Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 4
8. september 2012 LAUGARDAGUR4
GENGIÐ 07.09.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,5843
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,76 123,34
195,60 196,56
155,66 156,54
20,887 21,009
21,077 21,201
18,304 18,412
1,5535 1,5625
187,30 188,42
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Hótaði kynferðisofbeldi
Átján ára piltur hefur verið ákærður
fyrir að hafa ógnað manni með hnífi í
miðbæ Reykjavíkur í lok júní síðastlið-
ins og hótað að stinga hann, og síðar
um kvöldið, þegar hann var kominn
í fangaklefa, hótað lögreglukonu og
allri fjölskyldu hennar kynferðislegu
ofbeldi. Ákæran var þingfest í gær.
DÓMSTÓLAR
STJÓRNSÝSLA Ákvörðun Guðbjarts
Hannessonar velferðarráðherra
um að hækka laun Björns Zoëga,
forstjóra Landspítalans, er í sam-
ræmi við úrskurð kjararáðs. Birni
voru boðin hærri laun gegn auknu
vinnuframlagi við læknisstörf til
að halda honum í starfi en hann
hafði fyrr á þessu ári
allt að því tekið erlendu
starfstilboði.
Fréttablaðið greindi
frá því í gær að vel-
ferðarráðherra hefði í
síðasta mánuði hækkað
mánaðarlaun Björns um
450 þúsund krónur eða
í 2,3 milljónir á mánuði.
Vakti ákvörðunin hörð
viðbrögð talsmanna
opinberra launamanna.
Sagði Elsa B. Friðfinns-
dóttir, formaður Félags
íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, til að mynda
að hjúkrunarfræðing-
um væri misboðið vegna
launahækkunarinnar
sem kæmi í kjölfar mik-
ils niðurskurðar á þjón-
ustu við sjúklinga.
Spurður um þessa gagnrýni
svarar Guðbjartur: „Ástæða þess
að ég fer í þessa aðgerð er til að
spara útgjöld. Við erum þarna að
tala um stjórnanda á stærstu stofn-
un ríkisins og lækni með mjög
góða menntun. Það er mat mitt að
hagsmunir heilbrigðiskerfisins
séu þeir að halda honum í starfi.
Ég skil að miklu fleiri myndu
vilja launahækkanir og breyting-
ar á sínum kjörum en það er bara
annað og sjálfstætt viðfangsefni.“
Guðbjartur bendir á að grunn-
laun Björns séu ákvörðuð af kjara-
ráði en svo hafi hann heimild til
þess að vinna læknisverk sem
greidd séu laun fyrir til viðbótar.
„Björn tilkynnti okkur að hann
væri á leiðinni burt frá okkur.
Þá lögðumst við yfir það hvað við
gætum gert til að halda
honum í starfi. Niður-
staðan varð sú að við
gætum boðið honum
meiri vinnu við læknis-
störf og þar með aukið
heildartekjur hans. Og
hann samþykkti að halda
áfram á þessum forsend-
um,“ segir Guðbjartur.
S t j ó r n F é l a g s
íslenskra lækna sendi
frá sér yfirlýsingu
vegna málsins í gær.
Þar segir að vel mennt-
aðir heilbrigðisstarfs-
menn eigi að fá laun í
samræmi við menntun,
reynslu og álag og að
sporna eigi við brott-
flutningi þeirra í betur
launuð störf erlendis.
Hins vegar eigi það við
um fleiri en einungis forstjóra
Landspítalans.
Guðbjartur segir að ágætur
kjarasamningur hafi verið gerð-
ur við lækna á síðasta ári auk þess
sem reynt hafi verið að bregðast
við flótta lækna frá landinu. „Við
munum reyna að standa vaktina
áfram og halda fólki hér en stærð-
argráðan á því er allt önnur en
þessa einstaka máls sem er ekki
fordæmisgefandi,“ segir Guð-
bjartur. magnusl@frettabladid.is
Launahækkun forstjóra í
takt við úrskurð kjararáðs
Guðbjartur Hannesson segist hafa haft heimild til þess að hækka laun Björns Zoëga. Hún sé fyrir læknis-
verk sem hann vinni til viðbótar við starf sitt sem forstjóri. Hækkunin dugði til að halda honum í starfi.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, vill sem minnst tjá sig um þá gagn-
rýni sem hefur komið fram á launahækkun hans. „Ég ákveð auðvitað ekki
eigin laun, þau eru ákvörðuð af ráðherra og kjararáði. Ég get einungis lýst
minni aðkomu að þessu máli. Ég var á leið úr landi í nýja vinnu og þurfti
því að segja upp mínu starfi á Landspítalanum. Nokkrum klukkustundum
eftir að ég gerði það var ég beðinn um að endurskoða hug minn og eftir að
hafa hugsað málið og rætt við ráðherra komumst við að samkomulagi um
áframhaldandi samstarf. Það er það eina sem ég hef um þetta að segja.“
Stjórn Læknafélag Íslands sendi frá sér yfirlýsingu vegna launahækkunar
Björns í gær. Í yfirlýsingunni segir að hún skjóti skökku við þegar litið sé til
ástandsins á Landspítalanum og áralangs niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu.
Hins vegar segir í yfirlýsingunni að félagið telji að vel menntaðir heilbrigðis-
starfsmenn eigi að fá laun í samræmi við menntun, reynslu og álag í starfi.
Þá eigi að sporna við brottflutningi þeirra í betur launuð störf í öðrum lönd-
um en það eigi við um fleiri en einungis forstjóra Landspítalans. Spurður út
í þessa yfirlýsingu svarar Björn: „Auðvitað skal stefnt að því að laun íslenskra
lækna og annarra heilbrigðisstétta séu sem samkeppnishæfust. Það er hins
vegar ekki forstjórans að semja um kaup og kjör við starfsmenn. Auðvitað
vill maður halda starfsfólki spítalans og við munum reyna það áfram eins og
við getum innan þess ramma sem við vinnum eftir.“
Ákvarða ekki eigin laun
FORSTJÓRINN Björn Zoëga segist ekki ákveða eigin laun. Hann vill sem minnst tjá
sig um þá gagnrýni sem fram hefur komið á launahækkun hans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÍNA, AP Nokkrir sterkir jarð-
skjálftar riðu yfir afskekkt fjalla-
hérað í suðvestanverðu Kína í
gær. Fyrsti skjálftinn mældist 5,6
stig og honum fylgdu tugir eftir-
skjálfta.
Fjöldi húsa hrundi til grunna
og skriðuföll ollu einnig miklu
tjóni. Tugir manna létu lífið. Víða
lokuðust vegir.
Harðast úti varð Yiliang-sýsla,
þar sem flest dauðsföllin urðu.
Meira en 700 manns urðu þar
fyrir meiðslum. - gb
Jarðskjálftar í Kína:
Hús hrundu og
vegir lokuðust
JARÐHRUN Fólk tók til fótanna þegar
hrynja tók úr hlíðinni. NORDICPHOTOS/AFP
Þríhnúkastígar samþykktir
Tillaga Þríhnúka ehf. um afmörkun
gönguleiða við Þríhnúka hefur verið
samþykkt í bæjarráði Kópavogs.
SKIPULAGSMÁL
ALÞINGI Tillaga um rannsókn á
einkavæðingu Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins, Lands-
banka Íslands og Búnaðarbanka
Íslands verður lögð fram að nýju
á Alþingi á þriðjudag. Hún kom
fram á síðasta þingi en fékk ekki
afgreiðslu.
Skúli Helgason er fyrsti flutn-
ingsmaður tillögunnar. Hann
segir að tillagan hafi verið
afgreidd út úr stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd í vor og verið full-
unnin. Nefndin þurfi því ekki að
leggja mikla vinnu í hana núna
og hægt sé að afgreiða hana
á skömmum
tíma.
„Ég tel að
samþykkt þess-
arar tillögu sé
eitt af brýnustu
uppgjörsmálum
hrunsins og
nauðsynlegur
liður í því að
læra af biturri
reynslu síðustu ára.“
Meðflutningsmenn ti l lög-
unnar koma úr öllum flokkum,
nema Sjálfstæðis- og Framsókn-
arflokki. Skúli segir að leitað
hafi verið til fulltrúa þeirra á
síðasta þingi, en þeir ekki vilj-
að vera með. Þá er Guðmundur
Steingrímsson, þingmaður utan
flokka, á meðal flutningsmanna.
Skúli telur að nefndinni dugi sex
mánuðir til rannsóknarinnar.
„Það er til samræmis við rann-
sóknina á sparisjóðunum, sem er
í gangi núna. Ég held að þetta sé
raunhæf tímaáætlun. Það hefur
ýmislegt verið skrifað um einka-
væðinguna og það er hægt að
nýta sér það. Þörfin á frumrann-
sóknum er kannski ekki eins
mikil.“ - kóp
Allir flokkar nema Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur standa að tillögu:
Rannsaka einkavæðingu banka
SKÚLI HELGASON
BANDARÍKIN Barack Obama
Bandaríkjaforseti lofaði banda-
rísku þjóðinni að skapa milljón ný
störf í iðnaðarfyrirtækjum fram
til ársins 2016 næði hann kjöri að
nýju í kosningunum í nóvember.
Þetta kom fram í útnefningar-
ræðu Obama á flokksþingi Demó-
krataflokksins í Norður-Karólínu
í fyrrinótt. Obama sagði að þessi
störf í iðnaðarfyrirtækjum, yrðu
sköpuð með aðstoð frá hinu opin-
bera. Jafnframt lofaði hann að
skapa 600 þúsund ný störf í nátt-
úrugasvinnslunni í landinu.
Obama ávarpaði demókrata:
Lofaði milljón
nýjum störfum
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
30°
20°
19°
27°
25°
19°
19°
27°
27°
28°
28°
31°
17°
29°
20°
14°Á MORGUN
8-16 m/s NV-til,
annars hægari.
MÁNUDAGUR
Norðan hvassviðri
1
5
7 6
7
7
9
10
9
9
7
8
8
6 3
8
2
2
3
6
5
6
6
6
5
8
9
3
6
6
2
4
HVESSIR á morgun
og vissara að festa
allt lauslegt. Úr-
komusamt næstu
daga einkum N-til.
Vaxandi NA- átt á
morgun og 13-20
m/s annað kvöld,
hvassast NV-til.
Norðan 15-23 m/s
á mánudag. Hiti
yfi rleitt 4-12 stig,
dálítið kaldara á
mánudag.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
Björn tilkynnti
okkur að hann
væri á leiðinni
burt frá okkur.
Þá lögðumst
við yfir það
hvað við gæt-
um gert til að
halda honum
í starfi.
GUÐBJARTUR
HANNESSON
VELFERÐARRÁÐ-
HERRA