Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 2
8. september 2012 LAUGARDAGUR2
Guðmundur, eru þau á Hrafn-
istu þá loksins full-orðin?
„Já, og fullmegtug eigin gjörða.“
Endurnýjaður matsalur með vínveitingum
hefur verið opnaður á Hrafnistu. Guð-
mundur Hallvarðsson er formaður
stjórnar Hrafnistu.
AÐEINS Í DAG!
GÓLFLAMPI
VERÐ ÁÐUR 18.900,- NÚ 10.000,-
40%
kíktu inn á www.pfaff.is
Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400
Opið í dag, laugardag kl. 11-16.
DÓMSMÁL Líkur eru á að Brynj-
ar Mettinisson, sem setið hefur
í fangelsi í Taílandi, verði á
heimleið á undan móður sinni,
sem einnig er í
landinu.
Sendiherra
Íslands og
utanríkisráðu-
neytið fengu
staðfest hjá
yfirvöldum
í Taílandi í
gær að máli
Brynjars yrði
ekki áfrýjað
og hann því látinn laus á allra
næstu dögum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins á móðir Brynjars flug
á laugardaginn næsta, á miða
sem ekki er hægt að breyta. Fari
fram sem horfir verður Brynjar
farinn frá Taílandi fyrir helgina.
Hann er á leið heim til Íslands,
með viðkomu hjá ættingjum í
Svíþjóð.
- óká
Taílensk yfirvöld áfrýja ekki:
Laus úr fangelsi
á næstu dögum
BRYNJAR
METTINISSON
BRUSSEL Framkvæmdastjórn ESB
hefur kallað eftir endurgreiðslu á
215 milljónum evra, sem jafngildir
rúmum 33 milljörðum króna, sem
þrettán aðildarríki höfðu fengið út
úr sjóðum sambandsins í gegnum
styrkjakerfi sameiginlegu land-
búnaðarstefnunnar.
Ástæða krafnanna er sú að ríkin
sem um ræðir höfðu ekki farið að
reglum við úthlutun, meðal annars
með ónægri eftirfylgni með ráð-
stöfun fjárins. Portúgal fær lang-
hæsta bakreikninginn, að upphæð
tæplega 90 milljóna evra, en Bret-
land og Ítalía koma næst með um
30 milljónir evra. - þj
Landbúnaðarstefna ESB:
33ja milljarða
bakreikningur
BÆNDUR OG BÚALIÐ ESB hefur sent
út bakreikning til 13 aðildarríkja vegna
slælegra vinnubragða við úthlutun land-
búnaðarstyrkja. NORDICPHOTOS/AFP
BELGÍA Vegfarendur í Brussel í
Belgíu þurfa nú að gæta að orð-
bragði sínu. Sektir, 75 til 250
evrur, liggja nú við ljótu orð-
bragði og skammaryrðum í garð
annarra á götum úti.
Talsmaður borgarstjórans
segir dómstóla ekki hafa annað
slíkum málum hingað til og þess
vegna hafi margir lögreglumenn
ekki séð ástæðu til að grípa til
aðgerða vegna þeirra.
Í heimildarmynd belgíska leik-
stjórans Sofie Peeters er varpað
ljósi á árekstra borgaranna sem
kvikmyndaðir voru án þeirra
vitneskju, að því er telegraph.
uk.co greinir frá. - ibs
Boðað til aðgerða í Brussel:
Fólk sektað
fyrir að blóta
NÁTTÚRA „Þetta er sárasjaldgæft kvikindi,“ segir
Erpur Snær Hansen fuglafræðingur um tregadúfu
sem með naumindum lifði af að lenda í klóm kattar í
Vestmannaeyjum í gær.
Tregadúfur, litlir fuglar sem þekkjast á spísslaga
stéli og blágrænum hring í kringum augun, eru mjög
algengar í Bandaríkjunum. Slík dúfa hefur þó aðeins
einu sinni borist til Íslands, árið 1996 til Vestmanna-
eyja, og ekki nema um fimm dæmi eru um að þær
hafi sést í gjörvallri Evrópu, að sögn Erps.
„Hún er ansi rýr greyið, ekki nema 69 grömm
þegar þær eiga að vera 120 grömm. Hún hefur
verið orðin aðframkomin af hungri eftir flugið yfir
Atlantshafið,“ segir hann. Hún hafi meira að segja
verið farin að brenna flugvöðvunum.
Erpur segir að dúfan hljóti að hafa lent í miklum
fellibyl við austurströnd Bandaríkjanna – jafnvel
Ísak sem var í fréttum í vikunni. Hún hafi lítið átt
í köttinn, sem hafi skemmt á henni fiðrið áður en
henni var bjargað úr klóm hans.
„Hún er þokkalega ern miðað við það sem á undan
er gengið en það er samt spurning hvort hún lifir. Það
er verið að reyna að gefa henni að éta og ef það tekst
þá verður henni sleppt,“ segir Erpur. - sh
Norður-Amerísk tregadúfa milli heims og helju í Vestmannaeyjum:
Sjaldgæfur flækingur í klóm kattar
AÐFRAMKOMIN Kjalbeinið á dúfunni stendur út í loftið, sem
er til merkis um að hún sé ekki vel á sig komin.
MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
MÓTMÆLI Fulltrúar atvinnuvega-
ráðuneytisins tóku á móti sex-
tán þúsund póstkortum frá sjálf-
boðaliðum samtakanna SEEDS.
Á þeim voru undirskriftir 15 þús-
und ferðamanna sem hétu því að
smakka ekki hvalkjöt á meðan á
dvöl þeirra hér stæði. Þá höfðu eitt
þúsund Íslendingar skrifað nöfn
sín á póstkortin.
Sigursteinn Másson, fulltrúi
samtakanna, segir að sjálfboðalið-
arnir hafi fengið mjög góðar mót-
tökur í sumar. Auk þess að heita
því að bragða ekki á kjötinu hvetja
þeir sem skrifa undir stjórnvöld til
að stöðva veiðar á hval við landið.
Sérstaka athygli veki hve marg-
ir Íslendingar höfðu frumkvæði að
því að skrifa undir póstkortin, þó
þau væru í raun fyrst og fremst
ætluð ferðamönnum.
Hann segir markmiðið tvíþætt;
annars vegar að sýna stjórnvöld-
um fram á hve umdeildar hvalveið-
ar eru og að Íslendingum sé í hag
að hætta þeim.
„Þá vildum við vekja ferðamenn
á Íslandi, sem langflestir segjast
andvígir hvalveiðum, til vitundar
um að með því að smakka hvalkjöt
á íslenskum veitingastöðum eru
þeir að stuðla að áframhaldandi
hvalveiðum.“ - kóp
Fimmtán þúsund ferðamenn og eitt þúsund Íslendingar skrifuðu á póstkort:
Heita því að smakka ekki hvalkjöt
NOREGUR Fertugur maður í Nor-
egi var í gær sakfelldur fyrir að
leggja hendur á tólf ára vin sonar
síns og hóta honum öllu illu.
Maðurinn hafði frétt af því að
viðkomandi drengur hefði ráðist
á son hans. Hann fór að heimili
drengsins sem var einn heima. Þar
ærðist maðurinn, skemmdi bíl og
braut rúðu í íbúðinni.
Þá tuktaði maðurinn drenginn
til, til að fá hann til að játa að hafa
slegið son hans, og hótaði svo að
brenna húsið til grunna. Neyðar-
hróp drengsins drógu hins vegar
að nærstadda sem gátu skakkað
leikinn. Dómurinn yfir manninum
var 90 stundir í samfélagsvinnu og
greiðsla skaðabóta.
- þj
Æstur Norðmaður dæmdur:
Lamdi tólf ára
vin sonar síns
PÓSTKORTIN AFHENT Sextán þúsund
póstkort með kveðjum á fjölmörgum
tungumálum voru afhent í atvinnuvega-
ráðuneytinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMGÖNGUR Iceland Express
ætlar að hefja áætlunarflug til
Bandaríkjanna á nýjan leik næsta
sumar. Flogið verður daglega til
Boston frá byrjun júní.
Áfangastöðum í Evrópu verður
fækkað um sex en um leið verður
fjölgað ferðum á þá staði sem
flogið verður á miðað við það
sem áður var, að því er segir í til-
kynningu frá flugfélaginu. Nýir
áfangastaðir í Evrópu verða Ósló
og Frankfurt í Þýskalandi. Sæta-
framboð verður aukið úr 370 í
480 þúsund eða um 30 prósent.
Breytingar hjá Iceland Express:
Aftur flug til
Bandaríkjanna
KÓPAVOGUR Leiðtogar meirihlutans
í bæjarstjórn Kópavogs funduðu
nýverið með Guðrúnu Pálsdótt-
ur, fyrrverandi bæjarstjóra, í því
skyni að fá hana til að gera breyt-
ingar á starfslokasamningi hennar
frá því í febrúar síðastliðnum.
Ármann Kr. Ólafsson og Rann-
veig Ásgeirsdóttur vildu lækka
orlofsgreiðslur Guðrúnar, skylda
hana til að greiða vangoldna vexti
af umdeildu skuldabréfi vegna
gatnagerðargjalda sem fannst í
læstum skáp á bæjarskrifstofunum
og breyta sam-
komulagi
um
að
hún tæki aftur við sviðsstjórastöðu
hjá bænum 1. september þar sem
vinna við að breyta skipuriti bæj-
arins stæði enn yfir.
Þetta er fullyrt í bréfi sem lög-
maður Guðrúnar, Gestur Jónsson,
sendi Ármanni Kr. Ólafssyni bæj-
arstjóra 21. ágúst síðastliðinn og
Fréttablaðið hefur undir höndum.
Í bréfinu er umleitunum Ármanns
og Rannveigar mótmælt harðlega.
Bréfið var hins vegar dregið til
baka nokkrum dögum síðar.
Málið kom til umræðu á bæjar-
ráðsfundi á fimmtudaginn var.
Þar lagði Guðríður Arnardótt-
ir, fulltrúi Samfylkingarinnar,
fram bókun þar sem hún segir
það vekja furðu að bæjarráði hafi
ekki verið sagt frá bréfi Gests á
sínum tíma.
„Það kemur verulega á óvart
að nú einungis sex mánuðum
eftir að núverandi meiri-
hluti gerði fordæmalaus-
an starfslokasamning við
fyrrverandi bæjarstjóra,
skuli þau núna ætla að draga
í land með svo sérkennilegum
hætti. Varla þarf að minna á þær
athugasemdir sem fulltrúar Sam-
fylkingarinnar gerðu við þann
samning,“ segir í bókun Guðríðar.
„Nú er útlit fyrir að fulltrúar
meirihlutans hyggist ekki efna
það samkomulag og jafnvel ekki
bjóða fyrrverandi bæjarstjóra
sviðsstjórastöðu eins og lofað var
í febrúar síðastliðnum og viðbúið
að slíkt feli í sér enn meiri kostn-
að bæjarsjóðs. Vinnubrögð af
þessu tagi eru með miklum ólík-
indum.“
Í gagnbókun frá meirihlutanum
segir að túlkun Guðríðar á efni
fundarins sé alröng.
Ekki náðist í Ármann Kr. Ólafs-
son bæjarstjóra í gær en Rann-
veig Ásgeirsdóttir, formaður bæj-
arráðs, segir að fundurinn með
Guðrúnu hafi verið mjög eðlileg-
ur í ljósi þess að hún hafi átt að
koma aftur til starfa 1. september.
„Það er enn verið að vinna eftir
starfslokasamningnum frá því í
febrúar,“ segir Rannveig, spurð
hvort enn standi til að Guðrún taki
við sviðsstjórastöðu hjá bænum.
Spurð hvenær það verður segir
Rannveig að það sé eitthvað sem
verði að ræða við Guðrúnu. Hún
viti ekki hvers vegna bréfið var
dregið til baka.
Ómar Stefánsson, varaformað-
ur bæjarráðs, baðst undan því að
ræða málið við blaðið. „Ég hef
helst ekki viljað tjá mig neitt um
þetta mál,“ segir hann. Ekki náð-
ist í Guðrúnu Pálsdóttur og Gest-
ur Jónsson vildi ekki tjá sig að
öðru leyti en staðfesta að hann
hefði sent bréfið.
stigur@frettabladid.is
Mótmælti breytingum
á starfslokasamningi
Enn er deilt um starfslok Guðrúnar Pálsdóttur sem bæjarstjóra í Kópavogi.
Reynt að breyta starfslokasamningi hennar eftir á og skerða kjör. Lögmaður
hennar mótmælti harðlega í bréfi til bæjarstjóra en dró bréfið síðan til baka.
ÓSÁTT Ekki hafa fengist skýring-
ar á því hvers vegna bréf Gests
Jónssonar, lögmanns Guð-
rúnar, var dregið til baka.
GUÐRÍÐUR
ARNARDÓTTIR
RANNVEIG
ÁSGEIRSDÓTTIR
SPURNING DAGSINS