Fréttablaðið - 08.09.2012, Side 107
LAUGARDAGUR 8. september 2012 63
„Mér fannst þetta ganga mjög vel. Þetta var
ótrúlega skemmtilegt og allt öðruvísi en að
spila á skemmtistað. Þetta var eins og sprett-
hlaup en venjuleg kvöld eru meira eins og
maraþonhlaup,“ segir plötusnúðurinn Áskell
Harðarson sem sigraði í plötusnúðasamkeppni
sem haldin var um helgina. Áskell tryggði
sér þar með þátttökurétt í Movida Corona-
keppninni sem fram fer í Stokkhólmi þann 17.
nóvember.
Áskell kemur fram undir nafninu Housekell
og hefur verið að koma fram frá árinu 2009.
Hann stundar nám í tónsmíðum og upptöku-
stjórnun við Listaháskóla Íslands auk þess
sem hann rekur útgáfufyrirtækið Colour Me
Records og hefur því brennandi áhuga á öllu
því sem viðkemur tónlist.
Hann segir dómarana í keppninni hafa dæmt
keppendur út frá lagavali þeirra, skiptingum,
uppbyggingu og framkomu. Alls kepptu fimm
plötusnúðar um þátttökuréttinn og segir Áskell
að keppnin hafi farið bróðurlega fram.
„Það er svolítill rígur á milli plötusnúða
hér heima en það var ekkert um svoleiðis um
helgina. Ég er hrifnari af því þegar fólk dreifir
ást en hatri.“
Movida Corona-keppnin er nokkuð stór í
sniðum og alls keppa 22 plötusnúðar frá jafn
mörgum löndum um fyrstu verðlaun.
„Ég held að þetta sé mjög gott tækifæri fyrir
plötusnúða. Sigurvegarinn fær plötusamning
við þekkt útgáfufyrirtæki og tækifæri til að
koma fram úti í heimi. Ég var að horfa á kynn-
ingarmyndband fyrir keppnina áðan og þetta
lítur allt mjög vel út. Þá fékk ég smá fiðring í
magann.“ - sm
Keppir til sigurs í Stokkhólmi
BAR SIGUR ÚR BÝTUM Áskell Harðarson sigraði
plötusnúðakeppni sem fram fór um helgina. Hann
tryggði sér þátttökurétt í Movida Corona-keppninni í
nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bruce Willis er í viðræðum um
að leika fulltrúa bandarísku
leyniþjónustunnar í spennutryll-
inum American Assassin. Myndin
fjallar um háskólanema sem er í
herferð gegn hryðjuverkamönn-
um.
American Assassin er byggð á
skáldsögu Vince Flynn. Myndin
er byggð á elleftu bók Flynn um
Mitch Rapp sem fær vinnu hjá
leyniþjónustunni eftir að kær-
astan hans lætur lífið í hryðju-
verkaárás. Hjá CIA hyggur hann
á hefndir. Willis, sem er 57 ára,
mun leika starfsmann leyniþjón-
ustunnar sem verður nokkurs
konar lærifaðir Rapp.
Hlutverk í
spennutrylli
BRUCE WILLIS Leikarinn leikur að öllum
líkindum í American Assassin.
Gamanleikararnir Amy Poehler
og Will Arnett eru skilin eftir níu
ára hjónaband. Us Weekly flutti
fyrst fréttir af sambandsslitun-
um.
„Skilnaðurinn er gerður í mikl-
um vinskap,“ sagði talsmaður
Poehler og Arnett við tímaritið.
Poehler er þekktust fyrir leik
sinn í gamanþáttunum Saturday
Night Live en Arnett sló í gegn
sem Gob í Arrested Development.
Parið á synina Archie og Abel
sem eru þriggja og tveggja ára
gamlir.
Parið hefur oft unnið saman og
kom meðal annars fram saman í
fjórum þáttum af Arrested Deve-
lopment, í kvikmyndunum Blades
of Glory, Horton Hears a Who!,
On Broadway, Spring Breakdown
og Monsters vs. Aliens.
Skilin eftir
níu ár
Vanessa Hudgens óskaði eftir því
við framleiðendur kvikmyndar-
innar The Frozen Ground að þeir
héldu mótleikara hennar, Nicolas
Cage, frá tökustað á meðan hún
var við tökur.
„Hann var alltaf að horfa á
hana og mætti á tökustað á frí-
dögum sínum til þess að fylgjast
með henni að starfi. Vanessa gafst
loks upp og bað framleiðendur
myndarinnar um að taka til sinna
ráða og halda honum frá tökustað
svo hún gæti unnið áhyggjulaus,“
hafði Star Magazine eftir innan-
búðarmanni. Samkvæmt frétt
blaðsins er Cage þekktur fyrir
að haga sér ósæmilega gagnvart
mótleikkonum sínum.
Hudgens leikur fatafellu í
myndinni sem byggð er á sann-
sögulegum atburðum.
Leið illa með
Nicolas Cage
SKILIN Amy Poehler og Will Arnett eru
skilin eftir níu ára hjónaband.
NORDICPHOTOS/GETTY
ALLT AÐ 80%
AFSLÁTTUR
LAGERSALA
OPIÐ:
LAU 8.SEPT 11-17 / SUN 9.SEPT 13-17 / MÁN 10.SEPT 11-18 / ÞRI 11.SEPT 11-18
MIÐ 12.SEPT 11-18 / FIM 13.SEPT 11-18 / FÖS 14.SEPT 11-18
www.birna.net
NÓATÚNI 17