Fréttablaðið - 08.09.2012, Blaðsíða 112
8. september 2012 LAUGARDAGUR68
sport@frettabladid.is
HELGI SVEINSSON varð í fimmta sæti í spjótkasti karla í fötlunarflokki F42 á Ólympíumóti fatlaðra í
gær. Hann bætti eigið Íslandsmet um rúman meter þegar hann kastaði spjótinu 47,61 m. Þar með er þátttöku
Íslendinga á Ólympíumótinu í London lokið.
1-0 KárI Árnason (21.), 2-0 Alfreð Finn-
bogason (81.).
Skot (á mark): 7-11 (4-5)
Varin skot: Hannes 4 - Espen 1
ÍSLAND (4-3-3):
Hannes Þór Halldórsson 9* Maður leiksins
Grétar Rafn Steinsson 6
Ragnar Sigurðsson 7
Kári Árnason 8
(50., Sölvi Geir Ottesen 8)
Bjarni Ólafur Eiríksson 6
Rúrik Gíslason 7
(72., Alfreð Finnbogason -)
Aron Einar Gunnarsson 7
Helgi Valur Daníelsson 7
Emil Hallfreðsson 7
(90., Eggert Gunnþór Jónsson -)
Gylfi Þór Sigurðsson 8
Birkir Bjarnason 7
Laugardalsv., áhorf.: 8.451 Anthony Gautier (5)
2-0
Undankeppni HM 2014
A-RIÐILL
Króatía - Makedónía 1-0
Nikica Jelavic.
Wales - Belgía 0-2
- Vincent Kompany, Jan Vertonghen.
B-RIÐILL
Malta - Armenía 0-1
Búlgaría - Ítalía 2-2
Stanislav Manolev, Georgi Milanov - Pablo Daniel
Osvaldo 2.
C-RIÐILL
Kasakstan - Írland 1-2
Þýskaland - Færeyjar 3-0
Mesut Özil 2, Mario Götze.
D-RIÐILL
Eistland - Rúmenía 0-2
Andorra - Ungverjaland 0-5
Holland - Tyrkland 2-0
Robin van Persie, Luciano Narsingh.
E-RIÐILL
Albanía - Kýpur 3-1
Slóvenía - Sviss 0-2
Granit Xhaka, Gokhan Inler.
Ísland - Noregur 2-0
F-RIÐILL
Rússland - Norður-Írland 2-0
Aserbaídsjan - Ísrael 1-1
Lúxemborg - Portúgal 1-2
Daniel Alves - Cristiano Ronaldo, Helder Postiga.
G-RIÐILL
Liechtenstein - Bosnía 1-8
Litháen - Slóvakía 1-1
Lettland - Grikkland 1-2
H-RIÐILL
Svartfjallaland - Pólland 2-2
Moldóva - England 0-5
Frank Lampard 2 (eitt víti), Jermain Defoe, James
Milner, Leighton Baines.
I-RIÐILL
Georgía - Hvíta-Rússland 1-0
Finnland - Frakkland 0-1
ÚRSLIT
TAKTU ÞÁTT OG SKRÁÐU ÞIG Á HLAUP.IS
VIÐ ERUM 10ÁRA OG Í TILEFNI AF ÞVÍ ÆTLUM VIÐ AÐ BLÁSA TIL AFMÆLISHLAUPS
MIÐVIKUDAGINN 12. SEPTEMBER. Lagt verður af stað frá Lónsbraut
kl. 19:00. Hlaupið er 7 kílómetrar.
AFMÆLISHLAUP ATLANTSOLÍU
Fjöldi útdráttarverðlauna í boði, t.d. eldsneytisúttektir og gjafakörfur frá Nóa Síríus.
FÓTBOLTI Það er gríðarlega mikil-
vægt að byrja á sigri enda vorum
við að mæta einu af betri liðum
riðilsins, fyrirfram að minnsta
kosti,“ sagði miðvörðurinn Kári
Árnason sem kom Íslandi yfir um
miðjan fyrri hálfleik.
„Þetta var svolítið súrealískt.
Það er eiginlega lygilegt hvern-
ig ég fór að því að teygja mig í
boltann og vippa boltanum fyrir
hann.“
Kári sagði leikinn hafa spilast
samkvæmt uppskrift landsliðs-
þjálfarans Lars Lagerbäck.
„Þetta er allt miklu jákvæðara
en það hefur verið og nú erum við
loksins komnir með upplegg um
hvernig við eigum að spila,“ sagði
Kári sem fór meiddur af velli
snemma í síðari hálfleik.
Kári telur um helmingslíkur á
að hann nái sér fyrir leikinn gegn
Kýpur á þriðjudag.
„Við megum ekki ofmetnast.
Við erum ennþá litla Ísland þótt
við ætlum okkur stóra hluti. Fæt-
urnir verða að vera á jörðinni og
við verðum að halda áram á sömu
braut.“ - ktd
Kári Árnason átti stórleik í gær og skoraði líka:
Mikilvægt að byrja vel
HEITUR Kári var næstum búinn að skora tvö mörk en hann skýtur hér í stöngina.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið fékk
draumabyrjun í undankeppni HM
2014 þegar liðið vann 2-0 sigur á
Noregi á Laugardalsvelli í gær.
Var þetta fimmti leikur liðanna í
undankeppni stórmóts á fjórum
árum og eftir langa mæðu náðu
Íslendingar loksins að vinna sigur.
Kári Árnason kom Íslandi yfir
á 21. mínútu og varamaðurinn
Alfreð Finnbogason gerði svo
út um leikinn níu mínútum fyrir
leikslok.
Þetta var líka draumabyrjun
landsliðsþjálfarans Lars Lager-
bäck sem stýrði í gær sínum fyrsta
mótsleik með Íslandi. Hann hafði
tekið þá ákvörðun fyrir leik að
skilja framherjann Alfreð eftir á
bekknum og vera með tvo sóknar-
sinnaða miðjumenn í fremstu víg-
línu.
„Það var ekki erfitt að velja liðið
og mér fannst valið ekki áhættu-
samt,“ sagði Lagerbäck eftir leik-
inn. „Umræða okkar þjálfaranna
snerist þó mest um hvort Alfreð
ætti að byrja eða ekki en ég vildi
fá Helga Val inn á miðjuna með
Aroni því Helgi er duglegur og
leggur mikið á sig. Þetta reyndist
mikill baráttuleikur á miðjunni og
þeim Helga og Aroni óx ásmegin
eftir því sem leið á hann. Undir
rest voru þeir eins og tvær ryk-
sugur á miðju vallarins.“
Leikmenn virtust á nálum
fyrstu 20 mínútur leiksins því leik-
ur liðsins leit afar illa út í upphafi.
En mörk breyta leikjum og það var
svo sannarlega tilfellið eftir mark
Kára. Það var allt annað að sjá til
leikmannanna sem börðust vel,
pressuðu á norska liðið og náðu að
setja saman nokkrar góðar sóknir.
„Ætlunin í upphafi leiks var
að hafa þetta einfalt og ýta þeim
aftur. Það gagnstæða gerðist. En
þá kom markið,“ sagði Lagerbäck.
Seinni hálfleikur var í meiru
jafnvægi og þar til Alfreð skoraði
síðara mark Íslands komust Norð-
menn nokkrum sinnum nálægt því
að jafna metin. Joshua King skor-
aði en markið var réttilega dæmt
af vegna rangstöðu.
„Við vorum heppnir í þeirri
stöðu og á þeim tímapunkti er það
eina sem maður hugsar um á hlið-
arlínunni hvort maður geti breytt
einhverju til að hjálpa liðinu.“
Fimm mínútum síðar kom hjálp-
in þegar að Alfreð slökkti allar
vonir Norðmanna með marki eftir
frábæra skyndisókn. Með markinu
sendi hann þjálfaranum skýr skila-
boð en sjálfur segir Lagerbäck að
það sé eðlilegt að menn verði fyrir
vonbrigðum ef þeir eru ekki í byrj-
unarliðinu.
„Ég vona að það séu þeim sem
byrja ekki vonbrigði að sitja á
bekknum. En þeir vita að liðsheild-
in er aðalatriðið og mér fannst sig-
urinn í dag vera sigur liðsheild-
arinnar. Ég get ekki í raun valið
mann leiksins því mér fannst liðið
allt vinna saman að honum.“
Lagerbäck játti því fúslega að
þetta væri fullkomin byrjun með
íslenska landsliðinu. „Við skoruð-
um tvö, fengum ekkert á okkur og
gerðum aðeins örfá mistök. Þetta
var kannski ekki skemmtilegasti
eða besti knattspyrnuleikurinn
en þannig vill það oft verða. Ég er
ánægður maður í dag.“
eirikur@frettabladid.is
Draumabyrjun drengjanna hans Lars
Ísland er komið með þrjú stig í undankeppni HM 2014 eftir góðan 2-0 sigur á Noregi í fyrsta leik keppninn-
ar. Lars Lagerbäck þjálfarinn tók djarfar ákvarðanir fyrir leik sem reyndust ganga upp.
SVALUR Alfreð Finnbogason var yfirveg-
aður er hann skoraði og svalur er hann
fagnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MARKIÐ SEM BRAUT ÍSINN Íslensku strákarnir fagna hér marki Kára Árnasonar sem kom í fyrri hálfleik. Markið kveikti í íslenska
liðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM