Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 40
Kringlan LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 20122 KYNNING − AUGLÝSING
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir, tp: sigridurdagny@365.is, s: 512 5462.
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Mikið verður um dýrðir um helgina þegar verslunar-miðstöðin Kringlan held-
ur upp á 25 ára afmæli sitt. Kaup-
menn taka vel á móti gestum og
boðið verður upp á fjölda skemmti-
atriða fyrir gesti á öllum aldri. Sigur-
jón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri
rekstrarfélags Kringlunnar, býst
við miklum fjölda gesta enda verð-
ur afmælishátíðin öll hin glæsileg-
asta. „Hér verður mikið um dýrðir
og eitthvað skemmtilegt í boði fyrir
alla. Kringlan átti formlega afmæli
13. ágúst en við ákváðum að fresta
veislunni til fyrstu helgarinnar í
september svo fleiri gestir kæmust.“
Kringlan verður með sérstaka af-
mælisopnun á laugardaginn en þá
er opið frá 10 til 1 um nóttina. Af-
greiðslutíminn á sunnudag verður
þó hefðbundinn. „Það verður mikið
húllumhæ hér um helgina í tilefni
afmælisins. Hér verður boðið upp
á mikla og fjölbreytta skemmtun
fyrir gesti á öllum aldri, fjölbreytt-
ar veitingar og skemmtilegar upp-
ákomur fyrir börnin. Síðan munu
verslunareigendur sjálfir bjóða gesti
velkomna með frábærum afmælis-
tilboðum og sumir þeirra munu ef-
laust bjóða upp á veitingar og glaðn-
ing líka.“
Eftir 25 ár er engan bilbug að
finna á Kringlunni. Sigurjón segir
sögu verslunarmiðstöðvarinn-
ar hafa verið nær stanslausa sigur-
göngu frá því hún var opnuð.
„Kringlan hefur spjarað sig með
eindæmum vel þennan tíma. Það
er fáheyrt í svo hörðu samkeppn-
isumhverfi að verslunarmiðstöð
nái að halda stöðu sinni sem vin-
sælasta verslunarmiðstöð lands-
ins í allan þennan tíma. Auðvitað
á það sér ýmsar skýringar. Kringl-
an var auðvitað fyrsta verslunar-
miðstöð landsins og hefðin því með
okkur. Við erum síðan einstaklega
vel staðsett í hjarta borgarinnar við
stærstu gatnamót landsins. Aðgengi
að húsinu er einnig mjög gott. Svo
höfum við, leyfi ég mér að fullyrða,
bestu verslanir landsins hér saman-
komnar í húsinu. Margir kaupmenn
hér hafa rekið verslanir sínar frá
upphafi og því er mikill stöðugleiki
á meðal kaupmanna.“ Hann segir að
í raun sé hvert pláss umsetið í hús-
inu og þrátt fyrir djúpa efnahags-
lægð sé mikil eftirspurn eftir versl-
unarplássi.
Kringlan var opnuð eins og fyrr
segir í ágúst árið 1987. Borgarkringl-
an sameinaðist Kringlunni með við-
byggingu árið 1999 en hafði árið 1996
tengst Kringlunni með litlum tengi-
gangi. Sambíóin voru opnuð árið
1996 og munu á afmælisárinu taka
allt bíóið í gegn þannig að það verður
allt hið glæsilegasta. Árið 2006 bætt-
ist svokölluð Next-viðbygging við
húsið og ári síðar var veitingastað-
urinn Portið opnaður en sú viðbygg-
ing snýr að Borgarleikhúsinu. „Þetta
eru helstu áfangarnir í sögu Kringl-
unnar en ef við horfum til framtíðar
sjáum við að mikil eftirspurn er eftir
húsnæði á Kringlu reitnum. Þannig
að Kringlan verður að öllum líkind-
um stækkuð í framtíðinni. Þær fyr-
irætlanir eru á borðum borgaryfir-
valda enda snúa þær að breytingu á
deiliskipulagi borgarinnar.“
Í forystu í aldarfjórðung
Kringlan hefur verið flaggskip íslenskrar verslunar í 25 ár. Haldið verður upp
á afmæli hennar um helgarinnar þar sem eitthvað verður í boði fyrir alla.
Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Kringlunnar. MYND/ÚR EINKASAFNI
Booztbar/Ísbar
Á Booztbar/Ísbar er boðið upp á
margt spennandi fyrir bragðlauk-
ana og má þar helst nefna ómót-
stæðilegan ítalskan ís, krap, kaffi,
smoothies, jógúrtís og f leira og
fleira. Staðurinn er á Stjörnutorgi.
Café Bleu
Café Bleu er veitingastaður og
kaffihús á Stjörnutorgi. Þar er gott
að setjast niður og fá sér kaffi og
kökur eða stærri rétti, svo sem
pasta og steikur og allt þar á milli.
Café Roma
Café Roma er lítið og notalegt
kaffihús á annarri hæð Kringl-
unnar á móti Eymundsson og
Bónus. Það býður upp á úrval
kaffidrykkja og bakkelsi á góðu
verði. Góð og persónuleg þjónusta
er höfð að leiðarljósi.
Culina
Á Culina er boðið upp á heil-
næman heimilismat. Þar má fá til
dæmis salat, tortillur, eggjakökur,
fisk, kjúkling og smurbrauð. Boðið
er upp á bæði súpu dagsins og rétt
dagsins á sanngjörnu verði.
Domino’s Pizza
Pitsustaður á Stjörnutorgi. Dom-
ino’s Pizza er heimsþekktur
skyndibitastaður og eru fjórtán
slíkir staðir hér á landi. Þar er
lögð áhersla á að vinna alltaf með
fyrsta flokks hráefni og hágæða-
vöru.
Grillhúsið Express
Á Grillhúsinu Express á Stjörnu-
torgi er boðið upp á vinsælustu
rétti Grillhússins. Allir réttir Grill-
hússins eru vel útilátnir og ódýrir
og þjónustan er snögg.
Ísbúðin
Ísbúðin er í Hagkaup á fyrstu hæð.
Þar er boðið upp á alls kyns ísrétti,
ís úr vél, kúluís, pinnaís, krap og
margt fleira.
Jói Fel
Bakaríið Hjá Jóa Fel er í Hagkaupi
á fyrstu hæð. Þar má fá hefðbund-
ið bakkelsi, létta rétti, brauð og
margt fleira. Öll brauð bakarísins
eru bökuð í steinofni sem gerir þau
bragðbetri og gefur góða skorpu.
Kaffi Klassík
Kaffi Klassík er stærsta kaffitería
Kringlunnar með úrval af tert-
um, smurbrauði, súpu dagsins og
ýmsum kræsingum.
Kaffitár
Kaffitár var opnað árið 1999 á
þeim stað þar sem gosbrunnur
Kringlunnar var til margra ára.
Gosbrunnurinn var samt fjar-
lægður áður, eins og kannski gefur
að skilja. Staðurinn er ókrýnd-
ur konungur Kaffitárs en Kaffitár
rekur þó nokkurn fjölda kaffihúsa.
Kringlukráin
Kringlukráin var opnuð fyrir gest-
um á bjórdaginn, 1. mars, árið
1989. Kráin er veitingahús með
fjölbreyttan og vandaðan matseð-
il þar sem allir ættu að finna eitt-
hvað við sitt hæfi. Lögð er áhersla
á vinalegt og fjölskylduvænt and-
rúmsloft.
Portið
Portið er veitingastaður og kaffi-
hús á annarri hæð Kringlunnar.
Þar er boðið upp á brauð, borgara,
bröns og létta rétti ásamt kökum.
Hádegistilboð eru í gangi á hverj-
um degi þar sem boðið er upp á
tvær tegundir af súpu dagsins, fisk
dagsins og rétt dagsins.
Rikki Chan
Austurlensk-
u r staðu r á
Stjörnutorgi.
Rikki Chan á sér
langa sögu í Kringl-
unni því staðurinn hefur
verið þar síðan 1992 og fagnar því
tuttugu ára afmæli á árinu.
Sbarro
Sbarro er á Stjörnutorginu
en á rætur sínar að rekja til
Brooklyn í Bandaríkjunum.
Á Sbarro er boðið upp á góm-
sætan, ferskan og alvöru ítalskan
mat og þar er lögð áhersla á góða og
fljóta þjónustu.
Serrano
Í mjög stuttu máli sagt býður Serrano
upp á gómsætan mexíkóskan mat
sem er bæði hollur og ódýr. Serrano
er nafn á mjög sterkum chili-pipar
en nafnið hentar vel þar
sem serrano-pipar-
inn hefur ein-
stakt bragð, eins
og mat u r i n n
sem þar er í boði.
Subway
Fyrsti veitingastaður Subway á Ís-
landi var opnaður árið 1994.
Nú eru Subway-stað-
irnir orðnir nítján á Ís-
landi og þar á meðal
einn á Stjörnutorgi. Þar
fer saman hollusta og góður
skyndibiti.
SuZushii
Eins og nafnið gefur til kynna er
þetta sushi-staður og er hann á
Stjörnutorgi. Á SuZushi er lagður
metnaður í að bjóða upp á hand-
gert, nýlagað sushi. Hver sushi-bakki
er samsettur eftir óskum viðskipta-
vina.
Vænir veitingastaðir og kaffihús
Í Kringlunni má finna fjölda veitingastaða og kaffihúsa sem bjóða upp á fjölbreyttan mat og þjónustu. Flestir staðirnir eru á
Stjörnutorgi Kringlunnar á þriðju hæð þar sem boðið er upp á sameiginlegt svæði til að setjast niður og borða. Hægt er að finna staði
sem bjóða upp á veitingar í nánast öllum hornum verslunarmiðstöðvarinnar.
30%
af öllum buxum
T
ilb
o
ð
g
ild
ir
fr
am
á
s
un
nu
d
ag