Fréttablaðið - 08.09.2012, Síða 62
8. september 2012 LAUGARDAGUR14
MATREIÐSLUNEMUM
FISKMARKAÐURINN & GRILLMARKAÐURINN ÓSKA EFTIR
Við á Fisk og Grill erum að leita að verðandi meisturum í
hópinn, einum á hvorn stað. Þú verður að geta unnið vel
með öðrum og vera stundvís. Metnaður er af hinu góða og
við bjóðum skemmtilegt vinnuumhverfi og samkeppnishæf
laun fyrir rétta fólkið.
Endilega sendu mér línu á hrefna@fiskmarkadurinn.is
með umsókn og upplýsingum um þig.
LÆKJARGÖTU 2A | 101 REYKJAVÍK | SÍMI 571 7777AÐALSTRÆTI 12 | 101 REYKJAVÍK | SÍMI 578 8877
Ráð er nýtt fyrirtæki sem annast
ráðgjöf og sölu á skaðatrygg ngum, i
líftryggingum, lífeyristrygg mingu
og annarri fjármálaþjónustu.
Markmið félagsins er að veita
einstaklingum og fyrirtækjum
framúrskarandi þjónustu á sviði
þarfagreiningar og áhættumats
vegna tryggingakaupa ásamt
ráðgjöf um lífeyrismál, bæði hvað
varðar lífeyrissjóði og viðbótar-
tryggingavernd. Ráð er umboðs-
aðili fyrir Tryggingamiðstöðina og
Sparnað.
Ráð ehf. Bíldshöfða 9 110 Reykjavík
Z
E
B
R
A
Úthringjarar óskast
Ráð ehf. óska eftir úthringjurum til að annast fundarbókanir
fyrir ráðgjafa í tryggingum og lífeyrissparnaði. Leitað er að
einstaklingum sem eru sjálfstæðir í vinnubrögðum með góða
samskiptahæfileika og áhuga á sölu.
Óskað er eftir því að umsóknir innihaldi upplýsingar um
starfsferil og stutta lýsingu á viðkomandi umsækjanda.
Mjög góð sölulaun í boði.
Frekari upplýsingar fást í síma 414 6800 og á rad@rad.is.
Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á rad@rad.is eða í pósti til
Ráða ehf., Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík fyrir 20. september
næstkomandi.
www.kopavogur.is
Vatnsendaskóli
Spennandi störf
Vatnsendaskóli auglýsir tvö spennandi störf laus til umsóknar
Vatnsendaskóli er heildstæður grunnskóli með 465 nemendum
og er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn. Góður andi er í
skólanum og starfsumhverfi er gott.
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á vef bæjarins www.
kopavogur.is Guðrún Soffía Jónasdóttir veitir einnig upplýsingar í
síma 570-4330 og á netfanginu gudunj@vatnsendaskóli.is
Laun eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
Karlar .
www.kopavogur.is
Eftirlitsdýralæknir í Norðausturumdæmi
Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni í 100% starf
á umdæmisskrifstofu stofnunarinnar á Akureyri. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
• Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum
• Heilbrigðiseftirlit í stærri matvælafyrirtækjum
• Eftirlitsstörf á sviði dýraheilbrigðis og dýravelferðar
• Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að vera falin
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Dýralæknismenntun
• Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
• Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð tölvu- og tungumálakunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Jónsson, héraðs-
dýralæknir (olafur.jonsson@mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannes-
son (hafsteinn.hannesson@mast.is) í síma 530-4800.
Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum
upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64,
800 Selfoss, merktum „Eftirlitsdýralæknir“ eða á
starf@mast.is. Umsóknarfrestur er til og með 12. september
2012. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar um stofnunina má
nálgast á www.mast.is.
Auglýsir eftir matreiðslumanni,
matráði eða starfskrafti til
starfa í mötuneyti Leikskóla
Seltjarnarness
Óskað er eftir að ráða matreiðslumann, matráð eða
starfskraft vönum matreiðslu fyrir börn á leikskóla-
aldri í mötuneyti Leikskóla Seltjarnarness.
Hæfniskröfur:
Viðkomandi þarf að vera heilsuhraustur, ábyrgur,
sjálfstæður, hagkvæmur, umburðarlyndur og
íslenskumælandi.
Laun skv. kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga
við starfsmannafélag Seltjarnarness.
Umsóknarfrestur er til 10. september 2012
Leikskóli Seltjarnarness er sameinuð fag- og
rekstrareining með um 180 börnum. Leikskólinn
starfar á tveimur starfstöðvum sem standa á sömu
lóð við Suðurströnd.
Nánari upplýsingar fást hjá Jóhannesi Má Gunnars-
syni, yfirmatreiðslumanni skólaeldhúsa í síma
5959200 eða með tölvupósti á netfangið
johannes@grunnskoli.is