Fréttablaðið - 31.10.2012, Page 22
KYNNING − AUGLÝSINGFyrirtækjagjafir MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 20122
Ley n iv i na lei k u r i n n fer þannig fram að nöfn allra starfsmanna í deildinni
eru skrifuð á miða og þeir brotn-
ir vel saman ofan í krukku. Hver
starfsmaður dregur eitt nafn og
er þar með orðinn leynivinur
viðkomandi. Hlutverk leynivin-
arins er að gleðja vin sinn á ein-
hvern hátt á hverjum degi fram
að jólum án þess að vinurinn átti
sig á hver er að verki.
Glaðningurinn þarf ekki að
felast í gjöfum heldur má koma
á óvart með skemmtilegum upp-
ákomum. Síðasta vinnudag fyrir
jól er svo ljóstrað upp um hver
var leynivinur hvers og fagnað á
kaffistofunni.
Glaðningurinn þarf ekki að vera gjöf.
Skemmtilegar uppákomur koma einnig
á óvart. NORDICPHOTOS/GETTY
Glaðningur í leyni
Aðventan er misannasamur tími á vinnustöðum. Álagið getur aukist
margfalt þessar vikur og vinnudagurinn lengst meira en góðu hófi gegnir.
Því ættu starfsmenn að leggjast á eitt við að gera aðventuna notalega.
Leynivinur í vinnunni er stórsniðugur leikur til að brjóta upp strangan dag.
Nokkrar tillögur að glaðningi frá leynivini:
● Mættu snemma og skreyttu skrifborð vinarins svo blikkandi serí-
ur bíði hans þegar hann mætir í vinnuna.
● Taktu að þér verkefni sem vinurinn er með á sinni könnu
og skilaðu því tilbúnu á borðið að morgni.
● Komdu með heitt súkkulaði á brúsa
að heiman og láttu rjúkandi kakó-
bolla með rjóma bíða vinarins eftir
fund.
● Sendu vininum jólakveðju í útvarpinu
og fáðu óskalag með.
● Bakaðu smákökur og feldu þær í
skúffu eða skáp vinarins.
● Semdu við yfirmanninn og fáðu frí
fyrir vininn eftir hádegið.
Kokkarnir veisluþjónusta bjóða upp á níu stærð-ir af gjafakörfum. „Þetta eru sælkerakörfur og við lögum mikið af matvælunum í þeim sjálfir.
Við gerum allar sósurnar og mest allt af meðlætinu.
Svo erum við í samstarfi við ítalskan mann sem býr
hér á landi um að gera allar pylsur fyrir okkur,“ segir
Rúnar Gíslason, yfirmatreiðslumaður hjá Kokkunum.
„Við erum bæði með tilbúnar körfur og svo getur
fólk sérvalið vörur í þær. Meðal þess sem leynist í sæl-
kerakörfunum frá okkur og við gerum sjálfir er villi-
bráðarpaté, cumberlandsósa, rauðlaukssulta, sem
er ný vara hjá okkur í ár, valhnetuhunang og salami
með rósapipar en við erum þeir einu sem notum
þessar salami í körfurnar. Þetta er einungis brot af
því sem við erum að bjóða og þetta eru vörur sem fólk
fær ekki annars staðar.“
Verðið á körfunum frá Kokkunum er á breiðu bili,
frá 4.000 krónum og allt upp í 30.000. „Þegar komið
er upp í stóru körfurnar er þetta orðinn mikill lúxus.
Í þeim er yfirleitt eitthvað vín og mikið af sælkera-
vörum svo sem gæsalifur, andalifur, hamborg-
arhryggur, hangikjöt, fjórir til fimm erlendir
ostar, súkkulaði, parmaskinka, reyktur lax
og blínis. Í þessum körfum er í raun allt úr-
valið frá okkur í mjög vönduðum umbúð-
um,“ segir Rúnar.
Kokkarnir hafa boðið upp á sælkera-
körfur frá árinu 2003 og eru því orðn-
ir nokkuð reynslumiklir í þess-
ari þjónustu. „Þetta hefur verið
mjög vinsælt í gegnum árin
enda sniðug gjöf þar
sem allir geta fund-
ið eitthvað sem
þeim líkar í körf-
unum. Auðvitað
hafa komið sveifl-
ur í þessu eins og
öðru eftir að hrunið varð. Fólk hefur haldið
áfram að kaupa körfurnar en hefur ef til
vill aðeins slakað á lúxusnum enda var
hann orðinn gríðarlegur á tímabili. Í
dag hafa gæðin í raun aukist en verð-
ið er almennt lægra.“
Kokkarnir eru til húsa að Funa-
höfða 7. Frekari upplýsing-
ar má finna á vefsíðunni www.
kokkarnir.is, í síma
5114466 eða gegn-
um tölvupóst
á kokkarnir@
kokkarnir.is.
Einstakar vörur
fyrir sælkera
Kokkarnir bjóða upp á mikið úrval af gjafakörfum sem eru bæði staðlaðar og
hægt að sérpanta. Þeir laga mikið af vörunum sjálfir en körfurnar eru
troðfullar af alls kyns sælkeravörum og eitthvað fyrir alla í þeim.
Rúnar Gíslason yfirmatreiðslumaður hjá Kokkunum segir
gjafakörfu frá fyrirtækinu vera góða og girnilega gjöf. MYND/ANTON
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 5125427
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
ÍSLENSK HÖNNUN Í PAKKANN
Íslenskir vöruhönnuðir eru ótrúlega frjóir allan
ársins hring en margir koma einmitt fram með nýjar
vörur í kringum jólin. Það er hrikalega smart að gefa
starfsmönnum íslenska hönnun; hvort sem um er að
ræða nytjahluti eða skraut.
Um leið er hægt
að styrkja íslenska
framleiðslu sem fæstir
hafa á móti.