Fréttablaðið - 08.09.2012, Page 78
KYNNING − AUGLÝSINGKringlan LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 20128
Um helgina opnar ný verslun Ice in a bucket í Kringlunni. Eva Pálsdóttir markaðsstjóri segir verslunina njóta
sívaxandi vinsælda. „Við erum með góða
vöru á hagstæðu verði og fólk sækir meira í
skynsamlegri kaup en áður. Við finnum fyrir
aukinni eftirspurn og viljum koma til móts
við neytendur í leit að góðum kaupum með
því að opna nýja verslun.”
Hagstætt verð
Vörur Ice in a bucket eru á mjög hagstæðu
verði. Algengt verð er til dæmis eyrnalokkar
frá 699 kr., maskarar frá 499 kr., hálsmen frá
999 kr., hárskraut frá 399 kr. og margar vörur
eru undir þúsund krónum í búðinni. Í til-
efni opnunarinnar býður verslunin tuttugu
prósenta afslátt af öllum vörum um helgina.
Alíslenskt fyrirtæki
„Margir halda að Ice in a bucket sé erlent
vörumerki en svo er ekki. Það er algjörlega
íslenskt, stofnað af Höllu Rut Bjarnadótt-
ur sem hefur rekið fyrirtækið í tíu ár með
góðum árangri.“ Halla Rut hefur ekki setið
auðum höndum undanfarin ár og rekur
einnig verslanirnar Boys, Mega store, Þrjá
smára og Orginal.
Ekkert nikkel eða blý
Ice in a bucket selur ýmiss konar vörur, þar
á meðal hárskraut, hárlengingar, litalinsur,
undirföt og skartgripi. „Allar vörurnar okkar
eru keyptar frá Los Angeles. Þar eru gerðar
strangar kröfur um nikkel og blýinnihald í
skartgripum og eru allir okkar skartgripir
nikkel- og blýfríir. Þeir sem eru með ofnæmi
fyrir þessum efnum ættu því að geta verslað
óhræddir hjá okkur.“
Ice in a bucket aftur í Kringlunni
Ice in a bucket rekur fyrir tvær verslanir; eina á Akureyri og aðra í Smáralind. Tíu ár eru síðan fyrsta verslunin var opnuð. Ný og
glæsileg verslun verður opnuð í Kringlunni á 25 ára afmæli hennar. Af því tilefni verður 20% afsláttur af öllum vörum um helgina.
Allar vörur Ice in a bucket eru á mjög hagstæðu verði. Auk þess verður tuttugu prósenta afsláttur af öllum vörum nýju verslunarinnar í Kringlunni um helgina. MYND/VALLI
Hárlengingar
Margir eyða þúsundum króna í hárlengingar.
Hjá Ice in a bucket er hægt að fá slíkar á góðu
verði. „Það hefur verið mikil eftirspurn eftir
hárlengingum og fáir sem bjóða þær aðrir en
hárgreiðslustofur. Við erum bæði með gervi-
og alvöru hár á góðu verði.“ Hárlengingarnar
eru fléttaðar í hárið og því auðveldar í ísetn-
ingu.
Vörur fyrir öll tilefni
Vörur fyrir alla aldurshópa er að finna í Ice in
a bucket og ættu flestir því að finna eitthvað
við sitt hæfi. „Hárskraut, hárlitir, snyrtivörur
og fleira, við erum með það. Einnig hefur
verið mikið að gera hjá okkur fyrir árshátíð-
ir þar sem eitthvert þema hefur verið í gangi;
diskó, „eighties“ eða eitthvað annað. Við
erum með alla flóruna; diskódótið, „eight-
ies“ dótið, hárskraut, glimmer, litalinsur,
neonliti í hárið og margt fleira.“