Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 44
KYNNING − AUGLÝSINGKringlan LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 20126 Listamaðurinn Erró setti mikinn svip á opnun Kringlunnar fyrir ald- arfjórðungi síðan. Þá var afhjúp- uð risastór mósaíkmynd af lista- verkinu Silfurþeysi, með tilvísun í teiknimyndahetjuna Silver Surfer. Myndin var alls fimmtíu fermetrar að flatarmáli, átta metrar á breidd og tæpir 6,5 metrar á hæð. Það var fasteignafélagið Þyrp- ing, í tengslum við þátttöku í Lista- sjóði atvinnulífsins, sem fékk Eirík Þorláksson, þá forstöðumann Listasafns Reykjavíkur, til að hafa milligöngu um að fá Erró til að gera listaverk í Kringluna. Krist- inn E. Hrafnsson myndlistarmað- ur hafði síðan umsjón með verkinu sem var samsett úr 2.475 keramik- flísum sem framleiddar voru hjá þekktri keramikverksmiðju í Portúgal. Þegar verkið hafði verið afhjúpað skrifaði Halldór Björn Runólfs- son, nú safnstjóri Listasafns Íslands, eftirfarandi umsögn um risavax- ið listaverk Errós: „Öðruvísi mynd í Kringlunni, þessu musteri viðskiptanna, hefði verið helgispjöll. Með Silfurþeysi höfum við fengið altaristöfluna sem hæfir musterinu og mun vonandi standa eins lengi og almenningur fyllir Kringluna.“ Verkið var tekið niður og komið fyrir í öruggri geymslu í febrúar 2006 þegar viðbygging, þar sem NEXT er, var byggð. Í tilefni 25 ára af- mælis Kringlunnar er nú mikill áhugi fyrir að koma verkinu aftur fyrir sjónir almennings. Hugmyndir að nýrri staðsetningu eru margar og til dæmis unnið að því að kanna hvort loftið í strýtu Kringlunnar sé tæknilega mögulegt þar sem verkið myndi hanga í 45 gráðu halla. Silfurþeysir snýr aftur Listamaðurinn Erró var viðstaddur þegar risavaxin mósaíkmyndin var afhjúpuð. Listaverkið Silfurþeysir var til mikillar prýði og augnayndis fyrir gesti Kringlunnar. Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hag-kaups, segir mikið hafa breyst frá opnun Kringlunnar. „Það má segja að það hafi orðið bylting í verslun þegar Kringlan opnaði, enda jókst heildarverslun- arrými landsmanna um níu pró- sent með tilkomu hennar. Þar með jókst vöruframboð gríðarlega sem og fjöldi verslana.“ Í kjölfarið byrjaði að þróast ný menning sem er vel þekkt frá Am- eríku. „Íslendingar þekktu ekkert þessa verslunarmiðstöðvarmenn- ingu en voru þó ekki lengi að til- einka sér hana. Fljótlega fóru þeir að fara í Kringluna bara til að sjá aðra og sýna sig, þó þeir væru ekk- ert endilega að versla. Kannski bara til að sjá Tomma tómat eða Þorra þorsk sem bjuggu í Hag- kaup,“ segir Gunnar og hlær. Kringlan hefur breyst mikið frá því hún opnaði. Bæði var hún stækkuð og Borgarkringlan byggð sem að lokum sameinaðist Kringl- unni. Verslununum fjölgaði jafnt og þétt. „Það er líka gríðarmik- ill munur á vöruúrvali miðað við í upphafi. Í dag getur fólk komið í Kringluna og valið úr ótrúlegum fjölda alþjóðlegra vörumerkja og vöruúrvalið þar með margfald- ast á þessum 25 árum. Í matvöru- verslunum Hagkaups erum við til dæmis með átján þúsund vöruteg- undir í matvöru.“ Spurður um framtíð Kringl- unnar segir Gunnar Kringluna eiga eftir að halda áfram að vaxa og dafna um ókomna tíð. „Ég held að hér verði áfram blómleg versl- un í 25 ár í viðbót og gott betur. Kringlan hefur líka þá yfirburði að vera best staðsetti verslunar- kjarni landsins. Hingað er stutt að sækja úr öllum áttum. Það eru sönn forréttindi að fá að vera með verslun við fjölförnustu verslunar- götu á Íslandi í 25 ár og áfram um ókomna tíð.“ Bylting í verslun Hagkaup hefur verið í Kringlunni frá upphafi. Tilkoma hennar var bylting á sínum tíma og jókst heildarverslunarrými landsmanna um heil níu prósent. Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups. MYND/GVA Lilja fagnar 25 ára starfsafmæl- is Cosmo um leið og Kringlan. „Það eru örfáar verslanir af 120 sem hafa verið hér frá upphafi og Cosmo er ein af þeim. Ég nýt vinn- unnar minnar jafn mikið og fyrir 25 árum. Eitt það skemmtileg- asta sem ég veit er að taka á móti konum svo þær fari héðan ánægð- ar og flottar,“ segir Lilja. Áður en hún ákvað að opna Cosmo hafði Lilja leigt búðarrekst- ur af móður sinni á Laugaveginum í aðeins fjóra mánuði. Það má því með sanni segja að hún hafi ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur þegar hún ákvað að opna eigin verslun. „Mörgum fannst ég vera algjör kjáni að fara út í þetta aðeins 21 árs gömul. Það myndi aldrei ganga. En hér er ég enn.“ Fimmtudagurinn 13. ágúst 1987 var opnunardagur Kringl- unnar. „Það gekk ótrúlega mikið á hérna dagana á undan og unnið var dag og nótt að því að gera allt klárt. Opnunardagurinn sjálfur var ævintýri líkastur. Að honum loknum hafði allt selst og búðin var tóm.“ Árið 1987 tók fólk Kringl- unni opnum örmum og gerir enn í dag. „Kringlan var algjör bylting á sínum tíma. Áður þurfti fólk að labba á milli verslana í allavega veðri eða keyra lengri vegalendir. En með tilkomu Kringlunnar gjör- breyttist landslagið. Það er sama hvernig viðrar úti, það er ávallt 18 gráðu hiti og blíða í Kringlunni.” Erilsamur opnunardagur Lilja Hrönn Hauksdóttir eigandi versluninnar Cosmo man vel eftir opnunardegi Kringlunnar. Lilja Hrönn, eigandi Cosmo í Kringlunni. MYND/VILHELM afmælisafsláttur af öllum gleraugum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.