Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 46
FÓLK|HELGIN Wushu er yfirheiti kínverskra bar-dagalista og hefur íþróttafélagið Drekinn boðið upp á námskeið, kennslu og aðstöðu til iðkunar hinna ýmsu greina þeirra. Dong Qing Guan, formaður Drekans, gerði nýverið samning við virtan háskóla í Kína um að fá kennara þaðan til kennslu á Íslandi, en einnig geta nemendur Drekans farið til Kína og stundað nám við skólann. „Kennarinn heitir Xue Jun. Námið samanstendur af fjögurra ára BA-námi og svo þriggja ára MA-námi. Það er því mikill akkur fyrir félagið að fá hann hingað.“ Xuejun mun dvelja hér í eitt ár og kenna wushu, kung fu og tai chí hjá Drekanum. „Þetta er gríðarlega gott tækifæri fyrir Íslendinga sem geta nú fengið kennslu í þessum greinum á heimsmælikvarða. Xue Jun er virkilega ánægður með að vera kominn og hlakkar til að kynna Íslendinga fyrir wushu og um leið kínverskri menn- ingu, en wushu er stór stór hluti af henni,“ segir Qing ánægð. TÍMAR FYRIR ALLA ALDURSHÓPA Íþróttafélagið býður upp á tíma í kung fu, taí chí og wushu fyrir alla aldurshópa. „Fólk æfir hér bæði sér til almennrar heilsubótar en einnig til að keppa. Enda hafa iðkendur wushu hjá Drekanum keppt á alþjóðlegum mótum.“ Í haust og vetur mun Drekinn bjóða upp á þá nýjung að vera með fjölskyldutíma á laugardögum klukkan ellefu. „Í tímunum blöndum við saman ýmsum æfingum sem henta öllum aldurshópum. Einnig erum við með kung fu fyrir krakka alveg niður í fjögurra ára og unglingatíma.“ Hægt er að skrá sig á námskeið hjá Drekanum, eða líta við á æfingu og kynna sér starfsemina. „Við tökum vel á móti þeim sem vilja kynna sér starfsemina.“ FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir | Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Lagt verður af stað frá Sólfarinu við Sæbraut kl. 11.00 og hjólað meðfram sjónum að Gróttu, þaðan með Ægis- síðunni að Nauthólsvík, um Fossvogsdalinn, síðan Laugardalinn og endað við Sólfarið. Þátttakendur mæti á hjóli og er gert ráð fyrir að ferðin taki um tvær klukkustundir. Kristín leiðir ferðina sem er öllum opin með aðstoð Þjóðbrókar, félags þjóðfræðinema, þar sem þjóðsögur, draugasögur, hjátrú sjómanna, vikivaki og óvæntar uppákomur verða á vegi hjólreiðamanna. Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um gönguferðir sem efnt var til í tilefni aldarafmælis skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferða- félagsins og þekking kennara og vísinda- manna Háskólans blandast saman í áhuga- verðum gönguferðum og nú hjólaferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Ferðirnar verða fimm talsins og tekur hver um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis. Markmiðið með samstarfinu er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi Háskólans og Ferðafélagsins. DRAUGASÖGUR Í HJÓLAFERÐ Kristín Einarsdóttir, aðjunkt í þjóðfræði við félags- og mannvísindadeild HÍ, leiðir hjólaferð um höfuðborgarsvæðið í dag. FRÓÐLEIKUR Kristín þjóðfræðingur segir skemmtilegar sögur af ýmsu sem fyrir augum ber í hjólaferð um borgina. Við pottana standa mæðgurnar Jaroon og Sukanya Nuamnui, rómaðir sælkerakokk-ar á austurlenska vísu. „Naree-Thai er gælunafn yfir fallegar, taí- lenskar konur,“ útskýrir Jaroon um merkingu nafngiftar veitingastaðarins sem var opnað í ársbyrjun í brekkunni ofan við Laugaveg, á horni Frakkastígs og Grettisgötu. Jaroon kemur frá héraðinu Sukhothai sem er norðarlega í Taílandi. Hún hefur verið búsett hérlendis síðan á níunda áratugnum og er gift Sigurði B. Guðmundssyni. Þau hjón hafa mikla reynslu af austurlenskri matargerð og stofnuðu meðal annars taílenska veitingastaðinn Menam við góðan orðstír á Selfossi. „Matreiðslan á Naree-Thai er ættuð frá heimahéraði mínu í Taílandi þar sem ríkuleg áhersla er á ferskt grænmeti. Á matseðlinum eru þekktir austurlenskir kjöt- og fiskréttir en í ljósi vaxandi eftirspurnar eftir aðalréttum úr grænmeti og tófú höfum við útbúið sér- stakan matseðil með hefðbundnum taílenskum sælkeraréttum þar sem grænmeti og tófú eru uppistaðan í stað kjöts. Það hefur slegið í gegn og margir ánægðir með að geta breytt eftir- lætiskarríréttum sínum í grænmetisrétti,“ segir Jaroon. „Hingað er notalegt að koma og staðurinn hefur yfir sér mikinn sjarma og rólegt og ljúft yfirbragð. Því kjósa gestir að setjast hér niður og hafa það huggulegt yfir taílenskum krásum og skemmtilegu spjalli,“ segir Jaroon. Á Naree-Thai bjóðast einnig freistandi tilboð á völdum réttum úr taílenska eldhúsinu fyrir tvo, bæði hefðbundnir réttir og af grænmetis- matseðli. „Viðtökurnar hafa verið yndislegar og orð- sporið farið vaxandi eins og vinsældirnar. Töfrar taílenskrar matargerðar felast í fersk- leika og bragðmiklum mat sem þó skilur fólk ekki eftir logandi í munni. Taílenskur matur endurspeglar taílenska þjóð sem er glaðlynt, elskulegt og kærleiksríkt fólk. Þeir sem hafa komið til Taílands verða ekki samir eftir heim- sóknina og sækja aftur og aftur í matinn góða sem þeir kynntust í landi brossins.” SÆKJA Í BRAGÐIÐ AF TAÍLANDI NAREE-THAI KYNNIR Frá aldargömlu húsi við Frakkastíg berst unaðsleg og lokkandi angan af heimagerðum taílenskum mat, upp- runnum í landi brossins. Þar má njóta alkunnra taílenskra sælkerarétta á hefðbundinn máta og í lostætum grænmetisútgáfum. LISTAKOKKAR Mæðgurnar Jaroon og Sukanya Nuamnui eru kokkar af Guðs náð og elda dýrindis krásir sem gleðja bæði munn og maga. MYND/STEFÁN HOLLT OG GOTT Taílensk matseld einkennist af ferskleika í hráefni og einstakri bragðupplifun. Hægt er að panta þekkta austurlenska rétti með grænmetisfyllingum í stað kjötfyllinga. NAREE-THAI var fyrst opnaður sem kvöldverðarstað- ur en hefur nú mjög sótt í sig veðrið sem hádegisstaður með ódýrum, einföldum og ákaflega bragð- góðum réttum. MEISTARINN Xue Jun kennir hjá Drekanum, Wushu- félagi Reykjavíkur., MYND/GVA MEISTARI FRÁ KÍNA WUSHU-FÉLAG REYKJAVÍKUR KYNNIR Drekinn, Wushu-félag Reykjavíkur, hefur gert samning við kínverska íþróttaháskólann Capital Institute of Physical Education um að fá hingað kennara til kennslu bardagalista. NÁMSKEIÐ Nánari upplýsing- ar um námskeið hjá Drekanum er að finna á www. heilsudrekinn.is og á Facebook.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.