Fréttablaðið - 11.07.2012, Blaðsíða 38
12. júlí 2012 FIMMTUDAGUR30 30
menning@frettabladid.is
Hólmarinn Jón Ragnar
Daðason hefur trébátasmíð-
ina í blóðinu og sinnir við-
haldi gamalla báta af elju
og áhuga á verkstæði sínu í
Vesturbæ Reykjavíkur.
Ilmur af trjákvoðu og tjöru fyllir
bátaskemmu Jóns Ragnars Daða-
sonar. Þar inni og úti í porti eru
bátar sem hann hefur bjargað frá
eyðileggingu og er að gera upp.
Með mismunandi lagi, einn er
Breiðfirðingur, annar Engeyingur.
Allir eiga sína sögu sem Jón Ragn-
ar lætur sig varða. „Ég er alltaf að
grúska og sagan á bak við bátana
færir fólkið sem nýtti þá nær mér,“
segir hann.
Jón Ragnar er fæddur og uppal-
inn í Stykkishólmi og kveðst eini
nýliðinn í trébátasmíði á Íslandi.
„Ég vann hjá Minjavernd við að
gera upp gömul hús í Hólminum svo
ég hef aðallega verið í þessu gamla
handverki. Þar sem í ættinni minni
eru tréskipasmiðir í allar áttir
fannst mér liggja beinast við að
reyna að halda þeirri grein við. Það
hefur ekki verið útskrifaður tré-
skipasmiður á Íslandi í yfir tuttugu
ár. Hafliði Aðalsteinsson, meistar-
inn minn, er kominn af breiðfirsk-
um bátasmiðum í beinan karllegg.
Hann hefur kennt mér hvernig á
að gera hlutina, ég er bara að bíða
eftir að taka sveinsprófið.“
Aðalgræjan á verkstæði Jóns
Ragnars er nýleg bandsög en gömul
handverkfæri, meðal annars frá
afa hans, skaröxi, heflar og spor-
járn koma að góðum notum. Hann
kveðst líka hafa búið til verk-
færi, til dæmis klofakerlingu og
læsir borðum saman þegar hann
er að byrða. Hann segir erfitt að
fá smíðaefni hér á landi sem ekki
springi þegar verið sé að sveigja
það. „Ég þarf oft að endurstafla
heilu búntunum í timburverslunum
til að finna góða spýtu en stundum
er heppnin með mér.“ Afturstefni
úr dönskum eikarplanka í bátinn
Sumarliða er á smíðaborðinu, úr
170 ára gömlu tré.
Svalan, bátur sem Jón Ragnar
fékk frá Þjóðminjasafninu gegn
því að endursmíða hann, er í gámi
á leið til Ebeltoft í Danmörku á nor-
ræna strandmenningarhátíð þegar
viðtalið fer fram og smiðurinn er
á förum þangað líka. Kemur hann
ekki með Svöluna heim aftur? „Jú,
annað væri ólöglegt, hún er yfir
hundrað ára og það má ekki flytja
svona gamla muni úr landi. Hún
fer vestur í Stykkishólm og verð-
ur notuð þar milli eyja, þar sem
hún á heima,“ segir Jón Ragnar
ákveðinn. Hann segir Svöluna með
fyrstu bátum eftir langafa hans,
Rögnvald Lárusson, og er líka með
síðasta bátinn hans, Kára, í við-
gerð. „Þegar afi minn var átta ára
aðstoðaði hann föður sinn við smíð-
ina á Kára, mamma og pabbi fóru
svo í siglingu á bátnum í tilhugalíf-
inu, sextán, sautján ára.“
Jóni Ragnari svíður hversu
sinnulausir Íslendingar eru um
gömlu bátana sína. „Varðveisla
timburbáta á Íslandi er sama og
engin. Mest af þeim fór forgörð-
um í aðgerðum stjórnvalda þegar
úreldingu var komið á. Löggan
fór bara heim til fólks og heimtaði
að það sagaði bátinn sinn í tvennt
eða kveikti í honum. Sagnfræð-
ingar eru alltaf að reyna að grafa
upp heimildir um horfna tíma en
mér finnst nær að viðhalda hlut-
um en að skrifa um þá. Það voru
timburbátar sem héldu lífinu í
Íslendingum en það er hvergi
styrki að fá til viðgerða á þeim,
sem nokkru nemur.“ Hann segir
málþing um trébáta á Íslandi
hafa verið haldið í fyrrasumar.
Þar hafi ekki vantað fögur orð.
„Maður sá framtíðina brosa við
þessari grein en strax daginn
eftir málþingið var öllum hurð-
um lokað. Við þyrftum að taka
okkur Færeyinga og Norðmenn
til fyrirmyndar. Þessi menning er
svo forgengileg því timburbátar
grotna niður ef þeim er ekki hald-
ið við.“ gun@frettabladid.is
Þessi menning er svo forgengileg
SVALAN Dæmigerður hlunnindabátur úr Breiðafirði. Nú á sýningu í Danmörku.
VIÐ BREIÐFIRÐINGINN SUMARLIÐA „Sagan á bak við bátana færir fólkið sem nýtti þá nær mér,“ segir Jón Ragnar sem á mörg handtök eftir við forngripinn fyrir aftan sig.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Báturinn Sumarliði er smíðaður
1860. Hann hefur opnað Jóni Ragn-
ari ótal heimildir um forfeðurna.
„Langalangafi, Jón Skúlason, reri
á Sumarliða undir jökli, úr Dritvík
og Keflavík. Faðir hans lést þar um
borð á heimleið úr róðri. Síðar var
langafi minn, Bergsveinn Jónsson
skipasmiður, lóðs á Sumarliða í
Stykkishólmi um tíma en ég fann
bátinn suður í Vogum á Vatnsleysu-
strönd. Þar var hann sokkinn ofan
í mýri og kjölurinn varð eftir,“ segir
smiðurinn ungi.
FANN SUMARLIÐA
SOKKINN Í MÝRI
í dag kl. 16.30
Pikknikk
tónleikar
www.norraenahusid.is – 551 7030
Fuglaskoðun laugardaga kl. 14.00.
Pikknikkveitingar fást í mótttökunni.
Jazztríó Önundar spilar
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 12. júlí 2012
➜ Tónleikar
16.30 Jazztríó Önundar leikur fyrir
gesti á næstu tónleikum í Pikknikk
tónleikaröð Norræna hússins. Frítt er á
tónleikana sem haldnir eru í gróðurhúsi
Norræna hússins.
20.00 Bachsveitin í Skálholti leikur
tónlist eftir Henry Purcell, Johann Georg
Pisendel og Georg Friederich Händel í
Skálholtskirkju.
20.00 Trio Scandia heldur tónleika í
Hofi á Akureyri. Tríóið er skipað tveimur
Íslendingum, Hafdísi Vigfúsdóttur og
Kristjáni Karli Bragasyni, og einum
Norðmanni, Linn Annett Ernø. Miðaverð
er kr. 2.000 en ókeypis fyrir 16 ára og
yngri.
20.30 Hljómsveitin Melchior heldur
tónleika í Iðnó. Tilefnið er útgáfa plöt-
unnar Matur fyrir tvo. Öflug sveit gesta-
hljóðfæraleikara verður hljómsveitinni til
halds og trausts. Miðaverð er kr. 1.900.
21.00 Tónleikamaraþon Jónasar Sig-
urðssonar heldur áfram í Fjarðarborg á
Borgarfirði Eystri. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Hljómsveitin Kex Collective
kemur fram á tónleikaröðinni Heitir
Fimmtudagar, sem er haldin á Græna
Hattinum á vegum jazzklúbbs Akur-
eyrar. Miðaverð er kr. 2.000.
22.00 Dúndurfréttir verða með
tónleika á Gamla Gauknum, Tryggva-
götu 22. Aldurstakmark er 20 ára og
aðgangseyrir er kr. 2.500.
➜ Sýningar
17.00 Egill Sæbjörnsson opnar
sýningu með verkum sínum í i8 Gallery,
Tryggvagötu 16, Reykjavík.
➜ Uppákomur
20.00 Gengið verður um Gömlu
Gróðrarstöðina norður Aðalstræti í átt
að Minjasafnsgarðinum sem hluti af
afmælisdagskrá afmælisnefndar Akur-
eyrarbæjar og Minjasafnsins á Akureyri.
Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu.
20.00 Borgarbókasafnið stendur
fyrir kvöldgöngu undir yfirskriftinni
Fyrir ofan garð og neðan. Lagt er upp
frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, og
gengið verður um gróna reiti í miðbæ
Reykjavíkur. Þátttaka er ókeypis.
➜ Dans
18.30 SalsaIceland mun reyna við
Íslandsmet í kúbverska dansinum
Rueda de Casino á Austurvelli. Kennarar
munu kenna þeim sem ekki kunna
undirstöðuatriðin svo sem flestir geti
verið með. Um er að ræða fjölskyldu-
atburð þar sem öllum er velkomið að
taka þátt, sér að kostnaðarlausu.
➜ Tónlist
12.00 Tómas Guðni Eggertsson
organisti Seljakirkju leikur á hádeg-
istónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í
Hallgrímskirkju. Miðaverð er kr. 1.500.
20.00 KK heiðrar Viðey með tónleik-
um í Viðeyjarstofu. Siglingar frá Skarfa-
bakka klukkan 18.15 og 19.15. Verð á
tónleikana og í ferjuna er kr. 3.000.
21.00 Hljómsveitin Skuggamyndir eða
Byzantine Silhouette flytur þjóðlög frá
Balkanlöndum í Bryggjunni í Grindavík.
21.00 Myrra Rós og félagar spila á
Café Rosenberg.
21.00 Hljómsveitin Tilbury spilar á
tónleikaröð íslensk-alþjóðlegu tónlistar-
veitunnar gogoyoko á Kex Hostel. Sér-
stakur gestur kvöldsins er Dad Rocks.
Miðaverð er kr. 1.500.
22.00 Bítladrengirnir blíðu halda
tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg
8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
NÝR DAGUR Ný ljóðabók eftir Þórarin Hannesson, forstöðumann Ljóðaseturs á
Siglufirði, er komin út hjá Uglu útgáfu. Hún ber heitið Nýr dagur og í henni er að finna
„hugþekk ljóð um lífið og tilveruna – ástina, börnin og náttúruna,“ eins og fram kemur á
bókarkápu. Söluágóði rennur til uppbyggingu Ljóðasetursins.