Fréttablaðið - 31.10.2012, Side 25

Fréttablaðið - 31.10.2012, Side 25
KYNNING − AUGLÝSING Fyrirtækjagjafir31. OKTÓBER 2012 MIÐVIKUDAGUR 5 Fyrirtæki og stofnanir hafa frá árinu 2007 getað keypt gjafabréf frá Hjálparstofn- un kirkjunnar í stað þess að gefa starfsmönnum hefðbundnar jólagjafir. Hægt er að velja úr 37 ólíkum gjafabréfum sem spanna frá 1.600 til 180.000 króna en dýr- asta gjafabréfið dugar einmitt fyrir einum brunni. Bjarni Ólafs- son, verkefnastjóri hjá Hjálpar- stofnun kirkjunnar, segir hug- myndina að gjafabréfun- um hafa kviknað á sínum tíma þegar starfsmenn hjálparstofnunarinn- ar reyndu að finna nýjar leiðir til að fjármagna starfið. „Þessi hugmynd kom fram enda hafa systursamtök okkar gert svipaða hluti. Þannig gefst einstaklingum og fyrirtækjum kostur á að senda peninga í ýmis þörf verkefni víða um heim ásamt kveðjum frá Íslandi. Útfærsla okkar á vefnum okkar er síðan okkar hugmynd en þar geta einstaklingar og fyrirtæki gengið frá kaupum gjafabréfanna.“ Ólík tilefni Að sögn Bjarna eru geiturnar vin- sælastar en gjafabréf til söfnun- ar brunna seljast einnig mjög vel. „Geitur eru mjög nytsamleg dýr en hægt er að kaupa eina geit á 3.200 kr. Þær nýtast mjög vel til að bæta lífsgrundvöll fólks og eru mjög gagnlegar. Geitur gefa mjólk og þeim fjölgar hratt. Það er hægt að selja þær og einnig er hægt að nýta taðið úr þeim sem áburð í grænmetisgarða. Þannig verður þetta hringur sem mynd- ast sem ef lir lífsafkomu fólks- ins.“ Nýr brunnur kostar 180.000 kr. eins og fyrr segir en hægt er að kaupa vatnsgjafabréf fyrir 6.000 kr. sem hugsað er sem hlutdeild í brunni. Þegar nógu mörg bréf hafa verið keypt safnast saman í einn brunn. Gjafabréfin eru seld allt árið og henta fyrir mörg önnur tilefni en jólagjafir að sögn Bjarna. „Gjafabréfin hafa til dæmis verið keypt í tengslum við af- mæli, útskriftir og einn- ig minningarkort þannig að þau eru í sölu allt árið.“ Innanlandsaðstoð í boði Bjarni segir hvert og eitt gjafabréf útbúið út frá verkefnum hjálpar- stofnunarinnar. Svo þegar pen- ingar safnist saman fari þeir beint í viðkomandi verkefni. „Ef gjafabréf í tengslum við geit er keypt fara þeir peningar í kaup á geit og engu öðru. Hjálpar- stofnunin er líka með gjafabréf í tengslum við innanlandaðstoð. Þar má til dæmis nefna framtíð- arsjóðinn sem hjálpar illa stödd- um nemendum við greiðslu skólagjalda í framhaldsskólum.“ Stærstur hluti þeirra fjármuna sem Hjálparstofnun kirkjunnar safnar með sölu gjafabréfa renn- ur til verkefna í Eþíópíu, Úganda, Malaví, á Indlandi auk verkefna á Íslandi. „Starfsmönnum fyrir- tækja gefst kostur á að fylgjast með framvindu verkefnanna í ársskýrslum okkar en hún inni- heldur nákvæma skýrslu um hvert verkefni.“ Nánari upplýs- ingar má finna á gjofsemgefur.is. Geiturnar eru vinsælastar Hjálparstofnun kirkjunnar hefur í nokkur ár boðið fyrirtækjum að kaupa gjafabréf í stað hefðbundinna jólagjafa. Hægt er að velja úr 37 gjafabréfum og rennur peningurinn beint í vel skilgreind verkefni. Gjafabréf vegna geitar. Nýr brunnur kostar 180.000 kr. en hægt er að kaupa gjafabréf fyrir 6.000 kr. MYND/ÚR EINKASAFNI „Gjafabréfin eru seld allt árið og henta fyrir mörg önnur tilefni en jóla- gjafir,“ segir Bjarni Ólafsson, verkefnastjóri hjá Hjálpar- stofnun kirkjunnar. MYND/GVA Í vetur kynnir Harpa – tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík skemmtilega og spennandi nýj- ung sem nefnist „Hughrif Hörpu“. „Um er að ræða gjafapakka fyrir tvo sem inniheldur miða í annaðhvort Íslensku óperuna eða á tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands, nótt á Icelandair Hótel Reykjavík Marina, kvöldverð á Kolabrautinni í Hörpu, skoðunarferð um húsið og að sjálfsögðu stæði í bílakjall- ara Hörpu,“ útskýrir Anna Mar- grét Björnsson, kynningarfulltrúi Hörpu. Anna bætir við að þau von- ist til þess að fólk á höfuðborgar- svæðinu nýti sér þetta frábæra til- boð. „Vestanhafs er mjög vinsælt að pör fari í svokallað „staycation“ en það er frí án þess að langt sé farið. Þetta er auðvitað stórskemmtileg gjöf fyrir fólk sem vill rómantíska upp- lifun og komast aðeins í burtu frá hversdagsleikanum.“ Einnig býður Harpa upp á hefðbundin gjafakort sem gilda sem inneign á hvaða tón- leika sem er í húsinu. Anna segist líka búast við því að fólk utan höfuðborgarinnar nýti sér gjafapakkann til að gefa einstaka upplifun í Hörpu og njóta alls þess sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða. „Við höfnina hefur sprottið upp fjöldi skemmtilegra verslana, kaffihúsa og veitinga- staða sem er gaman að skoða. Með þessum gjafapakka getur þú komið þér vel fyrir í hjarta miðborgarinn- ar og nýtt daginn vel í miðbænum á meðan bíllinn getur beðið í hlýj- unni í Hörpu. Svo bíður þín dýr- indis málsverður á Kolabrautinni á fjórðu hæð Hörpu með útsýni yfir borgina, tónleikar í Eldborg og loks uppábúið rúm á glæsilegu hóteli.“ Nánari upplýsingar um „Hughrif Hörpu“ er að finna á www.harpa. is eða í miðasölu Hörpu 528 5050. Hughrif Hörpu Láttu fara vel um þig í miðborg Reykjavíkur, upplifðu kvöld með Sinfóníuhljómsveit Íslands eða Íslensku óperunni og kynntu þér Hörpu. Anna Margrét segir viða vinsælt að pör fari í svokallað „staycation“ en það er frí án þess að langt sé farið. Hughrif Hörpu er dæmi um slíkt frí. Gjafapakkinn, sem er fyrir tvo, inniheldur miða í Íslensku óperuna eða á Sinfóníutón- leika, nótt á Icelandair Hótel Reykjavík Marina, kvöldverð á Kolabrautinni í Hörpu og skoðunarferð um húsið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.