Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 24
8. september 2012 LAUGARDAGUR24 Þ essi pistill birtist á vef- síðunni Spegill.is nú í vikunni. Höfundurinn er nafnlaus en Lísa Björk Ingólfsdóttir, viðskiptafræðingur og pistlahöfundur á Speglinum, segir þetta sanna sögu sem send hafi verið til sín undir nafni. „En það er svo viðkvæmt að fjalla um svona mál að mér datt ekki í hug að birta nafn stúlkunnar sem skrifaði þetta – hennar vegna, það er svo erfitt að fjalla um tiltekin mál undir nafni. Og þess þarf heldur ekki því sú reynsla að búa við heimilisofbeldi markar sömu spor í líf allra sem fyrir því verða,“ segir Lísa Björk. „Síðan ég byrjaði að skrifa fyrir Spegilinn hefur ótrúlegur fjöldi kvenna – já, eingöngu konur – sett sig í samband við mig og sagt mér sögu sína. Þetta eru konur á öllum aldri og með margs konar forsögu en eitt eiga þær allar sameiginlegt; þær hafa allar brotist út úr ofbeld- isfullu sambandi og allar lent í for- sjárdeilu í kjölfarið þar sem réttur barnanna er algjörlega fyrir borð borinn. Í öllum lögum má lesa það að heimilisofbeldi sé ekki boðlegt fyrir börn en þegar á hólminn er komið er ekkert tillit tekið til vel- ferðar barnanna. Barnaverndin svo- kallaða er í raun foreldravernd.“ Forsjármál rekin eins og sakamál Lísa Björk hefur sjálf reynslu af for- ræðisdeilu og segist hafa orðið mjög undrandi á því hvernig þau mál ganga fyrir sig. „Ég hélt að maður væri að fara með málið fyrir dóm til þess að fá úrskurð um það hvað barninu væri fyrir bestu. Án þess að vilja tjá mig um einstaka mál er það greinilega ekki raunin. Þessi mál eru rekin eins og sakamál á milli tveggja einstaklinga, börnin eru algjört aukaatriði. Hvort for- eldri um sig fær sér lögfræðing sem auðvitað er ekki að vinna að hags- munum barnsins heldur að verja sinn umbjóðanda. Forsjármál ættu að snúast um hvað barninu er fyrir bestu, ekki vera barátta tveggja einstaklinga. Það sem ég hef séð í málum sem þessum er að það þýðir ekki einu sinni að leggja fram gögn, eins og læknisvottorð og áverka- skýrslur, því það er hægt að efast um sannleiksgildi þeirra og dæma þau ómerk, þannig að þau komi ekki einu sinni fyrir augu réttarins. Yfir- leitt er konum ráðlagt að tala ekki einu sinni um ofbeldi í forsjármál- um því það sé ekki hægt að sanna það. Ofbeldi getur verið andlegt eða líkamlegt eða hvort tveggja og oft er andlega ofbeldið lítið skárra þar sem það skilur ekki eftir sig sýni- lega áverka. Ekki það að þótt um verulegt líkamlegt ofbeldi sé að ræða er næsta vonlaust að sanna það fyrir rétti. Ofbeldi fer fram innan veggja heimilisins og senni- lega þyrfti fólk að labba inn í rétt- arsal með hníf með fingraförum ofbeldismannsins í brjóstinu til þess að það þætti sannað án nokk- urs vafa. Og sú hugsun að barnið eigi að njóta vafans er víðs fjarri. Maður hefur oft séð í skýrslum að börn reyna að tjá sig en það er ekk- ert hlustað á þau. Fulltrúar Barna- verndar hitta börnin kannski í 40 mínútur mögulega tvisvar á sjö til tólf mánaða tímabili og gefa síðan út þann úrskurð að það sé allt í lagi með viðkomandi barn. Hvernig í ósköpunum er það hægt? Við skul- um ekki gleyma því að meðvirkni er fjölskyldusjúkdómur og þögg- unin sem ríkir í svona málum hefur auðvitað líka áhrif á börnin. Þau eru ekkert að fara að segja ókunn- ugu fólki einhver leyndarmál sem gætu komið pabba eða mömmu í vandræði.“ Eiga börn þá ekki í nein hús að venda ef þau búa við ofbeldi heima hjá sér? „Nei, þau eiga það ekki í raun. Barnavernd á auðvitað að vinna með hagsmuni barnanna að leiðarljósi, en framkvæmdin er allt önnur. Ég hef lesið í skýrslum frá Barnavernd, aftur og aftur, að ekki þyki ástæða til aðgerða þar sem barnið sé ekki talið í bráðri hættu. Hvernig er sú hætta skilgreind? Á barnið þá að vera áfram inni á heimili þar sem það verður vitni að ofbeldi ef lífi þess sjálfs er ekki beinlínis ógnað? Eða búa við van- rækslu og skeytingarleysi? Það er skýrt tekið fram bæði í barnavernd- arlögum og barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna að foreldrum beri að vernda börn sín, en hvernig á maður að gera það þegar kerfið vinn- ur gegn því? Talsmaður barna er samkvæmt lögum forsjárforeldri/ foreldrar sem kerfið vinnur gegn, enginn annar og ég sé ekki að það sé neitt að gerast í þeim málum. Ný barnalög eru í pípunum á Alþingi, en meðan framkvæmd laga er með þessum hætti skiptir óskaplega litlu þótt orðunum í þeim sé breytt.“ Barnavernd er í raun foreldravernd Umræðan um áhrif heimilisofbeldis á börn hefur verið áberandi í vikunni og ein af þeim sem hafa lagt orð í belg er Lísa Björk Ingólfsdóttir pistlahöfundur á Speglinum. Hún sagði Friðriku Benónýsdóttur frá upplifun sinni af aðgerðum Barnaverndar í slíkum málum og sögunum sem þolendur heimilisofbeldis hafa sent henni síðan hún byrjaði að skrifa pistlana. MIKIL VIÐBÖGÐ Lísa Björk Ingólfsdóttir, viðskiptafræðingur og pistlahöfundur á Speglinum, hefur fengið ótölulegan fjölda pósta og upphringinga frá þolendum heimilisofbeldis, bæði börnum og konum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Lögregla er kölluð út þrisvar til fjórum sinnum hvern dag ársins vegna átaka á heimilum landsins. Í 200 til 300 tilvikum á hverju ári hefur verið beitt ofbeldi, misalvarlegu. Þetta sýna gögn sem unnin voru af embætti Ríkislögreglustjóra fyrir Fréttablaðið fyrir rúmlega fimm ára tímabil frá 2007 til júní 2012. Fjöldi tilvika heimilisófriðar samkvæmt mála- skrárkerfi lögreglunnar á þessu tímabili voru 7.071 alls. Ofbeldi var beitt í 1.559 tilvikum. Tölurnar sýna að ár hvert eru útköllin tólf til fjórtán hundruð en hefur fækkað lítillega á milli ára allt tímabilið. Athygli vekur hins vegar að alvarlegum tilvikum fjölgar hlutfallslega; árið 2007 var ofbeldi beitt í 272 málum en þá voru 1.116 mál skráð sem heimilisófriður. Árið 2011 voru 310 ofbeldismál en 895 þar sem ekki hafði verið beitt ofbeldi. - shá / Fréttablaðið 27. ágúst Tólf til fjórtán hundruð útköll á ári Ofbeldi beitt í 2-300 tilvikum ■ HEIMILISOFBELDI Í TÖLUM Þöggunin sem ríkir í svona málum hefur auðvit- að líka áhrif á börnin. Þegar að ég var um 12. ára gömul þá fór ég á fund hjá Barnavernd. Mamma og systir mín komu með mér. Ég vildi ekki vera hjá pabba mínum og átti að reyna að koma á umgengi með þessum fundi. Ég og systir mín grétum bara og vildum ekki fara, ég var hrædd við hann og er enn. Ég hafði oft séð hann lemja mömmu mína, og nokkrum sinnum hafði löggan líka komið heim. Hann var líka vondur við mig og systkini mín og það var alveg sama hverjum ég sagði það, það vildi engin hlusta á mig. Á fundinum reyndu konurnar að tala mig til og spurðu mig oft: „Af hverju viltu ekki vera hjá honum?“ Ég sat á stól við hliðina á mömmu minni og grúfði mig niður því að ég vildi ekki horfa á hann. Hann reyndi líka að tala við mig en ég vildi ekki tala við hann, ég bara grét og sagðist vilja fara heim. Þá greip hann í axlirnar á mér og skellti mér upp þannig að bakið á mér skelltist í stólbakið, svo sagði hann: „Þú átt að svara mér þegar að ég tala við þig.“ Ég fór að gráta enn meira því að ég meiddi mig svo. Konurnar sögðu pabba að hætta, þetta gengi greinilega ekkert. Litla systir mín var farin að hágráta og vildum við bara fara. Ein konan sagði við okkur að þetta gengi bara ekki núna, það yrði að reyna aftur seinna. Hún vildi fylgja okkur fram að lyftunni því hún var svo smeyk við það að hann kæmi á eftir okkur. Þegar að ég var komin í bílinn byrjaði ég bara öll að skjálfa og titra og mér var rosalega illt í bakinu. Mamma fór með mig beint til læknis og kom þá í ljós að ég hafði tognað í bakinu eftir skellinn frá honum og var öll blá og marin. Mamma lét starfsmenn BVN strax vita af þessu. Konurnar áttu að skrifa skýrslu um það hvernig hefði gengið á fundinum og vissi ég nú, að loksins myndi einhver trúa mér hvernig hann væri, því jú þær sáu alveg hvað hann gerði og hvernig hann lét. Þær vildu ekki trúa mér þegar að ég sagði þeim frá því að þegar að hann dró mig eftir mottunni í forstofunni heima þannig að ég brenndist svo illa á hnjánum að ég gat varla gengið, eða þegar að hann sparkaði svo fast í mömmu mína að hún beinbrotnaði, nú eða þegar að hann hrinti mömmu minni þegar að hún hélt á litlu systur minni og hún datt illa og munaði litlu að litla systir mín myndi slasast mikið. En núna hlytu þær að gera eitthvað. En nei, þær lugu!!! Þær sögðu að pabbi hefði strokið á lærið á mér og rétt klappað á bakið á mér. Þær könnuðust bara ekkert við neitt annað. Þetta voru konurnar sem að áttu að hjálpa mér, þetta voru konurnar sem að vinna hjá Barnavernd!“ Börn leita í sama mynstrið Snúum okkur aftur að pistlinum þínum og sögu ungu stúlkunnar. Þú segir að þetta sé almenn reynsla barna af Barnavernd? „Því miður virðist svo vera. Ég get sagt þér frá öðru máli sem ég skrifaði líka um á Spegill.is. Það varð reyndar blaðamál árið 2009. Þar voru þrjú börn sem vildu ekki að faðir þeirra fengi að nýta umgengnisréttinn við þau, vildu ekki fara til hans yfir- höfuð. Tvær elstu dæturnar voru orðnar það gamlar að þær fengu að ráða því sjálfar hvort þær færu, en Barnavernd úrskurðaði að yngsta barnið, sjö ára stúlka, ætti að fara til föður síns samkvæmt úrskurðuð- um umgengnisrétti og hún var tekin með valdi trekk í trekk og flutt til föður síns þó svo að hún vildi ekki fara. Samkvæmt þessari frétt hafði faðirinn viðurkennt fyrir rétti að hafa beitt móðurina ofbeldi. Rétt- ur hans til að umgangast barn sem ekki vildi umgangast hann var þó tekinn fram yfir greinilega hags- muni barnsins. Það var kallað að vernda hagsmuni barnsins að rífa það í burtu með lögregluvaldi. Lífs- reynsla sem leggst ofan á upplif- unina af ofbeldinu á heimilinu og barnið gleymir aldrei. Í dag, mörg- um árum síðar, þurfa þessi börn að vera á kvíðastillandi lyfjum. Þessi sár gróa aldrei og það sem kannski er óhuggulegast er að samkvæmt sálfræðingum þá er líklegra en ekki að börn sem upplifa heimilisofbeldi leiti í sams konar sambönd þegar þau fullorðnast. Fari í mynstrið sem þau þekkja. Það er eitt af því sem sýnir hvað það er hættulegt að láta þetta viðgangast. Það eru ekki allar konur svo sterkar að þær þori að brjótast út úr mynstrinu og berj- ast fyrir börnin sín. Og þær sem þora það verða oftar en ekki fyrir aðkasti frá dómstól götunnar um leið og kerfið brýtur þær niður. Þær eru auðvitað niðurbrotnar á sál og líkama eftir áralangt ofbeldi og það er notað gegn þeim. Þrátt fyrir að reyna sitt besta til að vernda börnin í kjölfarið er tekinn af þeim réttur- inn til þess og þeim sagt að gera það sem börnunum er fyrir bestu fyrir rétti, eða í gegnum barnaverndar- nefnd og sýslumann. Og hvað sem öllu fallegu orðalagi í lögum og stefnuyfirlýsingum líður þá er með því auðvitað brotið stórlega á rétti barnanna.“ UM BARNAVERND OG PABBA MINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.