Fréttablaðið - 08.09.2012, Síða 6
8. september 2012 LAUGARDAGUR6
SKIPULAGSMÁL „Mér finnst þetta
vera mjög brattar og óbilgjarn-
ar yfirlýsingar. Ég hélt að við
værum að vinna þessi mál í sam-
komulagi,“ segir Ögmundur Jón-
asson innanríkisráðherra vegna
orða Hjálmars Sveinssonar, vara-
formanns skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar, í Fréttablaðinu í
gær.
Hjálmar sagði þar að ein braut
við Reykjavíkurflugvöll yrði lögð
af árið 2015 og flugvöllurinn
allur færi í áföngum. Það mundi
létta á umferðarþunga vegna nýs
Landspítala.
Ögmundur segir lokun norður/
suðurbrautar vera alvarleg tíð-
indi. „Það væri nokkuð sem við
gætum ekki fellt okkur við, ein-
faldlega vegna þess að þar með
væri dregið stórlega úr getu flug-
vallarins og öryggis hans og nýt-
ingu. Hvernig sem á málið væri
litið væri það mjög alvarlegt mál
sem kemur borginni ekki einni
við. Þessar breytingar verða ekki
gerðar án samráðs við ríkið, sem
á drjúgan hluta af þessu landi.“
Ögmundur bendir á eldvirkni
á Íslandi og segir að almanna-
varnaþáttur flugvallarins hafi
gleymst. Gríðarlegt öryggisat-
riði sé að hafa flugvöll í borginni,
komi til náttúruhamfara.
Þá segir hann byggð í Vatns-
mýri ekki draga úr umferð í mið-
borginni heldur auka við hana.
„Varla yrðu allir sem tækju sér
þar bólfestu á hjólum eða gang-
andi. Það er bara ekki veruleik-
inn.“ - kóp
Tvö erfiðleikastig
Góð slökun- Rétt öndun –Aukin liðleiki –Meiri styrkur
Þyngri hópur kl. 18.20 þriðjudaga og fimmtudaga
Léttari hópur kl. 18.20 miðvikud.og laugard.kl. 11.00
Kennt í Sjúkrarþjálfaranum Hafnarfirði
Sími 6910381 • Kristin Björg
Komdu í yoga
Hentar ungum sem öldnum
NOREGUR Lík norsku stúlkunnar
Sigrid Giskegjerde Schjetne var
með mikla áverka á höfði þegar
það fannst fyrr í vikunni.
Norskir fjölmiðlar fullyrða að
lögreglan telji að ekið hafi verið á
hana kvöldið sem hún hvarf, sem
var seint að kvöldi laugardagsins
4. ágúst, en hún hafi ekki látist af
þeim áverkum heldur verið flutt
eitthvert annað og drepin síðar.
Tveir menn eru enn í haldi
grunaðir um morðið, annar er
37 ára en hinn 64 ára. Talið er
að sá yngri hafi ekið á stúlk-
una, en ekki hefur verið upplýst
hvaða hlut sá eldri gæti hafa átt
að morðinu.
Rannsókn lögreglunnar bein-
ist meðal annars að bifreiðinni,
sem talið er að hafi verið ekið á
stúlkuna.
Yngri maðurinn seldi græna
bifreið af gerðinni Citroen Xantia
nokkrum dögum eftir hvarf
stúlkunnar. Kaupandi bifreiðar-
innar hefur verið í yfirheyrslum
hjá lögreglunni. Ýmsar skemmdir
eru á bifreiðinni sem gætu komið
heim og saman við það að henni
hafi verið ekið á stúlkuna.
- gb
Rannsókn beinist að bifreið, sem seld var stuttu eftir hvarf stúlkunnar:
Varð fyrir bifreið en myrt síðar
SIGRID GISKEGJERDE SCHJETNE Tveir
menn eru enn í haldi grunaðir um
morð. MYND/NORSKA LÖGREGLAN
NOREGUR Fresturinn, sem And-
ers Behring Breivik hafði til að
áfrýja fangelsisdómi, rann út í
gær án þess að hann áfrýjaði.
Þar með er meðferð málsins
fyrir dómi lokið, rúmu ári eftir
að Breivik myrti 77 manns með
hryðjuverkum sínum í Ósló og á
Úteyju.
Geir Lippestad, verjandi
Breiviks, sagðist stoltur af því
hvernig norskt réttarfar tók á
málinu, jafnvel þótt margir utan
Noregs hafi lýst yfir undrun.
- gb
Málflutningi lokið í Noregi:
Breivik ætlar
ekki að áfrýja
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
HJÁLMAR SVEINS-
SON
Innanríkisráðherra segir flugvöll í Reykjavík vera almannavarnamál:
Óbilgjarnar yfirlýsingar hjá borginni
REITURINN Tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu íbúða á 3 til 5 hæðum á suðurhluta reits, en norðurhlutinn er að mestu óbreyttur.
Á suðurhluta er gert ráð fyrir fjölbreyttum gerðum íbúða og bílageymslum á tveimur hæðum í kjallara. MYND/ASK ARKITEKTAR
SKIPULAGSMÁL Búseti hyggur á
byggingu 230 íbúða á reit sem
markast af Einholti, Stórholti,
Þverholti og Háteigsvegi. Deili-
skipulag á svæðinu var fellt
úr gildi og nýtt skipulag, sem
gerir ráð fyrir byggingunum,
var kynnt hagsmunaaðilum á
fimmtudag. Verði skipulagið að
veruleika gætu framkvæmdir
hafist næsta vor.
Byggingarfélag námsmanna
átti reitinn, en til stóð að reisa
allt að 500 íbúðir á svæðinu. Við
gjaldþrot félagsins eignaðist
fasteignafélagið Reginn reitinn.
Hann var boðinn út í fyrrahaust
og síðan gengið að tilboði Búseta
í mars.
Guðrún Ingvarsdóttir, verk-
efnisstjóri þróunarverkefna hjá
Búseta, segir félagið hafa fundað
með fulltrúum íbúasamtaka
áður en gengið var til samninga
um kaup á reitnum. Hugmyndir
Búseta hafi fallið í góðan jarðveg
og því hafi orðið af verkefninu.
„Ef allt gengur vel vonumst
við til þess að skipulagið verði
frágengið í lok árs. Þá getum við
hafið framkvæmdir í vor og hægt
verður að flytja inn í fyrstu íbúð-
ir árið 2014.“ Guðrún segir fram-
kvæmdir líklega verða í þremur
áföngum og ekki líði nema ár á
milli áfanganna.
Steinunn Þórhallsdóttir, for-
maður Íbúasamtaka 3. hverf-
is (Hlíðar, Holt og Norðurmýri)
segir ferlið í kringum hugmynd-
ir Byggingarfélags námsmanna
hafa einkennst af miklum yfir-
gangi.
„Þarna er núna djúp og sorgleg
hola í jörðina, sem sprengd var
við mikil mótmæli íbúa í kring
í góðærinu.“ Hún er ánægð með
framgang málsins hjá Búseta,
uppbyggingin lúti allt öðrum lög-
málum, húsin séu færri og lægri.
„Þau hafa verið í samráði við
íbúasamtökin og eru að reyna að
virkja sem flesta í að hafa skoð-
un á þessu áður en þau skila inn
skipulagstillögu.“
Skipulagið var kynnt hags-
munaaðilum á fundi á fimmtudag
og gefst öllum kostur á að koma
athugasemdum sínum á fram-
færi. kolbeinn@frettabladid.is
Reisa 230 íbúðir við
Þverholt og Einholt
Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir 230 íbúðum við Þverholt og Einholt. Bygg-
ingarfélag námsmanna átti reitinn en það fór á hausinn. Framkvæmdir gætu
hafist næsta vor en gert er ráð fyrir uppbyggingu í þremur áföngum.
Líst þér vel á að rukkað verði
inn á Geysissvæðið í Haukadal
til að fjármagna uppbyggingu á
svæðinu?
Já 70%
Nei 30%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er launahækkun forstjóra
Landspítalans réttlætanleg?
Segðu skoðun þína á Visir.is.
KJÖRKASSINN