að byggja
ofan á gamla Landsímahúsið og við það, við
Kirkjustræti og við Fógetagarð. Bæði hækk-
un og stækkun bygginga eykur skuggavarp
á Austurvöll, Ingólfstorg og Fógetagarð.
Með tillögunni verða til þrjár mjóar götur,
með hús á báðar hliðar; Veltusund, Vallar-
stræti og Kirkjustræti að hluta. Hér er
verið að búa til skuggasund, kaldar götur
þar sem mannlíf utandyra þrífst ekki. Hve
margar stundir mun sólin ríkja við hið nýja
Vallarstræti og Veltusund á góðum sumar-
degi? Eina eða tvær stundir? Ekki eru þetta
aukin umhverfisgæði! Umhverfisgæðin
eru í besta falli innan dyra í þessari tillögu.
Aukið skuggavarp á torg og stræti borgar-
innar eru ekki aukin gæði.
Þau verðmæti sem felast í hinni sjón-
rænu heild sem gömlu timburhúsin við Ing-
ólfstorg skapa eru vanvirt í tillögunni. Það
ætti frekar að gera þeim hátt undir höfði.
Það má gera með því að banna bílaumferð
í Veltusundi, Vallarstræti og Hafnarstræti,
leggja göturnar af og stækka torgið. Þannig
gætu gestir og gangandi og veitingarekend-
ur betur notið og hagnýtt sér gæði torgsins.
Vinningstillagan ýtir fólki burt. Miðborg
verður að geta boðið upp á stórt og vistlegt
torg til samkomuhalds, markaðshalds, tón-
leika o.s.frv. Ingólfstorg er best til þess fall-
ið.
Risahótel
Með tillögunni er gert ráð fyrir stóru hóteli
í öllum Landsímahúsunum, viðbyggingu við
Kirkjustræti og byggingu þar sem NASA er
nú. Hótelið er nú stærra en í fyrri hugmynd-
um og snýr að Ingólfstorgi, Austurvelli og
Fógetagarði. Ekki eru borgarbúar bættari
með þessum hótelrisa. Hvað finnst alþingis-
mönnum um þennan nýja nágranna? Væri
ekki nær að þingið eignaðist Landsímahúsið
og hefði þar skrifstofur í stað þess að byggja
nýjar á Alþingisreitnum? Hótel og meðfylgj-
andi umferð er þegar ráðandi afl og setur
sterkt svipmót á allt umhverfið við Ingólfs-
torg, rútubílar uppi á gangstéttum, fjalla-
jeppar og flugrútur teppa umferð í Aðal-
stræti og nærliggjandi götum. Ekkert er
hugsað fyrir þessu. Við þurfum ekki fleiri
hótel við Ingólfstorg og Austurvöll.
Viðmið um uppbyggingu í miðborginni?
Niðurlagsorð formanns skipulagsráðs eru
þessi: „Sú niðurstaða sem samkeppni um
Ingólfstorg leiddi af sér [tillagan] varðar
veginn fyrir aðra uppbyggingu í miðborg-
inni þar sem fólk á alltaf að vera í fyrir-
rúmi.“ Að okkar mati hefur Páll rangt fyrir
sér þegar hann fullyrðir að tillagan setji
fólk í fyrirrúm. Og alls ekki mega þau orð
Páls rætast að tillagan varði veginn fyrir
uppbyggingu í miðborginni. Á að byggja á
Austurvelli næst? Hvernig getur tillagan
varðað uppbyggingu miðborgar til fram-
tíðar? Að okkar mati yrði það alvarlegt
menningarslys ef vinningstillagan yrði að
veruleika. Þá getum við allt eins fallist á að
virkja Gullfoss. Við hvetjum landsmenn alla
til þess að kynna sér málið og taka afstöðu
til þess hvort hér séu hagsmunir almenn-
ings hafðir í fyrirrúmi og hvort þessi tillaga
eigi að varða veginn um uppbyggingu í mið-
borginni.
Skipulagsmál
Eiríkur G. Guðmundsson
Helgi Þorláksson
Hrefna Róbertsdóttir
Ólafur Ásgeirsson
sagnfræðingar
INGÓLFSTORG Teikningin sýnir hvernig hugsanlega megi bæta nýtingu Ingólfstorgs og skapa betri tengsl
fólks við gömlu timburhúsin við torgið með því að leggja niður bílastæði og götur sem liggja að húsunum í
dag. Brynjólfsbúð, gula húsið lengst til hægri, er hér stækkað til þess að styrkja heildarsvip götumyndar og
fylla í bil sem nú er. Hægt væri að hafa sérstakt hús þar.
Byggingar í fyrirrúmi
K
O
R
T
E
R
.
I
S